Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 666. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 1228 — 666. mál.
félagsmálaráðherra við fyrirspurn Sæunnar Stefánsdóttur um félagsþjónustu sveitarfélaga við aldraða árin 2004–2006.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hve margir aldraðir, 67 ára og eldri, hafa notið heimaþjónustu sveitarfélaga?
2. Hvað fá notendur að jafnaði oft heimsókn í viku og í hve marga tíma? Hver er hámarksfjöldi heimsókna?
3. Stendur öldruðum til boða heimsendur matur og hve margir nýta þá þjónustu að jafnaði? Býðst heimsending matar alla daga vikunnar eða einungis virka daga?
4. Er veitt akstursþjónusta fyrir aldraða og hve margir nýta sér hana að jafnaði?
5. Er skipulagt félagsstarf fyrir aldraða á vegum sveitarfélaganna og hve margir nýta sér það að jafnaði?
Svar við framantöldum liðum óskast sundurliðað eftir sveitarfélögum og árum á tímabilinu 2004–2006.
Efni fyrirspurnarinnar kallar á öflun upplýsinga frá öllum sveitarfélögum landsins um fyrirkomulag og notkun aldraðra á félagsþjónustu sveitarfélaganna. Spurt er um heimaþjónustu aldraðra, heimsendan mat, akstursþjónustu og skipulagt félagsstarf fyrir aldraða. Óskað er sundurliðunar eftir sveitarfélögum sem nái yfir þriggja ára tímabil.
Ekki er unnt að svara svo efnismikili fyrirspurn fyrir þinghlé en rráðuneytið telur mikilvægt að þeirra upplýsinga sem óskað er eftir verði aflað. Það verður m.a. gert í tengslum við starf verkefnisstjórnar ríkis og sveitarfélaga um verkaskiptamál og verkaskiptanefndar um málefni aldraðra sem munu hefja störf á næstunni. Þessum nefndum er m.a. ætlað að fjalla um hugsanlegan verkefnaflutning frá ríki til sveitarfélaga að því er varðar þjónustu við aldraða.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 1228 — 666. mál.
Svar