Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 708. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 1289 — 708. mál.
um stofnun Hreindýrastofu á Austurlandi.
Alþingi ályktar að stofnuð verði Hreindýrastofa á Austurlandi, sem annist stjórnsýslu og ráðgjöf vegna hreindýraveiða og nýtingar hreindýra sem auðlindar.
Umhverfisráðherra skipi fimm manna undirbúningsnefnd sem í sitji fulltrúar tilnefndir af Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi, Þróunarstofu Austurlands, Fljótsdalshéraði, Náttúrustofu Austurlands og Umhverfisstofnun og verði fulltrúi Umhverfisstofnunar formaður nefndarinnar. Stefnt skal að stofnun Hreindýrastofu 1. janúar 2008.
Tillaga flutningsmanna felur í sér að stjórnsýsla hreindýraveiða fari frá veiðimálasviði Umhverfisstofnunar í sérstaka stjórnsýslustofnun Hreindýrastofu sem heyri undir Umhverfisstofnun.
Árið 2000 var samþykkt frumvarp til laga um breytingu á lögum, nr. 64/1994, um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, með síðari breytingum. Þær lagabreytingar fólu m.a. í sér nákvæmari skilgreiningu á verksviði hreindýraráðs en frá stofnun þess árið 1992 hafði það verið svohljóðandi:
a. að vera umhverfisráherra til ráðgjafar um allt er viðkemur vernd, veiðum og nýtingu hreindýrastofnsins á Austurlandi,
b. að sjá um sölu veiðileyfa og er ráðinu óheimilt að framselja þá heimild,
c. að gera tillögur um árlegan veiðikvóta og skiptingu hans milli veiðisvæða í samráði við veiðistjóra,
d. að sjá um eftirlit með hreindýraveiðum og ráða til þess eftirlitsmenn,
e. að skipta arði af sölu veiðileyfa og afurða felldra dýra.
Með lögum um Umhverfisstofnun, nr. 90/2002 varð hins vegar sú breyting á verksviði hreindýraráðs að stjórnsýslan færðist yfir til Umhverfisstofnunar (UST). Samkvæmt athugasemdum við fyrstnefnda frumvarpið var tilgangur þess að einfalda stjórnsýsluna og gera hana skilvirkari og aðgengilegri fyrir almenning. Engu að síður þótti mikilvægt að hreindýraráð starfaði áfram, þar eð nauðsynlegt þótti að á Austurlandi kæmu að þessum málum þeir sem hafa hagsmuna að gæta með sama hætti og áður án þess að þeir sinntu stjórnsýslu innan málaflokksins. Aftur er ítrekað að „vegna eðlis hreindýramála væri eðlilegt að ráðið starfaði áfram í einhverri mynd og það yrði fyrst og fremst ráðgefandi fyrir Umhverfisstofnun“. Stjórnun veiðanna fluttist frá hreindýraráði til veiðistjórnunarsviðs UST árið 2003 og samkvæmt reglugerð nr. 486/2003 er hlutverk ráðsins:
1. vera umhverfisráðherra og Umhverfisstofnun til ráðgjafar um vernd, veiðar og nýtingu hreindýrastofnsins, þar á meðal um skiptingu arðs,
2. gera ár hvert tillögu til Umhverfisstofnunar um skilgreiningu ágangssvæða hreindýra, árlegan veiðikvóta og skiptingu hans milli veiðisvæða,
3. gera tillögu til umhverfisráðherra um reglugerð sem varðar skiptingu arðs.
Strax í kjölfar þessa lýsti Samband Sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) því yfir að með samþykkt Alþingis á lögum nr. 90/2002, um Umhverfisstofnun, væri boðuð róttæk breyting á stjórnun hreindýraveiða. Taldi SSA að ljóst væri að sú breyting sem gerð hefði verið legðist almennt ekki vel í Austfirðinga enda yrði ekki séð að heimamenn kæmu framvegis mikið að þeim málum. Þetta væri miður þar sem sú reynsla sem komin væri á fyrirkomulag og starfsemi hreindýraráðs sýndi að í öllum meginatriðum hefði vel til tekist.
Með skipulagsbreytingunni hefðu hins vegar allar boðleiðir lengst, þ.e. milli landeigenda og ráðherra.
Vegna þessa hefur SSA ítrekað ályktað að hlutverk og verksvið hreindýraráðs verði sem líkast því sem það var fyrir lagabreytinguna 2002 og þekking heimamanna nýtt sem best til áframhaldandi verðmætasköpunar á Austurlandi.
SSA hefur endurtekið ályktað í þessa veru og nú síðast á aðalfundi sínum í októberbyrjun 2006, minnt á „að hreindýraveiðar fara eingöngu fram á Austurlandi og nú þegar er til staðar í fjórðungnum víðtæk þekking og reynsla, þannig að Austfirðingar eru vel í stakk búnir til að taka málaflokkinn alfarið til sín“.
Stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á UST frá september 2006 fjallar ekki beinum orðum um hvernig til hafi tekist með yfirtöku stofnunarinnar á stjórnsýsluhlutverki hreindýraráðs. Engu að síður er ljóst að aðfinnslur SSA eru í fullu samræmi við þá megingagnrýni sem þar beinist að UST, þ.e. að stjórnsýsla í þeim málaflokkum sem falla undir stofnunina hafi ekki orðið einfaldari og styrkari enda þótt stefnt hafi verið að því. Þannig þykir yfirstjórn UST ekki vera nógu sýnileg og þyki hún í raun hafa „framselt of mikið vald til fjárhags- og rekstrarsviðs“ stofnunarinnar með þeim afleiðingum að það „hafi fengið stjórnunarhlutverk umfram það sem eðlilegt getur talist“. Raunar hafi öll markmiðin með miðlægri stjórnsýslu í gegnum UST brugðist. Ekki hafi tekist að einfalda og styrkja stjórnsýslu, efla faglega þætti, stuðla að hagkvæmni í rekstri eða gera auðveldara að ná fram stefnumiðum sem stjórnvöld settu sér við framkvæmd umhverfismála.
Í nóvember 2005 sendi Þróunarfélag Austurlands frá sér skýrsluna Auðlindin hreindýr og vildi með henni sýna fram á hvernig nýta má hreindýr betur til þess að styrkja ímynd, byggð, menningu og atvinnulíf á Austurlandi. Á það er bent hvernig stjórnsýsla í tengslum við dýrin skapa störf heima í héraði sem leggja mundu ákveðinn grunn til frekari uppbyggingar atvinnu og þjónustu í kringum veiðarnar. Er þar átt við starfsákvæði leiðsögumanna, eflingu staðbundins matvælaiðnaðar svo og handverk, fatahönnun og listiðnað sem nýtingarleiðir. Skýrsluhöfundar telja umfram allt mikilvægt að efla rannsóknir á hreindýrastofninum og byggja upp ferðamannaiðnað í kringum hann: skoðunarferðir og t.d. safn um sögu hreindýra á Íslandi, lifnaðarhætti og nýtingu.
Í þessu skyni er mikilvægt að hreindýrarannsóknir séu öflugar og Náttúrustofu Austurlands verði áfram falin ábyrgð og fjármagn til að stunda þær rannsóknir.
Til að hrinda hugmyndum Þróunarfélagsins í framkvæmd þarf fjármagn.
Með því að fela Hreindýrastofu stjórnsýslu hreindýraveiða má skilyrða reksturinn við að allur arður renni til verkefna tengdum hreindýrum og sem styrktu ímynd, byggð, menningu og atvinnulíf á Austurlandi.
Í hreindýrunum liggur óýttur auður fyrir ferðaþjónustu, bændur og aðra íbúa svæðisins.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 1289 — 708. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um stofnun Hreindýrastofu á Austurlandi.
Flm.: Þuríður Backman, Halldór Blöndal.
Alþingi ályktar að stofnuð verði Hreindýrastofa á Austurlandi, sem annist stjórnsýslu og ráðgjöf vegna hreindýraveiða og nýtingar hreindýra sem auðlindar.
Umhverfisráðherra skipi fimm manna undirbúningsnefnd sem í sitji fulltrúar tilnefndir af Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi, Þróunarstofu Austurlands, Fljótsdalshéraði, Náttúrustofu Austurlands og Umhverfisstofnun og verði fulltrúi Umhverfisstofnunar formaður nefndarinnar. Stefnt skal að stofnun Hreindýrastofu 1. janúar 2008.
Greinargerð.