Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 277. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Prentað upp.

Þskj. 1053  —  277. mál.
Leiðréttur texti.




Nefndarálit



um frv. til l. um opinber innkaup.

Frá efnahags- og viðskiptanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ingva Má Pálsson og Stefán Jón Friðriksson frá fjármálaráðuneyti, Skúla Magnússon, héraðsdómara og frumvarpshöfund, Halldór Grönvold frá Alþýðusamband Íslands, Pál H. Hannesson frá Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, Andrés Magnússon og Einar Örn Davíðsson frá Félagi íslenskra stórkaupmanna, Kristbjörgu Stephensen frá Reykjavíkurborg, Júlíus S. Ólafsson og Guðmund I. Guðmundsson frá Ríkiskaupum, Guðmund Sigurðsson frá Samkeppniseftirlitinu, Sigurð B. Halldórsson frá Samtökum iðnaðarins og Sigurð Óla Kolbeinsson frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Nefndinni bárust einnig umsagnir frá fjölda aðila.
    Frumvarp þetta felur í sér heildarendurskoðun á lögum um opinber innkaup. Gerðar eru margar efnislegar breytingar og viðbætur á þessu sviði enda hafa orðið talsverðar breytingar hvað opinber innkaup varðar. Megintilefni þessara breytinga eru tvær tilskipanir Evrópubandalagsins. Er annars vegar um að ræða svokallaða útboðstilskipun, nr. 2004/18/EB, um samræmingu reglna um útboð og gerð opinberra verksamninga, og hins vegar svonefnda veitutilskipun, nr. 2004/17/EB, um samræmingu reglna um innkaup stofnana sem annast vatnsveitu, orkuveitu, flutninga og póstþjónustu.
    Í 1. gr. frumvarpsins er fjallað um tilgang þess. Tilgangurinn er sá að tryggja jafnræði fyrirtækja við opinber innkaup, stuðla að hagkvæmni í opinberum rekstri með virkri samkeppni og efla nýsköpun og þróun við innkaup hins opinbera á vörum, verkum og þjónustu. Áfram verður fylgt þeirri stefnu sem mörkuð var með setningu gildandi laga um opinber innkaup að efnisreglur EES-samningsins um opinber innkaup gildi einnig um opinber innkaup yfir innlendum viðmiðunarfjárhæðum sem eru lægri en viðmiðunarfjárhæðir EES. Gildir því eitt einsleitt regluverk um opinber innkaup, hvort sem þau eru undir eða yfir viðmiðunarfjárhæðum EES. Ein undantekning er þó frá þessu en hún er sú að frumvarpið gildir ekki um innkaup stofnana sem annast vatnsveitu, orkuveitu, flutninga og póstþjónustu að frátöldum ákvæðum XIII. og XIV. kafla sem fjalla um réttarúrræði einstaklinga og skaðabætur.
    Verði frumvarpið að lögum eru þær breytingar helstar að aðferðir við tilhögun útboða eru skilgreindar ítarlegar. Þá verður heimilt í ákveðnum tilfellum að viðhafa svokallaðar samkeppnisviðræður en sú aðferð er hugsuð til að leiða fram lausnir þegar um sérlega flókna samninga er að ræða. Einnig verður heimilt að viðhafa örútboð en í því felst að hægt er að óska eftir nýjum tilboðum um tilteknar valforsendur sem voru óákveðnar samkvæmt upphaflegum rammasamningi. Þá eru í frumvarpinu ítarlegri reglur um útboðsgögn, framkvæmd útboða og val tilboðs. Jafnframt er lögð til sú breyting að frá því að ákvörðun um val tilboðs er tilkynnt og þar til það er endanlega samþykkt skuli líða tíu dagar. Þá er lagt til að innheimt verði hóflegt kærugjald til að stemma stigu við tilhæfulausum kærum. Að lokum má nefna að í frumvarpinu eru tekin af tvímæli um gildissvið stjórnsýslulaga gagnvart lögum um opinber innkaup. Stjórnsýslulög munu því ekki gilda um opinber innkaup, að frátöldum II. kafla þeirra um sérstakt hæfi. Tilgangur þessarar reglu er að skýra réttarreglur á þessu sviði en ekki er ætlunin að skerða rétt fyrirtækja á sviði opinberra innkaupa.
    Nefndin ræddi talsvert um það til hvaða aðila reglur frumvarpsins taka en líkt og í gildandi lögum er ekki gert ráð fyrir því að sveitarfélögin undirgangist þær skyldur sem kveðið er á um í 2. þætti laganna um opinber innkaup undir viðmiðunarfjárhæðum EES. Nefndin ræddi um að það að fara þyrfti rólega í sakirnar, enda eðlilegt að gætt sé sjálfsákvörðunarréttar sveitarfélaga. Fram kom á fundum nefndarinnar að við setningu gildandi laga hafi verið um það rætt að reglur um opinber innkaup undir framangreindum viðmiðunarfjárhæðum ættu einnig að gilda um sveitarfélögin. Ekki náðist samstaða um það á þeim tíma og var skipuð nefnd til að fjalla um málið sem hefur ekki enn lokið störfum. Sveitarfélögin sýsla með opinbert fé líkt og ríkið og töldu margir gesta nefndarinnar í ljósi þess ekki við það unað að sveitarfélögunum væri í sjálfsvald sett hvort þau undirgengjust þær auknu skyldur við opinber innkaup sem felast í 2. þætti laganna . Nefndin er sammála þessu, einkum í ljósi þess að mikið hefur verið rætt um hvort sveitarfélögin muni taka við sífellt fleiri verkefnum af ríkinu. Nefndin leggur til breytingu á frumvarpinu í því skyni að stíga hóflegt skref í átt að því að reglur um opinber innkaup taki til sveitarfélaganna. Þannig verði kveðið á um það berum orðum í lögunum að sveitarfélögum sé heimilt að beita reglum 2. þáttar frumvarpsins um innkaup sín. Geri þau það ekki beri þeim sjálfum að setja sér reglur um innkaup. Nefndin leggur þó til nokkurn aðlögunartíma, þ.e. til 1. janúar 2008. Nefndin hvetur einnig til þess að sú nefnd sem fjármálaráðherra skipaði í febrúar 2002 til að gera tillögur um gildissvið laga um opinber innkaup gagnvart sveitarfélögunum ljúki verkefni sínu og skili tillögum hið fyrsta.
    Á fundum nefndarinnar var fjallað um rammasamninga og þá hættu sem þeir geta haft í för með sér að tiltekin fyrirtæki eða bjóðendur verði útilokaðir frá markaðnum eða þá að nýjir aðilar komist ekki inn á markaðinn. Ríkið er langstærsti kaupandinn og á sumum sviðum sá eini og varða því miklu þeir hagsmunir sem eru fólgnir í því að gera rammasamning. Rammasamningar sem slíkir teljast ekki andstæðir samkeppnislögum en hins vegar er það metið í hvert og eitt sinn hvort svo teljist vera. Hvað þessi atriði varðar þá skiptir tímalengd rammasamnings miklu. Í 3. mgr. 34. gr. frumvarpsins er kveðið á um að gildistími rammasamnings megi ekki vera lengri en fjögur ár, nema í undantekningartilfellum sem skulu helgast af málefnalegum ástæðum. Fram kom á fundum nefndarinnar að við samningu frumvarpsins hafi verið gengið út frá því að lög um opinber innkaup takmarki ekki gildissvið samkeppnislaga. Ræddi nefndin jafnframt þá stöðu sem upp getur komið ef kaupanda samkvæmt rammasamningi bjóðast jafngóðar vörur á mikið lægra verði, t.d. 30% lægra, á almennum markaði, t.d. á netinu. Telur nefndin eðlilegt að tekið sé mið af slíkum tilfellum í rammasamningnum sjálfum.
    Nefndin ræddi einnig ákvæði 75. gr. frumvarpsins um tilkynningu og rökstuðning höfnunar tilboðs og annarra ákvarðana. Telur nefndin eðlilegt að með hliðsjón af 45. gr. um forsendur kaupanda fyrir vali tilboðs verði hverjum bjóðanda tilkynnt hvernig tilboð hans hafi verið metið, svo og um mat á því tilboði sem tekið var. Skal þá litið til upptalningar í 45. gr. frumvarpsins en þar eru í 1. mgr. taldar upp fjölbreyttar forsendur sem geta komið til greina við mat á tilboði, þ.e. ekki aðeins lægsta verð. Ekki er um tæmandi upptalningu að ræða.
    Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir að ýmislegt annað en verð megi skoða þegar kaupandi tekur ákvörðun um innkaup. Má í þessu sambandi nefna 43. gr. þar sem kaupanda er veitt heimild til að kveða á um sérstök skilyrði sem tengjast framkvæmd samnings. Þetta eru einkum skilyrði varðandi félagsleg og umhverfisleg atriði. Þá er í 44. gr. kveðið á um að kaupanda sé heimilt að upplýsa í útboðsskilmálum hvar þátttakendur eða bjóðendur geti aflað sér upplýsinga um skyldur sínar varðandi skatta, umhverfisvernd, réttindi launþega og vinnuvernd og önnur skilyrði fyrir starfsemi á Íslandi eða í því sveitarfélagi þar sem verk verður unnið eða þjónusta innt af hendi. Þess ber þó að geta að forsendur fyrir vali tilboðs verða ávallt að tengjast hinu keypta eins og fram kemur í 1. mgr. 45. gr. Þar eru, líkt og rakið hefur verið áður, taldar upp í dæmaskyni forsendur sem geta legið til grundvallar mati á fjárhagslegri hagkvæmni. Þetta eru atriði eins og gæði, tæknilegir eiginleikar, umhverfislegir eiginlegar og rekstrarhagkvæmni. Af svipuðum meiði er ákvæði 18. gr. um félagslega eiginleika útboðs þar sem veitt er heimild til að takmarka rétt til þátttöku í útboði við verndaða vinnustaði eða miða við að framkvæmd samnings fari fram samkvæmt áætlun um verndaða vinnustaði þar sem flestir starfsmenn geta ekki sinnt starfi á venjulegum vinnumarkaði vegna starfsorkuskerðingar.
    Nefndin leggur til nokkrar breytingar á frumvarpinu.
     1.      Lögð er til breyting á skilgreiningum hugtakanna „lokað útboð“ og „rammasamningur“. Er aðeins um það að ræða að orðalag sé fært til betri vegar.
     2.      Lagðar eru til nokkrar málfars- og/eða orðalagsbreytingar til að auka skýrleika.
     3.      Lögð er til viðbót við 2. mgr. 19. gr. frumvarpsins í því skyni að kveða á um það í lögunum að sveitarfélögum sé heimilt að beita ákvæðum 2. þáttar frumvarpsins við innkaup sín í heild eða að hluta. Auk þess er í þessari viðbót mælt fyrir um að þau sveitarfélög sem ekki fari að ákvæðum 2. þáttar skuli setja sér reglur um innkaup sín. Nefndin leggur til að þetta ákvæði öðlist gildi 1. janúar 2008.
     4.      Lagðar eru til breytingar á 2. og 8. mgr. 37. gr. til að lagfæra tilvísanir í önnur ákvæði laganna.
     5.      Lagt er til að orðið „fjárhagslega“ í 1. mgr. 72. gr. falli brott til að textinn haldist sá sami og í gildandi lögum og verði í betra samræmi við 45. gr. frumvarpsins.
     6.      Lögð er til viðbót við 1. mgr. 75. gr. í þá veru að tryggja að þegar val tilboðs hefur grundvallast á öðrum forsendum en verði einu saman skuli í tilkynningu til þátttakenda eða bjóðenda koma fram nafn þess sem var valinn og upplýsingar um eiginleika og kosti þess tilboðs sem kaupandi valdi með hliðsjón af valforsendum útboðsgagna.
     7.      Lagt er til að úr 90. gr. falli brott ákvæði þar sem kveðið er á um að ábyrgðarmaður innkaupa heyri beint undir forstöðumann. Er ástæðan sú að á undanförnum árum hefur rekstrarumhverfi ríkisstofnana verið breytt í þá veru að völd og ábyrgð forstöðumanna í rekstrarmálum hafa verið aukin. Ekki er því talið rétt að takmarka völd forstöðumanna hvað varðar staðsetningu ábyrgðarmanns í skipuriti stofnunar.
     8.      Lagt er til að gerðar verði breytingar á fylgiskjali með frumvarpinu til að það verði í samræmi við tilskipunina eins og hún var aðlöguð að EES-samningnum með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 68/2006 frá 7. júní 2006.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Jóhanna Sigurðardóttir, Ásta Möller og Ögmundur Jónasson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með framangreindum breytingum sem gerð er tillaga um í sérstöku þingskjali.

Alþingi, 28. febr. 2007.



Pétur H. Blöndal,


form., frsm.


Svanhvít Aradóttir.


Lúðvík Bergvinsson,


með fyrirvara.



Birgir Ármannsson.


Ágúst Ólafur Ágústsson,


með fyrirvara.


Sæunn Stefánsdóttir.