133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 1349 — 588. mál.
Frumvarp til laga
um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald.
(Eftir 2. umr., 17. mars.)
I. KAFLI
Gildissvið, markmið og skilgreiningar.
1. gr.
Gildissvið og yfirstjórn.
Lög þessi taka til:
a. sölu á gistingu,
b. sölu og veitingar hvers kyns veitinga í atvinnuskyni á veitingastöðum og gististöðum og öðrum stöðum, svo sem samkomusölum eða um borð í skipum,
c. tækifærisleyfa vegna skemmtanahalds,
d. útleigu samkomusala í atvinnuskyni.
Lög þessi taka þó hvorki til framleiðslu og dreifingar matvæla, sbr. lög um matvæli, né hollustuhátta, sbr. lög um hollustuhætti og mengunarvarnir. Um veitingu og neyslu áfengis, að öðru leyti en kveðið er á um í lögum þessum, fer eftir ákvæðum áfengislaga.
2. gr.
Markmið.
3. gr.
Flokkun gististaða.
Heimilt er að gera mismunandi kröfur til starfsemi í rekstrarleyfi samkvæmt lögum þessum og haga gjaldtöku vegna þess eftir tegund og flokkun gististaða.
Flokkun gististaða er sem hér segir:
Flokkur I: Heimagisting.
Flokkur II: Gististaður án veitinga.
Flokkur III: Gististaður með veitingum en þó ekki áfengisveitingum.
Flokkur IV: Gististaður með minibar.
Flokkur V: Gististaður með bar og/eða veitingaaðstöðu þar sem áfengi er veitt.
Í reglugerð er heimilt að kveða nánar á um einstakar tegundir gististaða, flokkun þeirra og búnað.
4. gr.
Flokkun veitingastaða.
a. Framreiddur er matur og/eða drykkur sem boðinn er viðskiptavinum í atvinnuskyni, til neyslu á staðnum, þar með taldir skemmtistaðir þar sem fram fer reglubundið skemmtanahald og samkomusalir sem leigðir eru í atvinnuskyni.
b. Framreiddur er og boðinn til sölu, í atvinnuskyni, matur sem ekki er til neyslu á staðnum, enda er sú starfsemi meginstarfsemi staðarins.
Heimilt er að gera mismunandi kröfur til starfsemi í rekstrarleyfi samkvæmt lögum þessum og haga gjaldtöku þess eftir tegund og flokkun veitingastaða.
Veitingastaðir flokkast með eftirfarandi hætti:
Flokkur I: Staðir án áfengisveitinga.
Flokkur II: Umfangslitlir áfengisveitingastaðir þar sem starfsemin er ekki til þess fallin að valda ónæði í nágrenninu, svo sem með háværri tónlist, og afgreiðslutími er ekki lengri en til kl. 23 og kalla ekki á mikið eftirlit og/eða löggæslu.
Flokkur III: Umfangsmiklir áfengisveitingastaðir, svo sem þar sem leikin er hávær tónlist og/eða afgreiðslutími er lengri en til kl. 23 og kalla á meira eftirlit og/eða löggæslu.
Á veitingastöðum er hvorki heimilt að bjóða upp á nektarsýningar né með öðrum hætti að gera út á nekt starfsmanna eða annarra sem á staðnum eru. Leyfisveitandi getur þó heimilað í rekstrarleyfi samkvæmt lögum þessum að fram fari nektardans í atvinnuskyni á veitingastað, að fengnum jákvæðum umsögnum umsagnaraðila skv. 10. gr. Á slíkum stöðum er sýnendum óheimilt að fara um á meðal áhorfenda og jafnframt eru hvers konar einkasýningar bannaðar.
Heimilt er í reglugerð að kveða nánar á um einstakar tegundir veitingastaða, flokkun þeirra og búnað.
II. KAFLI
Almenn ákvæði um veitingastaði.
5. gr.
Dvöl ungmenna á veitingastöðum.
Veita má í reglugerð undanþágu frá reglu 1. mgr. sem tekur til ákveðinna tegunda veitingastaða og sérstakra tilefna, svo sem skóladansleikja, enda fari engar áfengisveitingar þar fram og afgreiðslutími viðkomandi veitingastaðar sé í samræmi við heimilan afgreiðslutíma samkvæmt rekstrarleyfi staðarins, nema sótt hafi verið um tímabundið leyfi skv. 4. mgr. 18. gr.
6. gr.
Dyravarsla.
Nánar skal kveða á um skyldu til dyravörslu og framkvæmd námskeiða í reglugerð.
III. KAFLI
Leyfisveitingar.
7. gr.
Leyfisskylda.
Rekstrarleyfið skal tilgreina þann flokk og þá tegund staðar sem starfsemi fellur undir og leyfi fæst fyrir.
Leyfisveitendur samkvæmt lögum þessum eru sýslumenn að undanskildum sýslumanninum í Reykjavík en lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu gefur út leyfi í umdæmi hans.
Leyfishafi skal hafa leyfisbréf til leyfisskyldrar starfsemi samkvæmt lögum þessum sýnilegt fyrir viðskiptavinum þar sem leyfisskyld starfsemi fer fram.
8. gr.
Skilyrði sem umsækjandi þarf að uppfylla.
a. Hafa búsetu á Íslandi.
b. Vera lögráða og hafa náð a.m.k. 20 ára aldri á umsóknardegi.
c. Hafa forræði á búi sínu.
d. Hafa tilkynnt atvinnurekstur til skráningar hjá viðkomandi skattstjóra.
e. Hafa ekki á síðustu fimm árum gerst sekur um háttsemi sem varðar við almenn hegningarlög, lög um ávana- og fíkniefni, lög um hlutafélög, lög um einkahlutafélög, lög um bókhald, lög um ársreikninga, lög um tekjuskatt, lög um virðisaukaskatt, lög um staðgreiðslu opinberra gjalda, lög um tryggingagjald né lög þessi sem og reglur settar samkvæmt tilgreindum lögum.
f. Hafa ekki verið sviptur leyfi til rekstrar gististaðar, veitingastaðar eða áfengisveitinga á síðustu fimm árum frá umsókn.
g. Skulda ekki skatta, opinber gjöld eða iðgjöld í lífeyrissjóð sem nema samanlagt hærri fjárhæð en 500.000 kr.
Ákvæði c–g-liðar 1. mgr. gilda jafnt um umsækjanda sem er lögaðili og forsvarsmann umsækjanda.
Heimilt er í reglugerð að kveða nánar á um skilyrði rekstrarleyfis og gögn sem afla þarf.
9. gr.
Umsókn.
Umsókn skal vera skrifleg og send leyfisveitanda í því umdæmi þar sem leyfisskyld starfsemi er fyrirhuguð. Sækja skal um rekstrarleyfi vegna sölu veitinga um borð í skipum til leyfisveitanda þar sem heimahöfn skipsins er samkvæmt lögum um skráningu skipa.
Umsóknareyðublað skal vera tiltækt bæði á prentuðu formi hjá leyfisveitanda og rafrænt á heimasíðu hans. Skal þar getið um þau gögn sem fylgja þurfa umsókn.
Heimilt er að skila umsókn rafrænt og skal á umsókn vera heimild til handa umsækjanda að fela leyfisveitanda að afla nauðsynlegra gagna sem fylgja þurfa umsókn rafrænt, þar sem slíkt er mögulegt. Kjósi umsækjandi að nýta sér þessa heimild skal það skoðast sem upplýst samþykki í skilningi laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
Heimilt er að kveða nánar á um það sem koma þarf fram í umsókn og um fylgigögn með umsókn í reglugerð.
10. gr.
Umsóknarferli.
Liggi starfsleyfi heilbrigðisnefndar ekki fyrir þegar sótt er um rekstrarleyfi getur umsækjandi sótt um slíkt leyfi samhliða umsókn um rekstrarleyfi á þar til gerðu eyðublaði sem nálgast má hjá leyfisveitanda, hvort sem er á skrifstofu hans eða heimasíðu. Um umsókn um starfsleyfi fer eftir ákvæðum laga og reglna sem um slík leyfi gilda.
Þegar fullnægjandi umsókn um rekstrarleyfi hefur borist leyfisveitanda skal hann þegar í stað senda umsókn til umsagnaraðila skv. 4. mgr. þrátt fyrir að starfsleyfi liggi ekki fyrir.
Leyfisveitandi skal leita umsagna eftirtalinna aðila í því umdæmi þar sem starfsemi er fyrirhuguð og skulu umsagnir vera skýrar og rökstuddar:
1. Sveitarstjórnar sem m.a. staðfestir að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
2. Heilbrigðisnefndar sem gætir að samræmi við starfsleyfi og metur grenndaráhrif starfseminnar, þ.m.t. hljóðvist.
3. Slökkviliðs sem staðfestir að kröfum um brunavarnir sé fullnægt.
4. Vinnueftirlits sem m.a. kannar hvort aðstæður á vinnustað séu í samræmi við ákvæði laga og reglna.
5. Byggingarfulltrúa sem m.a. staðfestir að starfsemin sé í samræmi við byggingarleyfi og skipulagsskilmála sem og að lokaúttekt hafi farið fram á húsnæðinu.
6. Lögreglu sem m.a. kveður á um nauðsyn til dyravörslu.
Óheimilt er að gefa út rekstrarleyfi ef einhver framangreindra aðila leggst gegn útgáfu leyfisins og skal rekstrarleyfi jafnframt bundið þeim skilyrðum sem fram kunna að koma í umsögnunum.
Leita skal umsagnar Siglingastofnunar Íslands áður en leyfi er veitt til veitingarekstrar um borð í skipi auk annarra umsagna eftir því sem við á.
Heimilt er með reglugerð að kveða nánar á um umsóknarferli vegna rekstrarleyfa, þar á meðal útgáfu leiðbeininga fyrir umsagnaraðila um þau atriði sem umsögn skal lúta að og tímafresti.
11. gr.
Rekstrarleyfi.
Heimilt er að veita rekstrarleyfi til skemmri tíma óski umsækjandi eftir því eða sérstakar ástæður mæla með því en þó ekki í styttri tíma en til eins árs í senn. Rekstrarleyfi er bundið við leyfishafa og er á engan hátt framseljanlegt. Þá er rekstrarleyfið jafnframt bundið við hina tilgreindu starfsemi og staðsetningu.
Í rekstrarleyfi skal koma fram gildistími leyfis, sú starfsemi sem veitt er leyfi fyrir og þau skilyrði sem sett eru fyrir leyfi, svo sem um gestafjölda, heimilan afgreiðslutíma, heimild til útiveitinga, dyravörslu, hávaða, umgengni, öryggi, þrifnað og annan aðbúnað.
Heimilt er að binda rekstrarleyfi mismunandi skilyrðum og haga töku leyfisgjalds eftir flokkun og tegund starfsemi. Heimilt er í reglugerð að kveða nánar á um mismunandi kröfur sem gera má til starfsemi og mismunandi skilyrði sem setja má fyrir rekstrarleyfi eftir tegund og flokkun staða og annað það sem koma skal fram í rekstrarleyfi.
12. gr.
Breytingar er varða rekstrarleyfi og leyfishafa.
Taki nýr aðili við rekstri sem leyfi er fyrir samkvæmt lögum þessum eða hyggist leyfishafi hætta hinni leyfisskyldu starfsemi skal það tilkynnt leyfisveitanda án tafar. Leyfishafi ber ábyrgð á rekstrinum þar til slík tilkynning hefur borist leyfisveitanda en nýr aðili sem við rekstrinum tekur frá þeim tíma og skal hann þegar í stað sækja um nýtt rekstrarleyfi.
Með umsókn skv. 1.–2. mgr. skal að jafnaði fara eftir ákvæðum 9.–11. gr. eftir því sem við á. Leyfisveitanda er þó heimilt að falla frá öflun umsagna skv. 10. gr. að öllu leyti eða hluta ef um umsókn skv. 2. mgr. er að ræða telji hann slíkt óþarft, svo sem ef ekki er um breytingar að ræða á starfsemi sem rekstrarleyfi tekur til. Um umsókn og skilyrði fyrir rekstrarleyfi fer að öðru leyti samkvæmt ákvæðum laga þessara.
Á meðan umsókn skv. 1.–2. mgr. er til meðferðar má leyfisveitandi gefa út rekstrarleyfi til bráðabirgða með sömu skilmálum og giltu um hið fyrra leyfi, til allt að þriggja mánaða. Að liðnum þriggja mánaða gildistíma bráðabirgðaleyfis verður bráðabirgðaleyfi einungis framlengt ef umsækjanda verður ekki kennt um tafir á útgáfu rekstrarleyfis.
Leyfisveitandi skal tilkynna umsagnaraðilum um nýjan rekstraraðila eftir því sem við á.
Gildistími rekstrarleyfis sem sótt er um breytingar á skv. 1. mgr. breytist ekki við breytingar á starfsemi nema leyfisveitandi telji sérstakar ástæður til þess. Við gjaldtöku vegna viðbótarstarfsemi skal miða við mismun gjalds vegna upphaflegs rekstrarleyfis og gjalds fyrir rekstrarleyfi eftir breytingu.
13. gr.
Endurnýjun rekstrarleyfis.
Meðan umsókn um endurnýjun er til meðferðar er leyfisveitanda heimilt að gefa út rekstrarleyfi til bráðabirgða með sömu skilmálum og giltu um hið fyrra rekstrarleyfi, til allt að þriggja mánaða. Gildistími bráðabirgðaleyfis verður þó aldrei lengri en þrír mánuðir frá því að rekstrarleyfi rann út. Að þeim tíma liðnum verður bráðabirgðaleyfi ekki framlengt nema tafir á afgreiðslu endurnýjunar sé ekki að rekja til umsækjanda. Óheimilt er að gefa út bráðabirgðarekstrarleyfi hafi umsókn um endurnýjun borist eftir að fyrra rekstrarleyfi rann út.
Við mat á umsókn um endurnýjun skal taka mið af því hvernig starfsemi hefur gengið á leyfistíma og þeirri reynslu sem fengist hefur af rekstrinum. Skal við það hafa hliðsjón af tilkynningum og upplýsingum sem borist hafa frá eftirlitsaðilum skv. 21. gr. á leyfistíma og skal leyfisveitandi leita upplýsinga frá eftirlitsaðilum skv. 21. gr. og umsagna skv. 10. gr., um starfsemi, eftir því sem hann telur nauðsynlegt til afgreiðslu umsóknar.
Ef ekki er um breytingar á starfsemi að ræða og starfsemi hefur verið athugasemdalaus af hálfu eftirlitsaðila skv. 21. gr. á leyfistíma er leyfisveitanda heimilt að gefa út nýtt rekstrarleyfi án þess að leita umsagna skv. 10. gr.
Um endurnýjun starfsleyfis heilbrigðisnefnda fer samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir.
IV. KAFLI
Synjun, brottfall, afturköllun og svipting rekstrarleyfis.
14. gr.
Synjun rekstrarleyfis.
Umsækjanda skal tilkynnt um fyrirhugaða synjun skriflega og skal þar getið um ástæður hennar. Skal umsækjanda gefinn kostur á að bæta úr því sem er ábótavant við umsókn, ef þess er kostur, innan hæfilegs tíma sem tilgreindur skal í tilkynningu. Að öðrum kosti skal umsókn synjað.
15. gr.
Brottfall, innlögn, afturköllun og svipting rekstrarleyfis.
Leyfisveitandi skal afturkalla rekstrarleyfi ef leyfishafi eða forsvarsmaður uppfyllir ekki lengur skilyrði 8. gr., sbr. þó heimild 16. gr.
Leyfisveitanda er heimilt að svipta leyfishafa rekstrarleyfi tímabundið verði hann eða forsvarsmaður hans uppvís að því að misnota rekstrarleyfið eða vanrækja skyldur sem á honum hvíla samkvæmt lögum þessum eða öðrum lögum sem um reksturinn gilda eða brjóti hann að öðru leyti gegn skilyrðum eða skilmálum leyfisins. Verði leyfishafi uppvís að ítrekuðum brotum samkvæmt þessari málsgrein er leyfisveitanda heimilt að svipta leyfishafa rekstrarleyfinu að fullu.
Áður en kemur til afturköllunar skv. 2. mgr. eða sviptingar skv. 3. mgr. skal leyfisveitandi senda leyfishafa viðvörun þar um, þar sem fram komi tilefni afturköllunar eða sviptingar og skal leyfishafa eftir atvikum gefinn frestur til að bæta úr annmörkum sé það mögulegt.
Komi til afturköllunar eða sviptingar rekstrarleyfis skal leyfishafa tilkynnt um það skriflega og frá hvaða tíma rekstrarleyfið telst niður fallið og skal leyfishafi skila leyfisbréfi til leyfisveitanda án tafar fyrir þau tímamörk. Leyfisveitandi skal tilkynna heilbrigðisnefnd um afturköllun eða sviptingu rekstrarleyfis.
Við innlögn rekstrarleyfis á leyfishafi ekki rétt á endurgreiðslu hluta gjalds sem greitt var fyrir rekstrarleyfi þótt leyfistími sé ekki liðinn. Sama gildir ef rekstrarleyfi er afturkallað skv. 2. mgr. eða leyfishafi er sviptur rekstrarleyfi skv. 3. mgr.
Beita skal úrræði 23. gr. um lokun staðar ef starfsemi er haldið áfram eftir brottfall rekstrarleyfis, afturköllun eða sviptingu þess skv. 1.–3. mgr.
16. gr.
Gjaldþrot eða andlát.
Dánarbúi leyfishafa eða þeim sem hefur tekið við starfsemi að arfi er heimilt að halda starfseminni áfram í allt að eitt ár eftir andlát leyfishafa án nýs rekstrarleyfis en sækja skal um bráðabirgðaleyfi ef rekstrarleyfi rennur út innan ársins. Að þeim tíma liðnum skal erfingi sækja um rekstrarleyfi vilji hann halda starfsemi áfram.
V. KAFLI
Tækifærisleyfi.
17. gr.
Tækifærisleyfi.
Sækja skal um tækifærisleyfi með a.m.k. einnar viku fyrirvara. Umsækjandi og/eða forsvarsmaður ef umsækjandi er lögaðili skal uppfylla skilyrði 8. gr. eftir því sem við á. Leyfisveitanda er þó heimilt að víkja frá fjárræðisskilyrði í því tilviki að umsækjandi hafi ekki náð tilskildum aldri enda verði tilnefndur ábyrgðarmaður að skemmtun eða atburði sem uppfyllir skilyrðið.
Leyfisveitandi getur bundið leyfi eftirfarandi skilyrðum að fenginni umsögn lögreglustjóra:
1. að sá sem fyrir skemmtun stendur geri fullnægjandi ráðstafanir til að halda uppi reglu, öryggi og velsæmi,
2. að eigi annist aðrir dyravörslu en hann samþykkir,
3. að lögreglumenn verði á skemmtuninni,
4. að sá sem fyrir skemmtun stendur greiði kostnað af ráðstöfunum sem lögreglustjóri ákveður í samráði við umsækjanda,
5. öðrum þeim skilyrðum sem nauðsyn ber til, svo sem um aldur og fjölda gesta og slit skemmtunar.
Leyfisveitandi skal jafnframt leita umsagna heilbrigðisnefnda og slökkviliðs og eftir atvikum annarra umsagnaraðila skv. 10. gr.
Heimilt er leyfisveitanda að krefja leyfishafa um þann kostnað sem leiðir af aukinni löggæslu umfram venjubundna löggæslu á sama tíma. Getur leyfisveitandi krafist þess að sá kostnaður verði greiddur fyrir fram eða trygging sett fyrir greiðslu hans.
Ákvæði 23. gr. gilda um úrræði vegna brota gegn ákvæði þessu.
Heimilt er í reglugerð að kveða nánar á um framkvæmd við útgáfu leyfa, skilyrði fyrir leyfum og innheimtu og ákvörðun löggæslukostnaðar.
18. gr.
Tímabundin áfengisveitingaleyfi.
Ekki þarf leyfi fyrir áfengisveitingum í einkasamkvæmum.
Tímabundið leyfi samkvæmt ákvæði þessu verður ekki gefið út til veitingar og/eða sölu áfengisveitinga á stað sem hefur fengið útgefið rekstrarleyfi heldur fara allar áfengisveitingar á slíkum stöðum fram á grundvelli rekstrarleyfisins og á ábyrgð leyfishafa.
Rekstrarleyfishafa er heimilt að sækja um leyfi samkvæmt ákvæði þessu sem viðbót við gilt rekstrarleyfi, svo sem vegna tímabundins viðbótarafgreiðslutíma áfengisveitinga.
Um leyfi samkvæmt ákvæði þessu fer samkvæmt ákvæðum 17. gr. eftir því sem við á og er leyfið bundið við einstaka atburði og getur gilt í allt að 7 daga hið mesta. Ákvæði 23. gr. gilda um úrræði vegna brota gegn ákvæði þessu.
Heimilt er að kveða nánar á um framkvæmd leyfisveitinga samkvæmt ákvæði þessu í reglugerð.
VI. KAFLI
Upplýsingaskylda, eftirlit, viðurlög o.fl.
19. gr.
Upplýsingaskylda.
20. gr.
Skrá.
21. gr.
Eftirlit.
Um eftirlit með starfsemi sem lög þessi taka til fer að öðru leyti samkvæmt lögum og reglugerðum um matvæli, hollustuhætti og mengunarvarnir, eftirlit, aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, brunamál og öðrum lögum sem átt geta við um viðkomandi starfsemi. Eftirlitið er í höndum þeirra sem lögin kveða á um hverju sinni.
Heilbrigðisnefnd skal tilkynna viðkomandi leyfisveitanda ef fyrirhuguð er svipting starfsleyfis.
Eftirlitsaðilar skulu tilkynna leyfisveitanda um alvarlegar athugasemdir sem þeir kunna að gera við rekstur leyfishafa og annað sem er tilefni athugasemda af þeirra hálfu við starfsemi og áhrif kann að hafa á rekstrarleyfið og endurnýjun þess, sem og ef fyrirhuguð er stöðvun starfseminnar á grundvelli heimildar í lögum skv. 2. mgr.
22. gr.
Viðurlög vegna brota.
Misbeiti leyfishafi sem hefur leyfi til veitingar áfengis leyfi sínu með því að veita áfengi á öðrum tímum eða á annan hátt en honum er heimilt, eða aðrar áfengistegundir, svo og með því að selja eða afhenda áfengi án þess að neytt sé á staðnum, eða hann brýtur á annan hátt gegn fyrirmælum sem um áfengisveitingar gilda, varðar það refsingu samkvæmt áfengislögum.
Gera má lögaðila sekt samkvæmt reglum II. kafla A almennra hegningarlaga fyrir brot gegn 1. og 2. mgr.
Heimilt er jafnframt í tilefni brota skv. 1. og 2. mgr. að beita úrræði 23. gr. um lokun starfsstöðvar þar sem brot er framið.
23. gr.
Þvingunarúrræði.
a. Þegar ekki hefur verið gefið út rekstrarleyfi vegna hinnar leyfisskyldu starfsemi, útrunnið rekstrarleyfi hefur ekki verið endurnýjað, nýr rekstraraðili hefur ekki fengið útgefið nýtt rekstrarleyfi, rekstrarleyfi hefur verið lagt inn, það afturkallað eða leyfishafi sviptur því.
b. Þegar leyfisskyld starfsemi fer út fyrir mörk og skilmála útgefins rekstrarleyfis, svo sem varðandi heimilaðan afgreiðslutíma og þá tegund leyfisskyldrar starfsemi sem hið útgefna rekstrarleyfi tekur til.
c. Þegar veitingar áfengis, sem leyfisskyldar eru skv. 18. gr., fara fram án tilskilins leyfis eða út fyrir mörk og skilmála útgefins leyfis.
Lögreglustjóri skal jafnframt slíta samkomu sem fram fer á grundvelli 17. gr. ef hún brýtur gegn ákvæðum laga eða brotin eru fyrirmæli eða skilyrði sem leyfisveitandi hefur sett, ef regla á samkomu er eigi nægilega góð eða þegar slík samkoma fer fram án tilskilins leyfis.
Lögreglustjóri skal tilkynna heilbrigðisnefnd um beitingu þvingunarúrræða samkvæmt ákvæði þessu.
24. gr.
Gjaldtaka.
25. gr.
Reglugerð.
26. gr.
Kæruheimild.
VII. KAFLI
Gildistaka, brottfall laga o.fl.
27. gr.
Gildistaka og brottfall laga.
Við gildistöku laga þessara falla brott eftirfarandi lög:
1. lög nr. 67/1985, um veitinga- og gististaði, og
2. lög nr. 120/1947, um heimild til þess að marka skemmtunum og samkomum tíma.
28. gr.
Brottfall og breyting lagaákvæða.
1. Áfengislög, nr. 75/1998, með áorðnum breytingum:
a. Orðið „veitingar“ í 1. málsl. 1. mgr. 3. gr. fellur brott.
b. 2. málsl. 1. mgr. 3. gr. fellur brott.
c. Á eftir 1. mgr. 3. gr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Um leyfi til veitingar áfengis fer eftir lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald.
d. Orðið „veitingar“ í 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. fellur brott.
e. 2. málsl. 4. mgr. 4. gr. fellur brott.
f. Í stað orðsins „ríkislögreglustjóra“ í 1. mgr. 6. gr., 1. mgr. 8. gr. og 1. mgr. 9. gr. kemur: lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.
g. V. kafli fellur brott.
h. 2. mgr. 18. gr. fellur brott.
i. Á eftir „3. gr.“ í 4. mgr. 19. gr. kemur: laga þessara og III. kafla laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald.
j. Orðin „eða lögreglustjóri“ í 2. málsl. 1. mgr. 25. gr. falla brott og í stað orðsins „ríkislögreglustjóri“ kemur: lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu.
k. VIII. kafli fellur brott.
2. Lög um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991, með áorðnum breytingum: Eftirfarandi breytingar verða á 11. gr.:
a. 20.–24. tölul. orðast svo:
20. Gistileyfi skv. 3. gr. laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald
a. flokkur I 18.500 kr.
b. flokkur II 18.500 kr.
c. flokkur III 24.500 kr.
d. flokkur IV 74.500 kr.
e. flokkur V 161.500 kr.
21. Veitingaleyfi skv. 4. gr. laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald
a. flokkur I 18.500 kr.
b. flokkur II 124.500 kr.
c. flokkur III 161.500 kr.
22. Tækifærisleyfi skv. 17. gr. laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald 6.000 kr.
23. Tímabundið áfengisveitingaleyfi skv. 18. gr. laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald 20.000 kr.
24. Endurnýjun
a. rekstrarleyfa skv. a–c-lið 20. tölul. og a-lið 21. tölul. 5.500 kr.
b. rekstrarleyfa skv. d-lið 20. tölul. 25.000 kr.
c. rekstrarleyfa skv. e-lið 20. tölul. og b–c-lið 21. tölul. 50.000 kr.
b. 32. tölul. fellur brott.
c. 47. tölul. fellur brott.
3. Lögreglulög, nr. 90/1996: Eftirfarandi breytingar verða á 34. gr.:
a. 1. mgr. fellur brott.
b. Í stað orðanna „Enn fremur má í slíkum reglum“ í 2. mgr. kemur: Lögreglustjóra er heimilt í sérstökum reglum sem dómsmálaráðherra setur að.
4. Lög um gjald af áfengi og tóbaki, nr. 96/1995, með áorðnum breytingum: 2. mgr. 7. gr. fellur brott.
Ákvæði til bráðabirgða.
I.
Veitinga-, áfengisveitinga- og skemmtanaleyfi.
Leyfishafi sem sækir um endurnýjun rekstrarleyfis skv. 1. mgr. skal uppfylla skilyrði 8. gr. og jafnframt skal starfsemi hans hafa verið óaðfinnanleg á leyfistíma. Áður en endurnýjað rekstrarleyfi er gefið út leitar leyfisveitandi umsagna og álits aðila skv. 10. og 21. gr. í því skyni að kanna hvort rekstur hafi verið athugasemdalaus af þeirra hálfu og hvort ástæða er til að leggjast gegn endurnýjun og hvort setja þarf frekari skilyrði fyrir starfseminni. Í því tilviki að fallist er á endurnýjun er gefið út rekstrarleyfi. Allar breytingar á starfsemi frá fyrri leyfum, sbr. 1. mgr., kalla á umsókn um rekstrarleyfi.
II.
Tryggingar.