Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 580. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 1024  —  580. mál.




Svar



dómsmálaráðherra við fyrirspurn Magnúsar Þórs Hafsteinssonar um fíkniefnahunda.

     1.      Hversu margir fíkniefnahundar hafa verið í notkun árlega síðan árið 2000?
     2.      Hver er að meðaltali kostnaður við að þjálfa slíkan hund og árlegur rekstrarkostnaður hans?
     3.      Hafa stjórnvöld áform um að fjölga fíkniefnahundum við toll- og löggæslu?


    Ráðuneytið óskaði eftir upplýsingum hjá ríkislögreglustjóra og safnaði embættið saman upplýsingum eins og kostur var. Einnig var aflað upplýsinga frá fangelsinu á Litla-Hrauni.
    
    1. Í svari frá ríkislögreglustjóra kemur fram að fíkniefnaleitarhundar hjá lögregluembættunum hefðu verið fjórir talsins á árinu 2000. Ári seinna hafi þeim verið fjölgað í sjö en um þessar mundir, í febrúar 2007, eru þeir tíu. Nú stendur yfir þjálfun á tveimur hundum til viðbótar og eru bundnar vonir við að þeirri þjálfun ljúki í september nk., eins og lagt var upp með. Verða fíkniefnaleitarhundar þá tólf talsins hjá hinum ýmsu lögregluembættum.
    Samkvæmt upplýsingum frá fangelsinu á Litla-Hrauni fékk fangelsið einn fíkniefnarleitarhund 1. febrúar 2007, sem er ekki fullþjálfaður. Stefnt er að því að hundurinn verði fullþjálfaður í lok mars nk. og komi þá að fullum notum.
    Samkvæmt upplýsingum frá ríkislögreglustjóra fékk tollgæslan í Reykjavík sinn fyrsta fíkniefnaleitarhund árið 1991. Sá hundur var fenginn frá Danmörku og var hann einn í notkun til ársins 1998, þá var öðrum hundi bætt við og hafa tveir hundar verið í notkun hjá embættinu árlega frá 1998. Tollgæslan á Suðurnesjum var með tvo hunda í notkun árlega frá árinu 1997 til 2005 en þá bættist þriðji hundurinn við og eru þar þrír hundar í notkun núna. Tollgæsla annars staðar á landinu er ekki með fíkniefnaleitarhunda.

    2. Áætlaður kostnaður við að koma upp þjálfuðum fíkniefnaleitarhundi er á aðra milljón króna.
    Kostnaður við að reka slíkan hund getur verið breytilegur og fer þá nokkuð eftir því hvort lögreglumaður sá sem stýrir leitarhundi gegnir því í fullu starfi eða sinnir því meðfram öðrum störfum fyrir lögregluna. Rekstrarkostnaður á ári fyrir fullþjálfaðan fíkniefnaleitarhund er áætlaður um 800.000 kr. Launakostnaður umsjónarmanns er ekki tekinn inn í þessar áætlanir.
    Ríkislögreglustjóri styrkir lögregluembættin á landsbyggðinni sem hafa leitarhund í sinni þjónustu með föstum mánaðarlegum greiðslum. Þá tekur embættið þátt í kostnaði sem leitt getur af aðstoð við lögregluumdæmi sem ekki hefur á að skipa leitarhundi, einkum þegar mál eru yfirgripsmikil og kostnaður getur orðið hár. Til að standa straum að þessum kostnaði hefur ríkislögreglustjóri fengið 3,5 millj. kr. fjárveitingu á ári. Lögreglustjórar hafa að mestu tekið annan kostnað á embætti sín.
    Af því sem hér er rakið má ljóst vera að kostnaður sem leiðir af notkun fíkniefnaleitarhunda er mikill. Þá skiptir máli að vel sé vandað til verka á þessu sviði og hafa mörg atriði verið endurskoðuð og lagfærð á síðustu árum. Um fíkniefnaleitarhunda lögreglunnar gilda sérstakar reglur frá 2004. Þær eru nú í endurskoðun og hafa fengið umsögn lögreglustjóra og skólastjóra Lögregluskóla ríkisins. Kröfur um val á hundum eru meiri en áður og framlag lögregluskólans til menntunar og þjálfunar skiptir hér miklu máli. Allt er þetta gert í því skyni að auka fíkniefnaeftirlit og styrkja lögregluembættin í þeirri baráttu með betur þjálfuðum leitarhundum og stjórnendum þeirra. Í reglum ríkislögreglustjóra um fíkniefnaleitarhunda lögreglunnar er gengið út frá því að öll lögregluumdæmi geti fengið fíkniefnaleitarhunda þegar á þarf að halda.

    3. Ekki eru uppi áform um að fíkniefnaleitarhundum hjá lögreglu verði fjölgað umfram það sem kemur fram í svari við 1. tölul. fyrirspurnarinnar.
    Samkvæmt upplýsingum frá ríkislögreglustjóra hefur tollstjórinn í Reykjavík ákveðið að fjölga hundunum úr tveimur í þrjá og er þriðji hundurinn væntanlegur til landsins, frá Noregi, í byrjun sumars.