Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 378. máls.
við frv. til l. um breyt. á l. á sviði Neytendastofu.
1. Við 1., 4., 5., 7. og 8. gr. 1. efnismgr. greinanna orðist svo:
Ákvæði laga um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins gilda um úrræði Neytendastofu og málsmeðferð.
2. Við 2. gr. A-liður orðist svo: 2. málsl. orðast svo: Ákvæði laga um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins gilda um úrræði Neytendastofu og málsmeðferð.
3. Við 3. gr. Við efnismálsgrein a-liðar bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Málskot frestar ekki framkvæmd ákvörðunar.
Þar sem efnahags- og viðskiptanefnd hefur fengið til meðferðar nýtt frumvarp um breytingu á lögum á sviði Neytendastofu (þskj. 917, 617. mál) þar sem að nokkru leyti eru lagðar til efnislega sömu breytingar og í því frumvarpi sem hér um ræðir er talið rétt til einföldunar að samræma efni frumvarpanna þannig að aðeins verði gerðar breytingar á tilgreindum ákvæðum í þessu frumvarpi. Í 3. tölul. í breytingartillögum þessum felst lagfæring en um er að ræða setningu sem var felld brott úr frumvarpinu fyrir slysni við aðra umræðu.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Prentað upp.
Þskj. 995 — 378. mál.
Leiðréttur texti.
Breytingartillögur
við frv. til l. um breyt. á l. á sviði Neytendastofu.
Frá Pétri H. Blöndal.
1. Við 1., 4., 5., 7. og 8. gr. 1. efnismgr. greinanna orðist svo:
Ákvæði laga um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins gilda um úrræði Neytendastofu og málsmeðferð.
2. Við 2. gr. A-liður orðist svo: 2. málsl. orðast svo: Ákvæði laga um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins gilda um úrræði Neytendastofu og málsmeðferð.
3. Við 3. gr. Við efnismálsgrein a-liðar bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Málskot frestar ekki framkvæmd ákvörðunar.
Greinargerð.