Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 678. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 1044  —  678. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., nr. 29/1993, með síðari breytingum.

Flm.: Kolbrún Halldórsdóttir.



1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. laganna:
     a.      C-liður 1. tölul. orðast svo: Ökutæki sem ætluð eru til vöruflutninga og eru yfir 5 tonn að heildarþyngd. Þau ökutæki sem eru yfir 5 tonn að heildarþyngd en að hámarki 6 tonn skulu þó vera hönnuð með eina sætaröð í fólksrými og hafa óskipt farmrými sem er aðskilið frá fólksrými.
     b.      F-liður 3. tölul. orðast svo: Ökutæki sem ætluð eru til vöruflutninga, að heildarþyngd 5 tonn eða minna, eru hönnuð með eina sætaröð í fólksrými og hafa óskipt farmrými sem er aðskilið frá fólksrými.

2. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 2007 og taka til ökutækja sem eru ótollafgreidd við gildistöku.

Greinargerð.


    Samkvæmt lögum um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., nr. 29/1993, skal greiða vörugjald í ríkissjóð af ökutækjum sem eru skráningarskyld samkvæmt umferðarlögum. Í 3. gr. er kveðið á um að gjald þetta sé ýmist 30% eða 45% allt eftir sprengirými aflvélar. Í 4. gr. laganna er svo mælt fyrir um undanþágur og eftirgjafir frá innheimtu gjaldsins. Þau sjónarmið sem búa að baki niðurfellingu eða lækkun gjalds eru einkum þau að styðja við atvinnurekstur.
    Borið hefur á innflutningi til einkanota, þ.e. mannaflutninga, á ökutækjum sem falla undir c-lið 1. tölul. og f-lið 3. tölul. 4. gr. laganna. Þessi ökutæki eru ýmist alveg undanþegin vörugjaldi eða bera 13% vörugjald. Hefur af þessum sökum skapast ákveðið ójafnræði þar sem þeir sem velja sér slík ökutæki til einkanota greiða lægra vörugjald en þeir sem aka á venjulegum einkabifreiðum.
    Með frumvarpinu er lagt til að orðið „aðallega“ falli brott úr umræddum liðum þannig að ökutæki skuli einungis notuð til vöruflutninga til að hljóta niðurfellingu eða lækkun vörugjalds. Þá er einnig um að ræða nánari afmörkun á þann veg að hvorki verður unnt að lækka né fella niður vörugjald á þeim ökutækjum sem hafa tvær sætaraðir í fólksrými, þ.e. þar sem gert er ráð fyrir farþegum fyrir aftan ökumann.
    Þessi breyting er til þess fallin að fækka stórum og kraftmiklum ökutækjum á vegunum og er því líkleg til að draga úr umferðarhraða og mengun. Slík aðgerð er einnig í fullu samræmi við áform samgönguráðherra um breyttar áherslur og breytingar á reglum til að stemma stigu við ofsaakstri.