Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 455. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 1036  —  455. mál.




Svar



heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Ástu R. Jóhannesdóttur og Þórunnar Sveinbjarnardóttur um flutnings- og leigukostnað Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

     1.      Hvað kostaði flutningur Heilsuverndarstöðvarinnar og hvað er talið að sú truflun sem orðið hefur á starfseminni hafi kostað?

    Kostnaður við flutning allrar starfseminnar í Mjódd var sem hér segir (í millj kr.):
              Flutningskostnaður          4,5
              Endurnýjun búnaðar og tækja          37,5
              Símkerfi, gluggatjöld, merkingar          7,0
              Ráðgjafarvinna, umsjón og eftirlit Framkvæmdasýslu ríkisins          9,4
               Samtals                58,4     
    Að mati forstjóra Heilsugæslunnar gæti truflun á starfsemi hennar hafa jafngilt stöðvun í u.þ.b. hálfan mánuð en erfitt er að meta kostnað vegna þess.

     2.      Hver greiðir kostnað við nauðsynlegar breytingar á nýja húsnæðinu? Hver var heildarkostnaður við þær breytingar, sem og kostnaður fasteignasala, kostnaður við vinnu arkitekts og allur annar kostnaður við nýtt húsnæði? Nákvæm sundurliðun á kostnaði óskast.
    Í samræmi við ákvæði í húsnæðislýsingu er húsnæðið tekið á leigu fullinnréttað. Öll vinna við innréttingu húsnæðisins var unnin á kostnað leigusala og bókfærð þar. Upplýsingar um þá kostnaðarliði sem hér er spurt um eru því ekki hjá heilbrigðisráðuneytinu.

     3.      Hversu mikill verður kostnaður ríkisins við hið nýja húsnæði næstu tíu árin?
    Umsamin leiga fyrir allt húsnæði sem tekið hefur verið á leigu í Mjódd, þ.e. í Álfabakka 16 og Þönglabakka 1 er 6.757.730 kr. á mánuði með virðisaukaskatti. Þar af er 767.000 kr. á mánuði vegna húsnæðis miðstöðvar heimahjúkrunar. Leigugjaldið er verðbætt miðað við vísitölu neysluverðs, grunnvísitölu 255,2 í maí 2006. Eins og venja er í leigusamningum ríkisins greiðir leigusali allt viðhald utan húss og í sameign en leigutaki greiðir viðhald innan húss, svo og venjulegan rekstrarkostnað hússins. Þar sem allt húsnæðið í Mjóddinni er ýmist nýinnréttað eða hefur fengið gagngerar endurbætur þarf ekki að reikna með að viðhaldskostnaður innan húss verði umtalsverður næstu tíu ár.
    Í þessu samhengi má benda á að ef Heilsuverndarstöðin hefði verið keypt og nýtt áfram hefði auk kaupverðs hússins þurft að greiða kostnað við viðhald og endurbætur þess (sjá svar heilbrigðisráðherra við 2. spurningu á þskj. 1033). Auk þess hefði kostnaður við flutning og vegna röskunar á starfsemi orðið a.m.k. helmingi hærri en við flutninga í Mjódd, þar sem annaðhvort hefði þurft að flytja starfsemina í bráðabirgðahúsnæði meðan framkvæmdir stæðu yfir og síðan til baka aftur eða flytja starfsemina innan húss og vinna viðhaldsverkin í minni og óhagkvæmari smáverkum. Þá hefði viðhaldskostnaður utan húss á komandi árum allur fallið á þetta verkefni svo og greiðslur fasteignaskatta.

     4.      Hvert var upphaflegt tilboð leigusala og endanleg niðurstaða á leiguverði á hvern fermetra eftir endurbætur á húsnæðinu? Hver er árlegur leigukostnaður?
    Upphaflegt tilboð leigusala hljóðaði upp á 1.120 kr. á m² með virðisaukaskatti í grunnleigu auk hækkunar á leigu vegna breytinga á innréttingu húsanna samkvæmt óskum leigutaka. Þessi hækkun leigu var reiknuð í samræmi við þær reglur sem settar voru í húsnæðislýsingu. Endanlegt leiguverð varð 1.534 kr./m² með virðisaukaskatti.
    Það húsnæði sem tekið var á leigu í húsunum tveimur er samtals 4.405,3 m². Þar er meðtalið húsnæði miðstöðvar heimahjúkrunar. Árlegur leigukostnaður með virðisaukaskatti er 81,1 millj. kr., þar af 9,2 millj. kr. á mánuði vegna húsnæðis miðstöðvar heimahjúkrunar.

     5.      Hvaða áhrif hefur nýtilkominn leigukostnaður á fjárlagaramma Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, hefur hann verið aukinn sem leigukostnaði nemur eða er henni ætlað að borga leiguna að hluta eða öllu leyti innan fyrri fjárlagaramma, að teknu tilliti til verðbólgu? Nákvæmar fjárhæðir óskast tilgreindar.
    Rekstrargrunnur Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins var hækkaður um 70 millj. kr. í fjárlögum 2007 til að standa undir kostnaði vegna húsaleigu í Mjóddinni fyrir starfsemi stofnunarinnar sem áður var starfrækt í Heilsuverndarstöðinni.

     6.      Hversu langur er leigutíminn og er leigusamningurinn uppsegjanlegur?
    Leigusamningur gildir til 31. ágúst 2026 og er óuppsegjanlegur á leigutímanum.