Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 560. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 1046  —  560. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 125/1999, um málefni aldraðra.

Frá heilbrigðis- og trygginganefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Vilborgu Hauksdóttur frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti og Ragnheiði Snorradóttur frá fjármálaráðuneyti.
    Með frumvarpi þessu er lagt til að sérstakar vistunarmatsnefndir leggi faglegt einstaklingsbundið mat á þörf aldraðra einstaklinga fyrir vistun í dvalar- eða hjúkrunarrými eða önnur úrræði í stað þjónustuhópa. Markmið frumvarpsins er að stuðla að auknu samræmi við gerð vistunarmats aldraðra og tryggja eins og kostur er faglegar og samanburðarhæfar niðurstöður vistunarmats um allt land.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Valdimar L. Friðriksson sat fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er samþykkur áliti þessu.

Alþingi, 7. mars 2007.



Guðjón Ólafur Jónsson,


form., frsm.


Ásta Möller.


Ásta R. Jóhannesdóttir.



Ellert B. Schram.


Pétur H. Blöndal.


Kristján L. Möller.



Ingvi Hrafn Óskarsson.


Sæunn Stefánsdóttir.


Þuríður Backman,


með fyrirvara.