Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 530. máls.
um frv. til l. um breyt. á l. nr. 55/1996, um tæknifrjóvgun, með síðari breytingum.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Svein Magnússon og Ágúst Geir Ágústsson frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti, Irmu Sjöfn Óskarsdóttur frá Biskupsstofu, Halldór Kolbeinsson frá siðfræðinefnd Landspítala – háskólasjúkrahúss, Reyni Tómas Geirsson frá Landspítala – háskólasjúkrahúsi og Þórð Óskarsson og Guðmund Arason frá ART Medica.
Umsagnir um málið hafa borist frá Ingunni Huld Sævarsdóttur, MND-félaginu, Fjölbrautaskólanum við Ármúla, Lífsvernd, Læknafélagi Íslands, Andlegu þjóðarráði Baháía á Íslandi, Krabbameinsfélagi Íslands, Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, biskupi Íslands, Tryggingastofnun ríkisins, Háskólanum á Akureyri, Lyfjastofnun, Persónuvernd, landlækni, Landspítala – háskólasjúkrahúsi, Siðmennt og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Með frumvarpi þessu er lagt til að heimilt verði að nota umframfósturvísa til stofnfrumurannsókna, að uppfylltum tilteknum skilyrðum, í því skyni að afla þekkingar í líf- og læknisfræði eða til að bæta heilsu og lækna sjúkdóma.
Ýmis siðferðileg álitaefni voru rædd í nefndinni í tengslum við meðferð þessa máls.
Nefndin leggur m.a. til eftirfarandi breytingar á frumvarpinu:
1. Lagt er til að við 1. mgr. 2. gr. laganna bætist nýr málsliður þar sem kveðið verði á um að ráðherra sé heimilt að binda leyfi heilbrigðisstofnana til að framkvæma tæknifrjóvgun sérstökum skilyrðum, m.a. um hæfni og þekkingu starfsmanna rannsóknastofa, eftirlit heilbrigðisyfirvalda, upplýsingagjöf og aðstöðu. Með þessari breytingu er gætt samræmis við 2. gr. frumvarps þessa.
2. Lagt er til að við lögin bætist bráðabirgðaákvæði þar sem kveðið verði á um að þau skuli endurskoðuð fyrir 1. janúar 2008. Nefndin telur brýnt að lögin verði tekin til heildarendurskoðunar þar sem m.a. verði farið yfir ákvæði laganna um tæknifrjóvgun með tilliti til möguleika einstæðra kvenna og kvenna með sérstæða sjúkdóma til að gangast undir tæknifrjóvgunaraðgerð. Nefndin telur jafnframt nauðsynlegt að endurskoða ákvæði laganna um eftirlit og skilyrði en fyrir liggja álitsgerðir sérfræðinga og skýrsla frá umboðsmanni barna sem styðjast mætti við í því skyni.
Valdimar L. Friðriksson áheyrnarfulltrúi nefndarinnar er samþykkur áliti þessu.
Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með framangreindum breytingum sem gerð er tillaga um í sérstöku þingskjali.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Prentað upp.
Þskj. 1156 — 530. mál.
Viðbót.
Nefndarálit
um frv. til l. um breyt. á l. nr. 55/1996, um tæknifrjóvgun, með síðari breytingum.
Frá heilbrigðis- og trygginganefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Svein Magnússon og Ágúst Geir Ágústsson frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti, Irmu Sjöfn Óskarsdóttur frá Biskupsstofu, Halldór Kolbeinsson frá siðfræðinefnd Landspítala – háskólasjúkrahúss, Reyni Tómas Geirsson frá Landspítala – háskólasjúkrahúsi og Þórð Óskarsson og Guðmund Arason frá ART Medica.
Umsagnir um málið hafa borist frá Ingunni Huld Sævarsdóttur, MND-félaginu, Fjölbrautaskólanum við Ármúla, Lífsvernd, Læknafélagi Íslands, Andlegu þjóðarráði Baháía á Íslandi, Krabbameinsfélagi Íslands, Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, biskupi Íslands, Tryggingastofnun ríkisins, Háskólanum á Akureyri, Lyfjastofnun, Persónuvernd, landlækni, Landspítala – háskólasjúkrahúsi, Siðmennt og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Með frumvarpi þessu er lagt til að heimilt verði að nota umframfósturvísa til stofnfrumurannsókna, að uppfylltum tilteknum skilyrðum, í því skyni að afla þekkingar í líf- og læknisfræði eða til að bæta heilsu og lækna sjúkdóma.
Ýmis siðferðileg álitaefni voru rædd í nefndinni í tengslum við meðferð þessa máls.
Nefndin leggur m.a. til eftirfarandi breytingar á frumvarpinu:
1. Lagt er til að við 1. mgr. 2. gr. laganna bætist nýr málsliður þar sem kveðið verði á um að ráðherra sé heimilt að binda leyfi heilbrigðisstofnana til að framkvæma tæknifrjóvgun sérstökum skilyrðum, m.a. um hæfni og þekkingu starfsmanna rannsóknastofa, eftirlit heilbrigðisyfirvalda, upplýsingagjöf og aðstöðu. Með þessari breytingu er gætt samræmis við 2. gr. frumvarps þessa.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
2. Lagt er til að við lögin bætist bráðabirgðaákvæði þar sem kveðið verði á um að þau skuli endurskoðuð fyrir 1. janúar 2008. Nefndin telur brýnt að lögin verði tekin til heildarendurskoðunar þar sem m.a. verði farið yfir ákvæði laganna um tæknifrjóvgun með tilliti til möguleika einstæðra kvenna og kvenna með sérstæða sjúkdóma til að gangast undir tæknifrjóvgunaraðgerð. Nefndin telur jafnframt nauðsynlegt að endurskoða ákvæði laganna um eftirlit og skilyrði en fyrir liggja álitsgerðir sérfræðinga og skýrsla frá umboðsmanni barna sem styðjast mætti við í því skyni.
Valdimar L. Friðriksson áheyrnarfulltrúi nefndarinnar er samþykkur áliti þessu.
Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með framangreindum breytingum sem gerð er tillaga um í sérstöku þingskjali.
Alþingi, 13. mars 2007.
Guðjón Ólafur Jónsson,
form., frsm.
Guðjón Hjörleifsson.
Ásta R. Jóhannesdóttir.
Guðrún Ögmundsdóttir.
Pétur H. Blöndal.
Kristján L. Möller.
Gunnar Örlygsson.
Sæunn Stefánsdóttir.
Þuríður Backman,
með fyrirvara.