Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 454. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 1033 — 454. mál.
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Ástu R. Jóhannesdóttur og Þórunnar Sveinbjarnardóttur um forsendur og framkvæmd sölu Heilsuverndarstöðvarinnar við Barónsstíg.
1. Hvaða forsendur lágu til grundvallar ákvörðun stjórnvalda um að selja Heilsuverndarstöðina við Barónstíg? Við hvaða gögn var stuðst þegar ákvörðun um sölu var tekin?
Heilsuverndarstöðin var hönnuð á árunum 1947 til 1949 fyrir ýmiss konar heilsugæslu- og heilsuverndarstafsemi eins og hún var þá unnin og skipulögð. Bygging hússins hófst 1950 og byrjað var að nýta það 1953 en framkvæmdum lauk 1958.
Reykjavíkurborg átti 60% hlut í Heilsuverndarstöðinni og ríkissjóður 40%. Hins vegar hefur Reykjavíkurborg lítil afnot haft af húsinu síðan um 1990 og ekki haft af því neinar leigutekjur. Síðastliðinn áratug hafa fulltrúar Reykjavíkurborgar af og til óskað eftir því að ríkissjóður keypti hlut borgarinnar í húsinu. Að öðrum kosti hefur borgin óskað eftir að húsið yrði selt á frjálsum markaði. Í þeim tilgangi hafa verði fengnir sérfræðingar til að meta söluverð hússins, ástand þess og kostnað við viðhald.
Á þessum árum hefur oft verið kannað hvernig nota mætti Heilsuverndarstöðina fyrir heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið og stofnanir þess, þar á meðal stjórnsýslu heilsugæslunnar, landlæknisembættið, héraðslækninn í Reykjavík, ýmsar forvarnarstofnanir, þ.m.t. Lýðheilsustöð, eftirlitsmiðstöðvar heilsugæslunnar, hjúkrunarheimili eða læknavaktina. Samhliða þessu hefur kostnaður við nauðsynlegar breytingar sem fylgdu þessari fyrirhuguðu breyttu notkun verið metinn. Þrátt fyrir alla þessar tilraunir til að nýta Heilsuverndarstöðina varð niðurstaðan sú að ekki var talið hagkvæmt að nýta húsið, m.a. vegna mikils kostnaðar við nauðsynlegar endurbætur og breytingar og var talið betra að leysa húsnæðismál viðkomandi stofnana með öðrum hætti.
Í lok maí 2005 náðist samkomulag milli Reykjavíkurborgar og ríkisins um makaskipti á ýmsum fasteignum sem verið höfðu í notkun á vegum annars aðilans, en eign hins. Einn liður í þessu samkomulagi var að Heilsuverndarstöðin skyldi seld eigi síðar en fyrir árslok 2006.
2. Hafði farið fram mat á húsnæði Heilsuverndarstöðvarinnar og hver kostnaður yrði við endurbætur og viðgerðir ef starfsemi Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins yrði áfram þar til húsa?
3. Ef slíkt mat var gert, hver var niðurstaðan varðandi umfang og kostnað? Ef svo var ekki, hver ber ábyrgð á að það var ekki gert? Telur ráðherra að slíkt mat hefði gagnast áður en söluferlið var hafið og leit hafin að nýju húsnæði?
Eins og sagði hér að framan hafa sérfræðingar verið fengnir til að meta verðmæti hússins á liðnum árum og kostnað við viðhald og breytingar eftir þeim forsendum sem fyrir lágu hverju sinni. Sem dæmi má geta ítarlegs mats sem unnið var 1995. Þar var komist að þeirri niðurstöðu að söluverð hússins á almennum fasteignamarkaði væri um 570 millj. kr. framreiknað með byggingarvísitölu til verðlags í desember 2006. Hins vegar töldu sérfræðingarnir að svokallað endurstofnverð (þ.e. kostnaður við að byggja alveg eins hús í dag) væri um 1.460 millj. kr. sem svarar til um 330 þús. kr. á hvern m². Þetta er um 40–50% dýrara en nú kostar að byggja nýtt skrifstofuhús. Í flestum þeim matsgerðum sem unnar hafa verið á liðnum árum hefur niðurstaðan verið að kaupverð Heilsuverndarstöðvarinnar yrði að vera fremur lágt ef kostnaður við viðgerðir og breytingar hússins ætti ekki að verða mun hærri en bygging nýs húss.
Áður en Heilsuverndarstöðin var boðin til sölu sumarið 2005 létu eigendur hússins tvo fasteignasala meta líklegt söluverð hússins og töldu þeir það vera um 665 millj. kr. miðað við þáverandi ástand hússins ef langtímaleigusamningur, t.d. við heilsugæsluna, fylgdi með í kaupunum. Auk þess gætu fengist um 45 millj. kr. fyrir byggingarétt sem fylgdi Heilsuverndarstöðinni eða samtals 710 millj. kr. Ef langtímasamningurinn fylgdi ekki með í kaupunum, sem varð raunin, yrði söluverðið lægra.
Eins og áður hefur verið sagt er kominn tími til að vinna margs konar endurbætur og viðgerðir á Heilsuverndarstöðinni enda húsið orðið um 50 ára gamalt. Það er reynsla ríkissjóðs af ýmsum verkum og endurbótum og endurbyggingu eldra húsnæðis að þau geta orðið mjög dýr. Miðað við reynslutölur úr þeim verkum má ætla að viðhalds- og viðgerðarkostnaður Heilsuverndarstöðvarinnar hefði getað kostað ríkissjóð 600–800 millj. kr. á núverandi verðlagi.
Heildarverð hússins hefði þannig orðið 710 millj. kr. (matsverð hússins með langtímasamningi) að viðbættum viðgerðarkostnaði 600–800 millj. kr., eða samtals 1.300–1.500 millj. kr., um 300–340 þús. kr á hvern m². Af þessari upphæð átti ríkissjóður um 280 millj. kr. með eignarhlut sínum (40%) í Heilsuverndarstöðinni.
4. Voru makaskipti milli borgar og ríkis reynd til þrautar? Um hvað var deilt og hvers vegna var málið ekki sett til úrlausnar í matsnefnd? Hver tók endanlega af skarið um að sættir næðust ekki um viðunandi makaskipti?
Fjármálaráðuneytið fer með kaup og sölu fasteigna ríkisins, en að öðru leyti vísast til svars við 1. lið fyrirspurnarinar.
5. Telur ráðherra að slíkt mat hefði gagnast áður en söluferlið var hafið og leit hafin að nýju húsnæði?
Eins og kemur fram í svari við 2. og 3. lið fyrirspurnarinnar var slíkt mat gert.
6. Hver var hreinn hagnaður ríkisins af sölu Heilsuverndarstöðvarinnar og hvar er hann bókfærður?
Hlutur ríkissjóðs í söluandvirði Heilsuverndarstöðvarinnar að frádreginni þóknun til fasteignasala varð 388 millj. kr. og hann er bókfærður sem ríkistekjur.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 1033 — 454. mál.
Svar