Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 406. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 1136 — 406. mál.
menntamálaráðherra við fyrirspurn Kolbrúnar Halldórsdóttur og Jóns Bjarnasonar um tónlistarskóla.
1. Hversu margir tónlistarskólar eru starfræktir á Íslandi, hverjir eru þeir, hvert er rekstrarform þeirra og hversu margir starfa við þessa skóla?
Upplýsingar þær sem hér er leitað eftir lágu hvorki fyrir í ráðuneytinu né hjá Hagstofu Íslands.
Ráðuneytið leitaði til Sambands íslenskra sveitarfélaga til að kanna hvort þar væri unnt að fá upplýsingarnar. Þetta var gert strax og fyrirspurnin barst í lok nóvember. Í samtölum við starfsmenn þar kom fram að þessar upplýsingar lægju ekki fyrir, en í undirbúningi væri könnun á því hvar væru reknir tónlistarskólar, hvert rekstrarformið væri, hve margir störfuðu við skólana og hve margir nemendurnir væru. Ráðuneytinu bárust niðurstöður úr þessari könnun 22. febrúar sl. Könnunin var send til allra sveitarfélaga í byrjun janúar. Af 79 sveitarfélögum svöruðu 68 eða 86%, þar sem búa um 98% þjóðarinnar.
Yfirlit frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga er í fylgiskjali. Þar kemur fram að sveitarfélög reka 50 tónlistarskóla og að auk þess hefur Reykjavíkurborg gert þjónustusamninga við 19 aðila um rekstur tónlistarskóla. Eins og fram kemur af yfirlitinu er nokkuð um að sveitarfélög sameinist um rekstur tónlistarskóla. Stöðugildi við tónlistarskóla sem reknir eru af sveitarfélögum eru 369,9 en ekki kemur fram hve margir kenna við skólana 19 í Reykjavík. Nemendur í skólum reknum af sveitarfélögum eru samtals 8.281, en í skólunum 19 í Reykjavík eru nemendur 3.669, þar af eru 3.207 búsettir í Reykjavík.
2. Eru einhver sveitarfélög án tónlistarskóla?
Samkvæmt upplýsingum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga reka sjö sveitarfélög ekki tónlistarskóla en eitt þeirra, Vogar, kaupir þjónustu af öðru sveitarfélagi. Þetta eru eftirtalin sveitarfélög: Kópavogsbær, Kjósarhreppur, Sveitarfélagið Vogar (kaupir þjónustu), Reykhólahreppur, Kaldrananeshreppur, Bæjarhreppur, Borgarfjarðarhreppur.
3. Kemur til greina að breyta lögum þannig að rekstur tónlistarskóla verði eitt af lögboðnum verkefnum sveitarfélaga eins og dæmi eru um annars staðar á Norðurlöndunum?
Eins og fram kemur í svari ráðherra á þskj. 979 í 407. máli á þessu löggjafarþingi hefur nefnd verið að störfum á vegum ráðuneytisins frá 2004, sem fékk það hlutverk að endurskoða lög um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla, nr. 75/1985. Ástæða þess að ekki hefur tekist að ljúka þessari vinnu er að ýmis álitamál eru uppi milli ríkis og sveitarfélaga tengd efni laganna. Ekki hefur verið rætt í nefndinni að gera rekstur tónlistarskóla að lögboðnu verkefni sveitarfélaga. Benda má á að á grundvelli 78. gr. stjórnarskrárinnar, um sjálfstjórnarrétt sveitarfélaga, er ekki mögulegt að breyta lögum í þessa veru nema með samþykki Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Fulltrúar sveitarfélaga í endurskoðunarnefndinni telja að kennslukostnaður við tónlistarnám nemenda á framhaldsskólaaldri eigi að greiðast af ríkinu, en fulltrúar ríkisins eru þeirrar skoðunar að núverandi fyrirkomulag eigi að gilda um greiðslur sveitarfélaga á kennslukostnaði tónlistarskóla að óbreyttri kostnaðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga.
Nefna má að þegar ákveðið var að beyta fyrirkomulagi rekstrar Listdansskóla Íslands, í upphafi skólaársins 2005–2006, lagði menntamálaráðherra til að þar sem sveitarfélögin rækju grunnskólann en ríkið framhaldsskólann væri rökrétt að sveitarfélögin bæru ábyrgð á grunn- og miðstigi sama hvaða listnám nemendur stunduðu en framhaldsstig í viðkomandi listgrein yrði á ábyrgð ríkisins.
Samkomulag náðist ekki við fulltrúa sveitarfélaganna um þessa tillögu en forsenda þess að endurskoðunarnefndin geti lokið störfum er að samkomulag náist milli ríkisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga um fyrirkomulag og kostnaðarskiptingu vegna listnáms á öllum skólastigum.
4. Hvernig skiptist kostnaður skólanna:
a. kennsla,
b. stjórnun,
c. annar rekstrarkostnaður?
Leitað var upplýsinga hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga vegna þessa liðar fyrirspurnarinnar. Þar liggja ekki fyrir upplýsingar um hvernig kostnaður við tónlistarskóla skiptist milli kennslu, stjórnunar og annars rekstrarkostnaðar. Sambandið fær upplýsingar um rekstur sveitarfélaganna úr ársreikningum þeirra og eru þær greindar niður á málaflokka, t.d. fræðslu- og uppeldismál, og síðan er málaflokknum skipt niður í deildir, þ.e. grunnskóli, leikskóli, sameiginlegir liðir og önnur fræðslustarfsemi o.fl. Rekstrarframlög sveitarfélaga til tónlistarskóla færast á liðinn ,,önnur fræðslustarfsemi“, en ekki er hægt að sjá hvernig framlögin skiptast milli kennslu, stjórnunar og annars rekstrarkostnaðar.
Heildarrekstrarkostnaður sveitarfélaganna vegna reksturs tónlistarskóla árið 2005 var 2,5 milljarðar kr.
5. Hversu hátt hlutfall af heildarkostnaði við rekstur skólanna er greitt með skólagjöldum?
Úr ársreikningum sveitarfélaganna er aðeins hægt að sjá rekstrarframlag hvers sveitarfélags til tónlistarskóla en ekki kemur þar fram hvaða tekjur aðrir tónlistarskólar hafa. Ekki liggja heldur fyrir upplýsingar um tekjur af nemendagjöldum.
Fylgiskjal.
Samband íslenskra sveitarfélaga:
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 1136 — 406. mál.
Svar

Tónlistarskólar sveitarfélaga.
| Nemendur | |||||||
| Heiti | Rekstraraðilar | Stöðugildi | Á grunnskólaaldri | Á framhaldsskólaaldri | Alls | ||
| 1 | Tónlistarskóli Kjalarness | Reykjavík | 2,1 | 39 | 0 | 39 | 1 |
| 2 | Tónlistarskóli Hafnarfjarðar | Hafnarfjarðarkaupstaður | 36 | 469 | 138 | 623 | |
| 3 | Tónlistarskóli Seltjarnarness | Seltjarnarnes | 16,87 | 255 | 25 | 280 | |
| 4 | Tónlistarskóli Garðabæjar | Garðabær | 21 | 422 | 26 | 480 | |
| 5 | Listaskóli Mosfellsbæjar | Mosfellsbær | 10,85 | 177 | 25 | 214 | |
| 6 | Skólahljómsveit Mosfellsbæjar | 5,06 | 135 | 0 | 135 | ||
| 7 | Tónlistarskóli Reykjanesbæjar | Reykjanesbær | 24,4 | 601 | 38 | 670 | |
| 8 | Tónlistarskóli Grindavíkur | Grindavíkurbær | 6,8 | 198 | 3 | 213 | |
| 9 | Tónlistaskóli Sandgerðis | Sandgerðisbær | 4,67 | 140 | 6 | 188 | |
| 10 | Tónlistarskólinn í Garði | Sveitarfélagið Garður | 2,98 | 38 | 10 | 48 | |
| 11 | Tónlistaskóli Akraness | Akranes, Hvalfjarðarsveit | 16 | 300 | 40 | 378 | |
| 12 | Tónlistarskóli Borgarfjarðar | Borgarbyggð, Skorradalshreppur | 9,5 | 217 | 23 | 240 | |
| 13 | Tónlistarskóli Grundarfjarðar | Grundarfjarðarbær | 4 | 59 | 15 | 74 | |
| 14 | Tónlistarskóli Stykkishólms | Stykkishólmsbær | 6,5 | 93 | 18 | 120 | |
| 15 | Tónlistarskóli Dalasýslu | Dalabyggð | 2 | 42 | 0 | 49 | |
| 16 | Tónlistarskóli Ísafjarðar | Ísafjarðarbær | 15,29 | 260 | 29 | 342 | |
| 17 | Tónlistarskóli Ísafjarðar – útibú | Súðavíkurhreppur, Ísafjarðarbær | 0,75 | 15 | 0 | 15 | |
| 18 | Tónlistarskóli Tálknafjarðar | Tálknafjarðarhreppur | 1 | 30 | 0 | 30 | |
| 19 | Tónskóli Hólmavíkur | Strandabyggð | 2 | 63 | 0 | 63 | |
| 20 | Tónlistarskóli Vestur- Húnavatnssýslu | Húnaþing vestra | 5 | 104 | 2 | 117 | |
| 21 | Tónlistarskóli Austur-Húnvetninga |
Blönduósbær, Höfðahreppur, Húnavatnshreppur, Skagabyggð | 6 | 158 | 0 | 170 | |
| 22 | Tónlistarskóli Skagafjarðar | Sveitarfélagið Skagafjörður, Akrahreppur | 11,65 | 264 | 31 | 339 | |
| 23 | Tónlistarskóli Dalvíkur | Dalvíkurbyggð | 4,5 | 106 | 0 | 107 | |
| 24 | Tónlistarskólinn á Akureyri | Akureyrarbær | 27,65 | 330 | 92 | 454 | |
| 25 | Tónskóli Ólafsfjarðar | Fjallabyggð |
5 | 83 | 83 | ||
| 26 | Tónlistarskóli Siglufjarðar | 4,5 | 77 | 11 | 122 | 2 | |
| 27 | Tónlistarskóli Öxarfjarðarhéraðs | Norðurþing | 1,3 | 23 | 3 | 26 | 3 |
| 28 | Tónlistarskólinn á Raufarhöfn | 1 | 16 | 4 | 20 | ||
| 29 | Tónlistarskóli Húsavíkur | 8,7 | 314 | 11 | 390 | 4 | |
| 30 | Tónlistarskóli Eyjafjarðar | Eyjafjarðarsveit, Grýtubakkahreppur, Hörgárbyggð, Arnarneshreppur | 10,7 | 166 | 10 | 176 | |
| 31 | Tónlistarskóli Skútustaðahrepps | Skútustaðahreppur | 2 | 31 | 0 | 31 | |
| 32 | Tónlistarskóli Hafralækjarskóla | Aðaldælahreppur, Norðurþing, Tjörneshreppur | 2 | 47 | 0 | 60 | |
| 33 | Tónlistardeild Stórutjarnarskóla | Þingeyjarsveit | 2 | 35 | 0 | 37 | |
| 34 | Tónlistarskólinn á Laugum | 2,3 | 34 | 8 | 42 | ||
| 35 | Tónlistarskólinn á Þórshöfn | Langanesbyggð, Svalbarðshreppur | 1 | 49 | 1 | 50 | |
| 36 | Tónlistarskóli Seyðisfjarðar | Seyðisfjörður | 3,5 | 56 | 2 | 55 | |
| 37 | Tónlistarskóli Vopnafjarðar | Vopnafjörður | 2 | 53 | 1 | 54 | |
| 38 | Tónskóli Neskaupstaðar | Fjarðabyggð | 4,57 | 95 | 16 | 123 | |
| 39 | Tónlistarskóli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar | 5,15 | 129 | 13 | 142 | ||
| 40 | Tónlistarskóli Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar | 3 | 78 | 0 | 82 | ||
| 41 | Tónlistarskóli Austur-Héraðs, Egilsstöðum og Hallormsstað | Fljótsdalshérað, Fljótsdalshreppur | 7,8 | 128 | 13 | 155 | 5 |
| 42 | Tónlistarskólinn í Fellabæ | Fljótsdalshérað | 3,6 | 64 | 11 | 87 | |
| 43 | Tónlistarskólinn Í Brúarási | Fljótsdalshérað, | 1,7 | 19 | 0 | 25 | |
| 44 | Tónskóli Djúpavogs | Djúpavogshreppur | 1,18 | 25 | 0 | 26 | |
| 45 | Tónskóli Austur-Skaftafellssýslu | Hafnarbraut 27 | 7,36 | 85 | 12 | 103 | 6 |
| 46 | Tónlistarskóli Vestmannaeyja | Vestmannaeyjar | 9,36 | 157 | 19 | 176 | |
| 47 | Tónlistarskóli Árnesinga (12 kennslustaðir) | Sveitarfélagið Ölfus, Sveitarfélagið Árborg, Flóahreppur, Hveragerðisbær, Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur | 26,63 | 418 | 47 | 494 | |
| 48 | Tónskóli Mýrdælinga | Mýrdalshreppur | 1 | 42 | 1 | 47 | |
| 49 | Tónlistarskóli Skaftárhrepps | Skaftárhreppur | 1 | 21 | 0 | 21 | |
| 50 | Tónlistarskóli Rangæinga | Rangárþing ytra, Rangárþing eystra, Ásahreppur | 9 | 117 | 4 | 266 | 7 |
| 369,9 | 6.877 | 708 | 8.281 | ||||
| Athugasemdir: | |||||||
| 1 Þjónustusamningur við 19 einkaskóla. | |||||||
| 2 Að auki 34 í forskóla. | |||||||
| 3 Þrír í framhaldsskóla eða eldri. | |||||||
| 4 Að auki 31 fullorðinn og 34 leikskólabörn. | |||||||
| 5 Tónlistardeildin á Hallormsstað er rekin í samvinnu með Fljótsdalshreppi. | |||||||
| 6 168 nemendur alls ef forskólanemendur eru taldir með. | |||||||
| 7 Að auki 128 forskólanemendur á grunnskólaaldri. | |||||||
Tónlistarnemar í Reykjavík, samkvæmt námsstigum.
| Skóli | Fornám | Grunnnám | Miðnám | Framhaldsnám | Nám á háskólastigi | Samtals |
| Allegro | 8 | 83 | 22 | 113 | ||
| Domus Vox | 47 | 16 | 19 | 1 | 83 | |
| DoReMi | 42 | 138 | 22 | 2 | 204 | |
| Gítarskóli Íslands | 3 | 139 | 3 | 2 | 147 | |
| Nýi söngskólinn Hjartansmál | 2 | 49 | 36 | 25 | 6 | 118 |
| Nýi tónlistarskólinn | 4 | 145 | 39 | 23 | 1 | 212 |
| Píanóskóli Þorsteins Gauta | 11 | 115 | 26 | 5 | 157 | |
| Suzukitónlistarskólinn í Reykjavík | 181 | 28 | 209 | |||
| Söngskólinn í Reykjavík | 69 | 47 | 74 | 190 | ||
| Tónlistarskóli Árbæjar | 39 | 141 | 5 | 2 | 187 | |
| Tónlistarskóli FÍH | 50 | 52 | 29 | 131 | ||
| Tónlistarskólinn í Grafarvogi | 30 | 98 | 54 | 11 | 193 | |
| Tónlistarskólinn í Reykjavík | 4 | 29 | 92 | 77 | 2 | 204 |
| Tónmenntaskóli Reykjavíkur | 42 | 139 | 52 | 2 | 235 | |
| Tónskóli Sigursveins | 132 | 354 | 104 | 48 | 638 | |
| Tónskóli Eddu Borg | 31 | 124 | 19 | 174 | ||
| Tónskóli grunnskólanna í Grafarvogi | 13 | 34 | 8 | 1 | 56 | |
| Tónskóli Hörpunnar | 93 | 246 | 9 | 1 | 349 | |
| Tónstofa Valgerðar | 66 | 3 | 69 | |||
| Samtals | 501 | 2.216 | 640 | 303 | 9 | 3.669 |
Fjöldi reykvískra tónlistarnemenda, eftir póstnúmeri.
| Póstnúmer. |
|||||||||||||
| 101 | 103 | 104 | 105 | 107 | 108 | 109 | 110 | 111 | 112 | 113 | 116 | Samtals | |
| Allegro | 11 | 2 | 5 | 14 | 11 | 9 | 7 | 8 | 9 | 3 | 79 | ||
| Domus Vox | 13 | 2 | 3 | 14 | 9 | 11 | 5 | 5 | 2 | 3 | 4 | 71 | |
| DoReMi | 34 | 1 | 131 | 1 | 1 | 168 | |||||||
| Gítarskóli Íslands | 9 | 1 | 13 | 7 | 10 | 20 | 6 | 5 | 13 | 84 | |||
| Nýi söngskólinn Hjartansmál | 14 | 1 | 10 | 13 | 9 | 9 | 5 | 4 | 3 | 13 | 1 | 82 | |
| Nýi tónlistarskólinn | 6 | 4 | 34 | 34 | 10 | 72 | 7 | 7 | 9 | 1 | 184 | ||
| Píanóskóli Þorsteins Gauta | 15 | 9 | 27 | 6 | 40 | 9 | 7 | 3 | 5 | 4 | 1 | 126 | |
| Suzukitónlistarskólinn í Reykjavík | 26 | 1 | 14 | 26 | 21 | 16 | 5 | 13 | 20 | 3 | 145 | ||
| Söngskólinn í Reykjavík | 29 | 1 | 15 | 22 | 15 | 17 | 26 | 11 | 4 | 18 | 5 | 1 | 164 |
| Tónlistarskóli Árbæjar | 1 | 1 | 2 | 1 | 96 | 1 | 4 | 79 | 185 | ||||
| Tónlistarskóli FÍH | 26 | 2 | 7 | 20 | 24 | 11 | 5 | 7 | 4 | 6 | 1 | 113 | |
| Tónlistarskólinn í Grafarvogi | 2 | 4 | 4 | 2 | 5 | 167 | 5 | 1 | 190 | ||||
| Tónlistarskólinn í Landakoti | 19 | 2 | 8 | 1 | 1 | 31 | |||||||
| Tónlistarskólinn í Reykjavík | 45 | 12 | 28 | 34 | 19 | 5 | 4 | 2 | 11 | 160 | |||
| Tónmenntaskóli Reykjavíkur | 73 | 1 | 15 | 59 | 46 | 28 | 5 | 2 | 4 | 233 | |||
| Tónskóli Sigursveins | 57 | 2 | 78 | 134 | 32 | 62 | 40 | 89 | 49 | 30 | 11 | 584 | |
| Tónskóli Eddu Borg | 1 | 6 | 4 | 142 | 4 | 4 | 1 | 3 | 165 | ||||
| Tónskóli grunnskólanna í Grafarvogi | 54 | 54 | |||||||||||
| Tónskóli Hörpunnar | 1 | 4 | 1 | 22 | 4 | 27 | 2 | 274 | 2 | 2 | 339 | ||
| Tónstofa Valgerðar | 5 | 1 | 9 | 13 | 3 | 6 | 2 | 2 | 9 | 50 | |||
| Samtals | 384 | 18 | 231 | 426 | 369 | 353 | 277 | 297 | 75 | 650 | 122 | 5 | 3.207 |
| Reykjavíkurborg greiðir framlag með 2.554 nemendum í tónlistarskólum. | |||||||||||||