Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 657. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 1221  —  657. mál.




Svar



umhverfisráðherra við fyrirspurn Jóns Bjarnasonar um Múlavirkjun á Snæfellsnesi.

     1.      Hefur ráðherra kynnt sér hvort fylgt hafi verið lögum og reglum um undirbúning, útgáfu leyfa, hönnun og byggingu Múlavirkjunar á Snæfellsnesi?
    Þau lög sem heyra undir umhverfisráðuneytið og eiga við um þá framkvæmd sem hér um ræðir eru lög um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000, og skipulags- og byggingarlög, nr. 73/1997. Við vinnslu á svari þessu óskaði ráðuneytið eftir upplýsingum frá Skipulagsstofnun vegna hlutverks stofnunarinnar varðandi ákvörðun um matsskyldu Múlavirkjunar. Með bréfi dags. 23. júní 2003 tilkynnti Múlavirkjun ehf. Skipulagsstofnun um þau áform sín að reisa allt að 2 MW virkjun, Múlavirkjun, í Straumfjarðará við útfall Baulárvallavatns. Tilkynningin var í samræmi við a-lið 3. tölul. 2. viðauka laga um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/ 2000. Framkvæmdin var tilkynningarskyld til Skipulagsstofnunar sem tók ákvörðun um hvort framkvæmdin skyldi háð mati á umhverfisáhrifum. Samkvæmt tilkynningu Múlavirkjunar ehf. var áformað að steypa allt að 8 m háa og 50 m langa stíflu í farvegi Straumfjarðarár um 200 m neðan við ós Baulárvallavatns. Stöðvarhúsið yrði fellt inn í landið um 1,5 km neðan stíflunnar. Aðrennslislögn, 1,2 m í þvermál, yrði grafin niður frá stíflu að stöðvarhúsi vestan árinnar. Fyrir ofan stífluna var gert ráð fyrir um 2,2 ha inntakslóni sem mundi ekki ná alla leið að Baulárvallavatni. Straumfjarðará rynni því óröskuð um 10–20 m áður en hún færi í lónið. Ekki var gert ráð fyrir því að vatnsborð Baulárvallavatns breyttist í kjölfar framkvæmdanna. 7. nóvember 2003 tók Skipulagsstofnun þá ákvörðun að allt að 1,9 MW Múlavirkjun í Straumfjarðará í Eyja- og Miklaholtshreppi væri ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og skyldi því ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Í ákvörðun Skipulagsstofnunar kemur fram að framkvæmdirnar væru háðar framkvæmda- og byggingarleyfi Eyja- og Miklaholtshrepps. Framangreind ákvörðun Skipulagsstofnunar var ekki kærð til umhverfisráðherra eins og heimilt er að gera á grundvelli laga um mat á umhverfisáhrifum og kom umhverfisráðherra því ekki að þessu máli.
    11. mars 2004 tilkynnti Múlavirkjun ehf. til Skipulagsstofnunar fyrirhugaða stíflu við útfall Hraunsfjarðarvatns í Helgafellssveit, en úr vatninu rennur Vatnaá beint í Baulárvallavatn. Skipulagsstofnun tók ákvörðun um matsskyldu framkvæmdanna 25. mars 2004 og var niðurstaða stofnunarinnar sú að framkvæmdin skyldi ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Þessi ákvörðun Skipulagsstofnunar var ekki kærð til umhverfisráðherra.
    Sveitarstjórnir gefa út byggingar- og framkvæmdaleyfi, sbr. 27. gr. og 43. gr. skipulags- og byggingarlaga, og annast eftirlit með framkvæmdum. Samkvæmt upplýsingum sem ráðuneytið hefur fengið hafa framangreind leyfi verið gefin út. Þá gaf iðnaðarráðherra út virkjunarleyfi fyrir Múlavirkjun 13. maí 2004 á grundvelli raforkulaga, nr. 65/2003.

     2.      Hvers vegna fór Múlavirkjun á Snæfellsnesi ekki í lögformlegt mat á umhverfisáhrifum?
    Eins og fram kom hér að framan var framkvæmdin tilkynnt til Skipulagsstofnunar og eftir að stofnunin hafði farið yfir málið lögum samkvæmt var niðurstaða stofnunarinnar að framkvæmdin væri ekki matsskyld og því þyrfti ekki að meta umhverfisáhrif hennar. Við umfjöllun um málið leitaði Skipulagsstofnun umsagnar Eyja- og Miklaholtshrepps, Fornleifaverndar ríkisins, Umhverfisstofnunar og veiðimálastjóra og var í umsögnum þessum ekki talið að framkvæmdin skyldi háð mati á umhverfisáhrifum.

     3.      Hvernig hyggst ráðherra bregðast við ef staðreynt er að virkjunin sé með allt öðrum hætti en upphaflega fékkst leyfi fyrir og skaðleg umhverfisáhrif mannvirkjanna mun meiri en ráð var fyrir gert?
    Í október 2004, eftir að leyfi fyrir framkvæmdinni höfðu verið gefin út, bárust Skipulagsstofnun ábendingar vegna mikils rasks á framkvæmdasvæðinu og gruns um ósamræmi framkvæmda við yfirlýst og samþykkt áform. Af þeim sökum óskaði Skipulagsstofnun eftir upplýsingum frá sveitarstjórn og byggingarfulltrúa Eyja- og Miklaholtshrepps um samræmi framkvæmdanna við fyrirliggjandi deiliskipulag, en deiliskipulag fyrir framkvæmdirnar hafði verið samþykkt í sveitarstjórn 6. október 2003. Þær upplýsingar fengust að framkvæmdin væri í öllum meginatriðum í samræmi við samþykkt deiliskipulag, fyrir utan staðsetningu slóðar sem hefði verið lagfærð fyrir veiðifélag Baulárvallavatns. Eftir áframhaldandi kvartanir og ábendingar til Skipulagsstofnunar fór fulltrúi hennar á vettvang í maí 2005 til að skoða mannvirki og framkvæmdasvæðið og var það niðurstaða Skipulagsstofnunar eftir þessa skoðun að stærð stöðvarhúss væri ekki í samræmi við gögn í tilkynningu til Skipulagsstofnunar og deiliskipulag svæðisins. Jafnframt að mun meira rask væri við Hraunsfjarðarvatn en ætla mátti af upplýsingum frá framkvæmdaraðila. Þessari niðurstöðu var m.a. komið á framfæri við sveitarstjórn og framkvæmdaraðila. Í september 2005 bárust á ný ábendingar til Skipulagsstofnunar, m.a. frá Umhverfisstofnun, um að stíflan í Straumfjarðará væri hærri en gert hefði verið ráð fyrir sem talið var valda því að samfellt vatnsborð væri frá stíflu og upp í Baulárvallavatn og að vatnsborð Baulárvallavatns hefði hækkað umtalsvert vegna þessa. Á grundvelli þessara ábendinga sendi Skipulagsstofnun Eyja- og Miklaholtshreppi bréf þar sem gerð er grein fyrir þessum ábendingum og var tekið fram að sveitarstjórnir færu með eftirlit með því hvort framkvæmdir væru í samræmi við framkvæmda- og byggingarleyfi. Af hálfu Múlavirkjunar var þá viðurkennt að stíflan í Straumfjarðará væri hærri en áform hefðu verið um. Framkvæmdaraðili boðaði í framhaldinu úrbætur og var fundað um málið með honum, Orkustofnun, Umhverfisstofnun, Skipulagsstofnun og iðnaðarráðuneytinu. Í máli þessu hefur Skipulagsstofnun því gert framkvæmdaraðila og leyfisveitendum grein fyrir athugasemdum sínum um framkvæmdina. Samkvæmt upplýsingum frá iðnaðarráðuneytinu hefur virkjunarleyfi fyrir Múlavirkjun verið til skoðunar vegna þeirra breytinga sem orðið hafa á framkvæmdinni og hefur iðnaðarráðuneytið óskað eftir því að framkvæmdaraðili sækti um nýtt virkjunarleyfi. Nú mun vera beðið eftir því af hálfu iðnaðarráðuneytisins að framkvæmdaraðili leggi fram tilskilin gögn og upplýsingar.