Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 654. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 1216  —  654. mál.




Frumvarp til laga



um breytingar á ýmsum lögum er varða útgáfu leyfa o.fl.

(Eftir 2. umr., 15. mars.)



I. KAFLI
Breyting á iðnaðarlögum, nr. 42 18. maí 1978, með síðari breytingum.
1. gr.

    Í stað orðanna „Lögreglustjórar“, „lögreglustjóri“ og „lögreglustjóra“ í 1. málsl. 3. mgr. 2. gr., 2. málsl. 1. mgr. 10. gr., 1. mgr. og 1. málsl. 2. mgr. 12. gr. og 1. og 2. málsl. 2. mgr. 13. gr. laganna kemur í viðeigandi tölu og beygingarfalli: sýslumaður.

II. KAFLI
Breyting á lögum um lögskráningu sjómanna, nr. 43 30. mars 1987,
með síðari breytingum.

2. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:
     a.      Á eftir orðinu „Tollstjórar“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: og sýslumenn, að undanskildum sýslumönnunum í Reykjavík og Keflavík.
     b.      Á eftir orðinu „tollstjórum“ í 2. og 3. málsl. 1. mgr. kemur: og sýslumönnum.
     c.      Á eftir orðinu „tollstjóra“ fyrra sinni í 1. málsl. 2. mgr. kemur: og sýslumanna.
     d.      Á eftir orðinu „tollstjóra“ síðara sinni í 1. málsl. 2. mgr. kemur: eða sýslumanna.
     e.      Á eftir orðinu „tollstjóra“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: eða sýslumanns.
     f.      3. málsl. 2. mgr. orðast svo: Tollstjórar og sýslumenn skulu hafa eftirlit með lögskráningarfulltrúum í umdæmum sínum.

III. KAFLI
Breyting á umferðarlögum, nr. 50 30. mars 1987, með síðari breytingum.
3. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 48. gr. laganna:
     a.      1. málsl. 1. mgr. orðast svo: Enginn má stjórna bifreið eða bifhjóli nema hann hafi til þess gilt ökuskírteini sem ríkislögreglustjórinn gefur út.
     b.      Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Ríkislögreglustjórinn getur falið sýslumönnum og lögreglustjórum að annast útgáfu ökuskírteina.

4. gr.

    Í stað orðsins „lögreglustjóri“ í 1. og 2. málsl. 1. mgr. 53. gr. laganna kemur: útgefandi ökuréttinda.

5. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 56. gr. laganna:
     a.      Í stað orðsins „ríkislögreglustjóra“ í 1. mgr. kemur: sýslumanns, að undanskildum sýslumanninum í Reykjavík, en lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu fer með það hlutverk.
     b.      Í stað orðsins „Ríkislögreglustjóri“ í 6. mgr. kemur: Útgefandi ökukennararéttinda.

6. gr.

    Í stað orðanna „ríkislögreglustjóri“ og „ríkislögreglustjóra“ í 1. málsl. 1. mgr. og 1. málsl. 3. mgr. 106. gr. laganna kemur í viðeigandi beygingarfalli: lögreglustjóri.

    IV. KAFLI
    Breyting á lögum um framkvæmdarvald ríkisins í héraði, nr. 92 1. júní 1989,
með síðari breytingum.

    7. gr.

    Við 3. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Sýslumenn í hverju umdæmi skulu veita leyfisumsóknum viðtöku fyrir hönd lögreglustjóra umdæmisins.

8. gr.

    Við 6. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Sýslumenn og löglærðir fulltrúar þeirra skulu bera einkennisfatnað eftir því sem ráðherra ákveður í reglugerð.

V. KAFLI
Breyting á lögum um sinubrennur og meðferð elds á víðavangi,
nr. 61 1. júní 1992, með síðari breytingum.

9. gr.

    Á eftir orðinu „sýslumanns“ í 1. gr. laganna kemur: að höfðu samráði við lögreglustjóra.

VI. KAFLI
Breyting á lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu,
nr. 36 4. maí 1993, með síðari breytingum.

10. gr.

    Í stað orðsins „lögreglustjóra“ í 1. málsl. 2. mgr. 3. gr. laganna kemur: sýslumanns, að höfðu samráði við lögreglustjóra.

VII. KAFLI
Breyting á vopnalögum, nr. 16 25. mars 1998, með síðari breytingum.
11. gr.

    Í stað orðsins „ríkislögreglustjóra“ í 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. laganna kemur: lögreglustjóra; og orðið „lögreglustjóra“ í 2. málsl. sömu málsgreinar fellur brott.

12. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. laganna:
     a.      Í stað orðanna „nema með leyfi ríkislögreglustjóra“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: í atvinnuskyni nema með leyfi lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.
     b.      3. málsl. 1. mgr. fellur brott.
     c.      Orðið „lögreglustjóra“ í 4. málsl. 1. mgr. fellur brott.
     d.      Í stað orðsins „Ríkislögreglustjóra“ í 2. mgr. og 2. málsl. 3. mgr. kemur: Lögreglustjóra.
     e.      Í stað orðsins „ríkislögreglustjóra“ í 1. málsl. 7. mgr. kemur: lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, að fenginni umsögn ríkislögreglustjóra.
     f.      Í stað orðanna „Ríkislögreglustjóri getur og“ í 2. málsl. 7. mgr. kemur: Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu getur og, að fenginni umsögn ríkislögreglustjóra.

13. gr.

    1. mgr. 6. gr. laganna orðast svo:
    Enginn má flytja úr landi skotvopn, skotfæri, sprengiefni eða skotelda nema með leyfi lögreglustjóra, enda liggi fyrir staðfesting frá þar til bærum yfirvöldum um heimild fyrir innflutningi. Ákvæði þetta á aðeins við þegar um varanlegan útflutning er að ræða.

14. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. laganna:
     a.      Í stað orðsins „ríkislögreglustjóra“ í 1. mgr. kemur: lögreglustjóra.
     b.      4. mgr. orðast svo:
                  Í sérstökum tilvikum er heimilt að veita félagasamtökum leyfi til að selja skotelda í smásölu.
     c.      Orðin „lögreglustjóra og“ í 6. mgr. falla brott.
     d.      Í stað orðsins „ríkislögreglustjóra“ í 7. mgr. kemur: lögreglustjóra.

15. gr.

    Í stað orðsins „Ríkislögreglustjóra“ í 1. mgr. 8. gr. laganna kemur: Lögreglustjóra.

16. gr.

    2. mgr. 14. gr. laganna fellur brott.

17. gr.

    Í stað orðanna „Ríkislögreglustjóri“ og „ríkislögreglustjóra“ í 1. málsl. 1. mgr. og 1. málsl. 2. mgr. 15. gr. laganna kemur í viðeigandi beygingarfalli: lögreglustjóri.

18. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 17. gr. laganna:
     a.      Í stað orðsins „ríkislögreglustjóra“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: lögreglustjóra.
     b.      2. málsl. 1. mgr. fellur brott.

19. gr.

    Síðari málsliður 4. mgr. 30. gr. laganna orðast svo: Sama gildir um úðavopn, svo sem gasvopn og táragasvopn.

VIII. KAFLI
Breyting á lögum um verslunaratvinnu, nr. 28 8. apríl 1998, með síðari breytingum.
20. gr.

    Í stað orðsins „lögreglustjóra“ í 1. mgr. 12. gr. og 1. og 2. málsl. 2. mgr. 20. gr. og orðsins „lögreglustjóri“ í 1. málsl. 5. mgr. 23. gr. laganna kemur í viðeigandi beygingarfalli: sýslumaður.

IX. KAFLI

Gildistaka.
21. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.