Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 530. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 1157  —  530. mál.




Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 55/1996, um tæknifrjóvgun, með síðari breytingum.

Frá heilbrigðis- og trygginganefnd.



     1.      Við 2. gr.
                  a.      Við bætist nýr liður er verði a-liður, svohljóðandi: Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Ráðherra er heimilt að binda slíkt leyfi sérstökum skilyrðum, m.a. um hæfni og þekkingu starfsmanna rannsóknastofu, eftirlit heilbrigðisyfirvalda, upplýsingagjöf og aðstöðu.
                  b.      Í stað orðsins „rannsóknarstofnunar“ í 2. efnismálsl. komi: rannsóknastofu.
     2.      Á eftir orðunum „afturkallað samþykki sitt“ í 2. efnismgr. 3. gr. komi: skv. 5. mgr.
     3.      Á eftir 8. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
              Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða er orðast svo:
              Endurskoða skal lög þessi fyrir 1. janúar 2008.