Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 534. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 1185 — 534. mál.
félagsmálaráðherra við fyrirspurn Helga Hjörvars um atvinnumál fatlaðra.
1. Hvernig miðar undirbúningi flutnings atvinnumála fatlaðra frá svæðisskrifstofum um málefni fatlaðra yfir til Vinnumálstofnunar í kjölfar samþykktar laga um vinnumarkaðsaðgerðir, nr. 55/2006, sbr. f-lið 12. gr. laganna og nefndarálit félagsmálanefndar á þskj. 1340 á 132. löggjafarþingi?
Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 15. nóvember 2005, sem gerð var til að greiða fyrir samkomulagi Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins um áframhaldandi gildi kjarasamninga, lýsti ríkisstjórnin sig reiðubúna til samstarfs um leiðir til að efla starfsendurhæfingarúrræði og draga úr örorku. Í framhaldi af því skipaði forsætisráðherra nefnd í febrúar 2006 til að gera tillögur um samræmingu á viðmiðunum til örorkumats í almannatryggingakerfinu annars vegar og lífeyrissjóðakerfinu hins vegar þar sem fyrst og fremst yrði horft til vangetu einstaklinga til að afla sér tekna. Nefndinni var jafnframt falið að fjalla um leiðir til að efla starfsendurhæfingu í því skyni að hjálpa einstaklingum sem af einhverjum ástæðum hafa ekki fest rætur á vinnumarkaði, m.a. vegna örorku. Nefndin hefur nú lokið störfum og kynnti 6. mars sl. skýrslu og tillögur sem miða að því að styrkja þá sem höllum fæti standa til aukinnar þátttöku á vinnumarkaði. Félagsmálaráðuneytið átti fulltrúa í nefndinni. Tillögurnar varða atvinnumál fatlaðra á margvíslegan hátt og því þótti skynsamlegt að tengja frekari yfirfærslu atvinnumála fatlaðra til Vinnumálastofnunar við starf nefndarinnar. Nú liggur fyrir að skipuð verður sérstök framkvæmdanefnd til þess að vinna að útfærslu tillagnanna sem m.a. verður skipuð fulltrúa félagsmálaráðuneytisins. Í bréfi þar sem óskað er eftir tilnefningum í framkvæmdanefndina segir m.a.: „Einnig er gert ráð fyrir að starfsendurhæfing verði stórefld og skipulag hennar bætt þar sem m.a. verður lögð áhersla á að saman fari læknisfræðileg endurhæfing og starfsendurhæfing eftir því sem við á og að hún hefjist eins fljótt og hægt er.“ Í fyrirliggjandi tillögum sem nú verða settar í framkvæmdaferli er m.a. gert ráð fyrir því að komið verði á fót einstaklingsmiðaðri þjónustu með leiðbeinanda sem heldur utan um einstaklinginn og hans mál til lengri tíma og verður tengiliður hans við ýmsa aðila, t.d. lækna, Tryggingastofnun ríkisins, lífeyrissjóði, Vinnumálastofnun og endurhæfingaraðila. Fram kemur að bent hafi verið á þann möguleika að slíkir leiðbeinendur verð ráðnir úr röðum örorkulífeyrisþega. Af hálfu félagsmálaráðuneytisins verður lögð áhersla á að sérfræðingur á sviði málefna fatlaðra annars vegar og frá Vinnumálastofnun hins vegar komi að framkvæmd tillagnanna þannig að tryggt verði að sjónarmið svæðisskrifstofa og Vinnumálastofnunar endurspeglist í flutningi atvinnumála fatlaðra. Mikilvægt er að viðhalda því sem vel er gert, svo sem á sviði hæfingar, á sama tíma og ný viðhorf verða fest í sessi. Jafnframt er nauðsynlegt að á hverjum tíma bjóðist úrræði til þess að efla fatlaða einstaklinga til þátttöku í samfélaginu.
Vinnumálastofnun hefur auk þess sem að framan greinir sinnt atvinnumálum fatlaðra og rekur m.a. sérstaka deild fyrir vinnumiðlun fatlaðra á þjónustuskrifstofu sinni á höfuðborgarsvæðinu. Þá hefur Vinnumálastofnun efnt til margvíslegs samstarfs og samvinnu við hagsmunaaðila í málaflokknum og stendur m.a. fyrir viðamikilli ráðstefnu 22. mars nk. um ný tækifæri í atvinnuþátttöku. Að ráðstefnunni standa jafnframt Öryrkjabandalag Íslands og aðilar vinnumarkaðarins og innlendir og erlendir sérfræðingar taka þátt í henni.
2. Hvenær er stefnt að því að þeim flutningi verði lokið?
Stefnt er að því að flutningnum verði að fullu lokið fyrri hluta árs 2009.
3. Mun þessi flutningur fara fram í samráði við samtök fatlaðra og heildarsamtök vinnu- og hæfingarstaða fatlaðra? Ef svo er, hvernig verður því samráði háttað?
Fjallað verður um flutninginn og þær breytingar sem honum tengjast og haft samráð við þá sem hagsmuna eiga að gæta m.a. á reglulegum samráðsfundum. Sú ráðstefna sem vísað er til hér að framan er liður í samráði sem félagsmálaráðuneytið og stofnanir þess telja mikilvægt að byggja ákvarðanatöku og vinnubrögð sín á.
4. Hefur ráðherra skilgreint markmið með flutningnum?
Félagsmálaráðherra hefur skilgreint eftirfarandi markmið með flutningnum: Að auka atvinnuþátttöku fatlaðra á almennum vinnumarkaði, að stuðla að skilvirkari stjórnsýslu, ráðgjöf og stuðningi, að auka almenn lífsgæði fatlaðs fólks og að sama fyrirkomulag þjónustu og ráðgjafar gildi gagnvart öllum þeim sem þurfa á henni að halda. Þá er á því byggt að horft sé til þátta sem geta styrkt stöðu fatlaðra til atvinnuþátttöku og tekjuöflunar.
Jafnframt endurspeglast markmið félagsmálaráðherra í nefnd um endurskoðun örorkumats og eflingu starfsendurhæfingar sem kynnti niðurstöður sínar 6. mars sl. Þar kemur fram að nefndin sé sammála um að meginmarkmið með endurskoðun á örorkumati og aukinni áherslu á starfsendurhæfingarúrræði sé að bæta hag þeirra einstaklinga sem búa við skerta starfsorku vegna örorku og auka atvinnuþátttöku þeirra. Nefndin leggur þess vegna áherslu á að horft verði á getu einstaklinga til að afla sér tekna og að örorkubætur verði að jafnaði háðar skilyrðum um atvinnuleit og endurhæfingu. Einnig þurfi að einfalda kerfið og gera samspil allra þátta samfellt og rökrétt.
Félagsmálaráðuneytið leggur eins og áður hefur komið fram í svari við fyrirspurn þessari áherslu á að í þeim breytingum sem fram undan eru verði horft til sérstöðu einstaklinga sem fyrst og fremst geta nýtt sér hæfingu og að því sem vel hefur verið gert á því sviði verði við haldið um leið og nýjar aðferðir og ný tækifæri verða fest í sessi. M.a. er nauðsynlegt að á hverjum tíma bjóðist úrræði til þess að efla fatlaða einstaklinga til þátttöku í samfélaginu.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 1185 — 534. mál.
Svar