Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 667. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 1350 — 667. mál.
um íslenska alþjóðlega skipaskrá.
1. Íslensk alþjóðleg skipaskrá (IIS) er sérstök skipaskrá á Íslandi fyrir kaupskip, á ensku Icelandic International Shipregister.
2. Kaupskip er hvert það skip sem flytur farm og/eða farþega gegn endurgjaldi í siglingum milli landa og farmflutningum innan lands og er 100 brúttótonn eða stærra.
Skráning á íslenska alþjóðlega skipaskrá verður annaðhvort með flutningi af annarri skipaskrá, hvort sem er íslenskri eða erlendri, eða frumskráningu. Óheimilt er að skrá kaupskip á íslenska alþjóðlega skipaskrá sem samtímis er skráð á aðra skipaskrá, sbr. þó 3. og 4. mgr.
Heimilt er að skrá kaupskip þurrleiguskráningu þegar aðilar skv. 1. mgr. hafa umráð þess með samningi og skilyrðum um eignarhald er ekki fullnægt.
Heimilt er að skrá kaupskip sem frumskráð er á íslenska alþjóðlega skipaskrá þurrleiguskráningu á erlenda skipaskrá þegar skilyrðum 1. mgr. um eignarhald er fullnægt.
Siglingastofnun Íslands er heimilt að neita skipi um skráningu á íslenska alþjóðlega skipaskrá ef viðkomandi skip hefur tekið þátt í eða tengst starfsemi sem er andstæð alþjóðlegum samningum sem Ísland er aðili að.
Heimahöfn kaupskipa sem skráð eru á íslenska alþjóðlega skipaskrá er í Reykjavík og skal réttindaskrá vegna réttinda í kaupskipum haldin við embætti sýslumannsins í Reykjavík.
Sækja skal um skráningu á þar til gerðum eyðublöðum sem skulu vera tiltæk á íslensku og ensku, bæði á prentuðu formi hjá Siglingastofnun Íslands og rafrænt á heimasíðu stofnunarinnar og skal þar getið um þau gögn sem fylgja þurfa umsókn.
Siglingastofnun Íslands sendir sýslumanninum í Reykjavík tilkynningu um skráningu þegar hún hefur farið fram.
Um skráningu, þar á meðal um skilyrði skráningar og gögn sem fylgja þurfa umsókn, upplýsinga- og tilkynningarskyldu og útgáfu skírteina, og þurrleiguskráningu skal fara eftir gildandi íslenskum lögum hverju sinni um skráningu skipa á aðalskipaskrá, eftir því sem við á, og skulu slíkar reglur ávallt uppfylla alþjóðlegar kröfur um skráningu skipa að því leyti sem Ísland er skuldbundið til að framfylgja þeim reglum. Heimilt er að kveða á um sérstakar reglur sem gilda skulu um skráningu á íslenska alþjóðlega skipaskrá eingöngu og framkvæmd skráningar í reglugerð.
Kaupskipum sem skráð eru á íslenska alþjóðlega skipaskrá er óheimilt að stunda áætlunarsiglingar með farþega milli hafna á Íslandi eingöngu.
Siglingastofnun Íslands skal tilkynna sýslumanninum í Reykjavík um nýjan eiganda þegar skráning hefur farið fram.
1. ef skilyrðum skráningar samkvæmt lögum þessum er ekki lengur fullnægt,
2. ef kaupskip hefur farist svo um það sé kunnugt eða það hefur horfið án þess að til þess hafi spurst í sex mánuði,
3. ef kaupskip er rifið, metið ónýtt eða ekki talið þess virði að við það sé gert,
4. ef kaupskip hefur legið ónotað í höfn eða skipalægi eða staðið á landi í þrjú ár samfleytt hérlendis eða erlendis.
Siglingastofnun Íslands er heimilt að veita öðrum ríkisborgurum heimild til að starfa sem skipstjórar á kaupskipum sem skráð eru á íslenska alþjóðlega skipaskrá eftir nánari skilyrðum sem ákveðin skulu í reglugerð. Að öðru leyti gilda ekki sérstakar reglur um þjóðerni áhafna skipa sem skráð eru á íslenska alþjóðlega skipaskrá.
Áhafnir kaupskipa sem skráð eru á íslenska alþjóðlega skipaskrá skulu uppfylla lágmarkskröfur alþjóðasamþykktar um viðmiðanir að því er varðar menntun og þjálfun, skírteini og vaktstöður sjómanna (STCW) og skal gætt reglna um öryggismönnun.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 1350 — 667. mál.
Frumvarp til laga
um íslenska alþjóðlega skipaskrá.
(Eftir 2. umr., 17. mars.)
1. gr.
Markmið.
2. gr.
Gildissvið.
3. gr.
Orðskýringar.
1. Íslensk alþjóðleg skipaskrá (IIS) er sérstök skipaskrá á Íslandi fyrir kaupskip, á ensku Icelandic International Shipregister.
2. Kaupskip er hvert það skip sem flytur farm og/eða farþega gegn endurgjaldi í siglingum milli landa og farmflutningum innan lands og er 100 brúttótonn eða stærra.
4. gr.
Skráning.
Skráning á íslenska alþjóðlega skipaskrá verður annaðhvort með flutningi af annarri skipaskrá, hvort sem er íslenskri eða erlendri, eða frumskráningu. Óheimilt er að skrá kaupskip á íslenska alþjóðlega skipaskrá sem samtímis er skráð á aðra skipaskrá, sbr. þó 3. og 4. mgr.
Heimilt er að skrá kaupskip þurrleiguskráningu þegar aðilar skv. 1. mgr. hafa umráð þess með samningi og skilyrðum um eignarhald er ekki fullnægt.
Heimilt er að skrá kaupskip sem frumskráð er á íslenska alþjóðlega skipaskrá þurrleiguskráningu á erlenda skipaskrá þegar skilyrðum 1. mgr. um eignarhald er fullnægt.
Siglingastofnun Íslands er heimilt að neita skipi um skráningu á íslenska alþjóðlega skipaskrá ef viðkomandi skip hefur tekið þátt í eða tengst starfsemi sem er andstæð alþjóðlegum samningum sem Ísland er aðili að.
5. gr.
Framkvæmd.
Heimahöfn kaupskipa sem skráð eru á íslenska alþjóðlega skipaskrá er í Reykjavík og skal réttindaskrá vegna réttinda í kaupskipum haldin við embætti sýslumannsins í Reykjavík.
Sækja skal um skráningu á þar til gerðum eyðublöðum sem skulu vera tiltæk á íslensku og ensku, bæði á prentuðu formi hjá Siglingastofnun Íslands og rafrænt á heimasíðu stofnunarinnar og skal þar getið um þau gögn sem fylgja þurfa umsókn.
Siglingastofnun Íslands sendir sýslumanninum í Reykjavík tilkynningu um skráningu þegar hún hefur farið fram.
Um skráningu, þar á meðal um skilyrði skráningar og gögn sem fylgja þurfa umsókn, upplýsinga- og tilkynningarskyldu og útgáfu skírteina, og þurrleiguskráningu skal fara eftir gildandi íslenskum lögum hverju sinni um skráningu skipa á aðalskipaskrá, eftir því sem við á, og skulu slíkar reglur ávallt uppfylla alþjóðlegar kröfur um skráningu skipa að því leyti sem Ísland er skuldbundið til að framfylgja þeim reglum. Heimilt er að kveða á um sérstakar reglur sem gilda skulu um skráningu á íslenska alþjóðlega skipaskrá eingöngu og framkvæmd skráningar í reglugerð.
6. gr.
Réttaráhrif skráningar.
Kaupskipum sem skráð eru á íslenska alþjóðlega skipaskrá er óheimilt að stunda áætlunarsiglingar með farþega milli hafna á Íslandi eingöngu.
7. gr.
Eigendaskipti.
Siglingastofnun Íslands skal tilkynna sýslumanninum í Reykjavík um nýjan eiganda þegar skráning hefur farið fram.
8. gr.
Stimpilgjöld.
9. gr.
Breyting á notkun kaupskips.
10. gr.
Afskráning.
1. ef skilyrðum skráningar samkvæmt lögum þessum er ekki lengur fullnægt,
2. ef kaupskip hefur farist svo um það sé kunnugt eða það hefur horfið án þess að til þess hafi spurst í sex mánuði,
3. ef kaupskip er rifið, metið ónýtt eða ekki talið þess virði að við það sé gert,
4. ef kaupskip hefur legið ónotað í höfn eða skipalægi eða staðið á landi í þrjú ár samfleytt hérlendis eða erlendis.
11. gr.
Mönnun kaupskipa.
Siglingastofnun Íslands er heimilt að veita öðrum ríkisborgurum heimild til að starfa sem skipstjórar á kaupskipum sem skráð eru á íslenska alþjóðlega skipaskrá eftir nánari skilyrðum sem ákveðin skulu í reglugerð. Að öðru leyti gilda ekki sérstakar reglur um þjóðerni áhafna skipa sem skráð eru á íslenska alþjóðlega skipaskrá.
Áhafnir kaupskipa sem skráð eru á íslenska alþjóðlega skipaskrá skulu uppfylla lágmarkskröfur alþjóðasamþykktar um viðmiðanir að því er varðar menntun og þjálfun, skírteini og vaktstöður sjómanna (STCW) og skal gætt reglna um öryggismönnun.
12. gr.
Gjaldtaka.
13. gr.
Viðurlög o.fl.
14. gr.
Reglugerð.
15. gr.
Gildistaka.