Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 84. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Nr. 16/133.

Þskj. 1263  —  84. mál.


Þingsályktun

um sameiginlega stefnu í ferðamálum fyrir Vestur-Norðurlönd.


    Alþingi beinir þeim tilmælum til ríkisstjórnarinnar, með hliðsjón af ályktun Vestnorræna ráðsins á ársfundi 2006, að hún móti í samvinnu við landsstjórnir Færeyja og Grænlands sameiginlega stefnu í ferðamálum fyrir Vestur-Norðurlönd.

Samþykkt á Alþingi 16. mars 2007.