Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 686. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 1288  —  686. mál.




Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., með síðari breytingum.

Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur.



     1.      Við bætist ný grein er verði 1. gr. og orðist svo:
              Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. laganna:
                  a.      C-liður 1. tölul. orðast svo: Ökutæki sem ætluð eru til vöruflutninga og eru yfir 5 tonn að heildarþyngd. Þau ökutæki sem eru yfir 5 tonn að heildarþyngd en að hámarki 6 tonn skulu þó vera hönnuð með eina sætaröð í fólksrými og hafa óskipt farmrými sem er aðskilið frá fólksrými.
                  b.      F-liður 3. tölul. orðast svo: Ökutæki sem ætluð eru til vöruflutninga, að heildarþyngd 5 tonn eða minna, eru hönnuð með eina sætaröð í fólksrými og hafa óskipt farmrými sem er aðskilið frá fólksrými.
     2.      Við 3. gr. (er verði 4. gr.). Við bætist nýr málsliður er orðist svo: Ákvæði 1. gr. taka gildi 1. júlí 2007 og skulu taka til ökutækja sem þá eru ótollafgreidd.