Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 629. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 1230  —  629. mál.




Svar



dómsmálaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur, Hjálmars Árnasonar, Kolbrúnar Halldórsdóttur og Sigurjóns Þórðarsonar um kostnað ríkisins við rannsókn og rekstur Baugsmálsins.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hver er heildarkostnaður ríkisins við rannsókn og rekstur Baugsmálsins frá því í ágúst árið 2002 og fram til dagsins í dag eða til þess tíma á árinu 2007 sem upplýsingar liggja fyrir um, og hvernig skiptist hann á eftirfarandi þætti:
                  a.      rekstur efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra,
                  b.      aðkeypta sérfræðiaðstoð og annan útlagðan kostnað efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra (þ.m.t. ferða- og uppihaldskostnað) við rannsókn og rekstur málsins,
                  c.      störf sérstaks saksóknara í Baugsmálinu, þ.m.t. kostnaður við aðstoðarmenn og aðkeypta sérfræðiþjónustu,
                  d.      kostnað sem íslenska ríkið hefur verið dæmt til þess að greiða vegna málsvarnarkostnaðar ákærðu í Baugsmálinu,
                  e.      annað, áður ótalið, sem eðlilegt er að telja hafa lent á ríkissjóði vegna málsins?
     2.      Hve stór hluti af starfsemi efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra á framangreindu tímabili hefur farið í Baugsmálið?
     3.      Hversu margar vinnustundir starfsmanna ríkislögreglustjóra hafa farið í Baugsmálið frá júlí 2002 til dagsins í dag?


    1.a og b.
    Fyrirspurnum um sama efni hefur verið svarað áður, m.a. fyrirspurn Sigurjóns Þórðarsonar er dómsmálaráðherra svaraði á 132. löggjafarþingi 2005–2006 (þskj. 1136,  641. mál.).
    Málið sem um er spurt, svonefnt „Baugsmál“, er margþætt og er enn til meðferðar á viðeigandi stöðum í réttarkerfinu, en hluti þess er nú í meðferð fyrir héraðsdómi.
    Rannsókn efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra í svokölluðu Baugsmáli hófst í ágúst 2002 og skiptist síðan í nokkra hluta. Í september 2003 sendi efnahagsbrotadeild hluta af málinu til skattrannsóknarstjóra ríkisins þar sem fyrir lá rökstuddur grunur lögreglu um brot gegn skattalöggjöf. Sá hluti málsins sem áfram var til rannsóknar hjá efnahagsbrotadeild fór til meðferðar setts ríkissaksóknara, sjá 2. tölul. fyrirspurnarinnar.
    Í árslok 2004 kærði skattrannsóknarstjóri til efnahagsbrotadeildar ætluð skattalagabrot tengd félaginu auk þess að leggja fyrir ríkisskattstjóra skattlagningu vegna kærunnar.
    Rannsókn skattrannsóknarstjóra ríkisins á máli Baugs og tengdra félaga leiddi í ljós að félögin höfðu vanframtalið opinber gjöld. Í fréttatilkynningu frá Baugi Group þann 5. janúar 2005 skýrði félagið frá því að ríkisskattstjóri hefði gert því að greiða 464 millj. kr. vegna endurálagningar vegna tekjuáranna 1998–2002. Þá er ótalin hækkun einstaklinga sem tengdust málinu svo sem fram hefur komið í fjölmiðlum. Ágreiningsmál vegna þessa er rekið fyrir yfirskattanefnd.
    Skattahluti Baugsmáls er enn til rannsóknar hjá saksóknara efnahagsbrota og settum ríkislögreglustjóra.
    Starfsfólk efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra hefur unnið að öllum þáttum málsins. Sérfræðivinna hefur verið unnin í málinu, þ.e. hjá efnahagsbrotadeild, skattyfirvöldum og settum ríkissaksóknara.
    Yfirlit yfir aðkeypta sérfræðiþjónustu í sakamálum er tekið saman í lok hvers máls. Vinna starfsmanna lögreglu og skattyfirvalda við mál er aldrei tekin saman, né verður hluti sakarkostnaðar sem til álita kemur að sakborningum verði með dómi gert að greiða að hluta eða öllu leyti verði þeir sakfelldir. Kostnaður ríkisins af þessum þætti ræðst því af niðurstöðu dómsmálsins og því ekki tímabært að meta hver hann getur orðið.

    1.c.
    Heildarkostnaður vegna starfa sérstaks ríkissaksóknara í Baugsmálinu, þ.m.t. kostnaður við aðstoðarmenn og aðkeypta sérfræðiþjónustu, á árunum 2005–2007 er samtals um 34,5 millj. kr.

    1.d.
    Fram til þessa dags hefur ríkið verið dæmt til þess að greiða samtals 43.416.000 kr. vegna málskostnaðar ákærðu í Baugsmálinu.

    1.e.
    Hér er kostnaður vegna málsmeðferðar hjá ríkisskattstjóra, skattrannsóknarstjóra ríkisins, héraðsdómstól Reykjavíkur og Hæstaréttar Íslands ótalinn.

    2.
    
Áætlað er að á tímabilinu ágúst 2002 til ársloka 2006 hafi u.þ.b. 20% af starfsemi efnahagsbrotadeildar farið í Baugsmálið í heild.

    3.
    Vinnustundir starfsmanna lögreglu eru aldrei teknar saman vegna einstakra mála.
    Spyrja má hvort eðlilegt sé að reyna að meta kostnað ríkisins í einstökum málum, þegar verið er að sinna lögbundnum verkefnum ríkisins eins og löggæslu og ákæruvaldsmeðferð mála. Á það að ráðast af hagkvæmnismati hvort menn sæti rannsókn og ákæru komi upp rökstuddur grunur um að þeir hafi framið refsilagabrot?