135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 18 — 18. mál.
Frumvarp til laga
um breyting á ýmsum lagaákvæðum sem varða réttindi samkynhneigðra.
Flm.: Kolbrún Halldórsdóttir, Atli Gíslason, Katrín Jakobsdóttir, Ögmundur Jónasson, Bjarni Harðarson, Siv Friðleifsdóttir, Grétar Mar Jónsson.
Breyting á hjúskaparlögum, nr. 31/1993, með síðari breytingum.
1. gr.
2. gr.
Brottfall laga um staðfesta samvist, nr. 87/1996, með síðari breytingum.
3. gr.
Breyting á lögum um lögheimili, nr. 21/1990, með síðari breytingum.
4. gr.
Breyting á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, nr. 1/1997,
með síðari breytingum.
5. gr.
Breyting á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða,
nr. 129/1997, með síðari breytingum.
6. gr.
Breyting á lögum um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda, nr. 155/1998, með síðari breytingum.
7. gr.
a. Orðin „staðfestri samvist“ í 1. málsl. 3. mgr. falla brott.
b. Í stað orðanna „stofnar til sambúðar sem jafna má til hjúskapar eða stofnar til staðfestrar samvistar“ kemur: eða stofnar til sambúðar sem jafna má til hjúskapar.
Breyting á lögum um Lífeyrissjóð bænda, nr. 12/1999, með síðari breytingum.
8. gr.
Breyting á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, með síðari breytingum.
9. gr.
10. gr.
Breyting á lögum um erfðafjárskatt, nr. 14/2004, með síðari breytingum.
11. gr.
Breyting á lögum um ættleiðingar, nr. 130/1999, með síðari breytingum.
12. gr.
a. Orðin „einstaklingar í staðfestri samvist“ í 1. mgr. falla brott.
b. Orðin „staðfestri samvist eða“ í 2. og 3. mgr. falla brott.
Breyting á lögum um tæknifrjóvgun, nr. 55/1996, með síðari breytingum.
13. gr.
a. Orðin „staðfestri samvist“ í a-lið 1. mgr. falla brott.
b. Orðin „staðfestri samvist eða“ í e-lið 1. mgr. falla brott.
14. gr.
15. gr.
16. gr.
Breyting á barnalögum, nr. 76/2003, með síðari breytingum.
17. gr.
18. gr.
19. gr.
Greinargerð.
Frumvarp þetta gerir ráð fyrir að hjúskaparlögunum, nr. 31/1993, verði breytt þannig að þau gildi jafnt um öll pör, samkynhneigð sem gagnkynhneigð, og jafnframt að lögin um staðfesta samvist, nr. 87/1996, verði felld úr gildi.
Lögin um staðfesta samvist voru mikil réttarbót fyrir samkynhneigða, fjölskyldur þeirra, ættingja og vini. Þau gengu í gildi á alþjóðlegum frelsisdegi lesbía og homma 27. júní 1996 og voru gerð að fyrirmynd nágrannaþjóða okkar, Svía, Dana og Norðmanna. Í maí 2000 samþykkti Alþingi breytingar á lögunum um staðfesta samvist, þar sem stjúpættleiðingar barna fólks í staðfestri samvist voru heimilaðar og var Ísland annað landið í heiminum, á eftir Danmörku, þar sem þessi réttur var lögfestur. Þá voru einnig rýmkuð skilyrði varðandi ríkisborgararétt í tengslum við staðfesta samvist og lagfærð tiltekin lagatæknileg atriði.
Á grundvelli skýrslu nefndar forsætisráðherra um réttarstöðu samkynhneigðra, sem lögð var fyrir Alþingi á 131. löggjafarþingi 2004, var svo lagt fram frumvarp í nóvember 2005 þar sem lagðar voru til fjölþættar breytingar sem höfðu að markmiði að afnema þá mismunun sem enn fannst í lögum varðandi réttarstöðu samkynhneigðra. Þar var um að ræða skilyrði fyrir stofnun staðfestrar samvistar, skráningu staðfestrar samvistar í þjóðskrá, ýmis réttindi varðandi almannatryggingar, lífeyrisréttindi, fæðingarorlof, skattalega meðferð tekna og eigna, skipti dánarbúa o.fl. Einnig að heimild samkynhneigðra para til að ættleiða börn yrði sú sama og gagnkynhneigðra para og lesbískum konum í óvígðri sambúð eða staðfestri samvist yrði heimilað að gangast undir tæknifrjóvgun. Lög á grundvelli þessa frumvarps voru samþykkt á Alþingi 2. júní 2006. Eftir þessa breytingu má segja að óvígð sambúð samkynhneigðra sé lögð að jöfnu við óvígða sambúð gagnkynhneigðra, enda var það yfirlýst markmið ríkisstjórnarinnar og kom fram í greinargerð með frumvarpinu.
Það sem upp á vantar, til að samkynhneigðir og gagnkynheigðir séu að fullu jafnir fyrir lögunum, varðar hinn formlega þátt staðfestrar samvistar eða hjúskapar. Samkvæmt lögunum um staðfesta samvist eru það einungis sýslumenn og löglærðir fulltrúar þeirra sem hafa heimild til að staðfesta samvist para. Þannig er samkynhneigðum pörum ókleift að öðlast kirkjulega vígslu og það sama gildir um sáttaumleitanir í tengslum við skilnað. Samkvæmt lögunum um staðfesta samvist eru það aðeins sýslumenn eða dómarar sem leitað geta sátta milli einstaklinga í staðfestri samvist en ekki prestar eða forstöðumenn trúfélaga eins og þegar um gagnkyhneigð pör er að ræða. Þetta eru hin formlegu atriði sem gera það að verkum að tvenn lög gilda í landinu um hjúskap einstaklinga; önnur um gagnkynhneigð pör en hin um samkynhneigð pör.
Það er mat flutningsmanna að það sé grundvallaratriði að löggjöfin mismuni ekki fólki. 65. gr. stjórnarskrárinnar er ætlað að koma í veg fyrir að slíkt gerist. Samkvæmt henni skulu allir vera jafnir fyrir lögunum, en segja má að á meðan tvenn lög gilda um hjúskap, eftir kynhneigð fólks, sé farið fram hjá þessari grundvallarreglu. Þann 6. desember 2005 barst Alþingi áskorun frá Samtökum foreldra og aðstandenda samkynhneigðra (FAS) um að breyta hjúskaparlögunum á þann veg að þau þjónuðu bæði gagnkynhneigðu og samkynhneigðu fólki. Sú áskorun skipti sköpum um tilurð þessa frumvarps og er greinargerð sem fylgdi áskoruninni aðgengileg á heimasíðunni: samtokinfas.is/.
Málefni samkynhneigðra hafa lengi verið á dagskrá þjóðkirkjunnar og ofarlega á baugi í umræðu innan hennar, sem og annars staðar í kirkjum víða um heim. Þetta kemur m.a. fram í drögum að ályktun kenningarnefndar kirkjunnar frá apríl 2006, sem endurskoðuð voru eftir prestastefnu og kirkjuþing 2006. Þjóðkirkjan hefur með umsögnum sínum komið að vinnu löggjafans við þær lagabreytingar. Innan kirkjunnar hafa verið skiptar skoðanir um einstaka þætti málsins en á sínum tíma studdi þjóðkirkjan setningu laganna um staðfesta samvist. Nefnd forsætisráðherra frá 2004, sem hér hefur verið getið um, hvatti þjóðkirkjuna til að breyta afstöðu sinni til hjónabanda samkynhneigðra þannig að samkynhneigðir gætu fengið kirkjulega vígslu eins og gagnkynhneigð pör. Um þann þátt málsins hefur verið ágreiningur innan kirkjunnar.
Samtök foreldra og aðstandenda samkynhneigðra (FAS) og Prestafélag Íslands hafa markvisst unnið að því að leysa ágreiningsmálin sem komið hafa upp varðandi samkynhneigða, trú og kirkju. Í því augnamiði stofnuðu félögin til þriggja málþinga á árunum 2004 og 2005, sem fjölluðu hvert á sinn hátt um afmarkaða þætti. Hið fyrsta bar yfirskriftina Hvar stöndum við?, annað Fjölskyldur samkynhneigðra og hjúskaparform, og hið þriðja Getur íslenska Þjóðkirkjan haft frumkvæði í málefnum samkynhneigðra? Afrakstur málþinganna og erindin sem þar voru flutt birtust í 1. tbl. Kirkjuritsins 71. árg. og gefa þau glögga mynd af vel ígrundaðri afstöðu og rökstuðningi fræðimanna, presta, lögfræðinga og leikmanna. Við skoðun helstu þátta ágreiningsins liggur nokkuð ljóst fyrir að tímabært er að ein hjúskaparlög gildi um alla borgara landsins. Með því mælir einnig Sólveig Anna Bóasdóttur í ágætri grein Kristinn mannskilningur, Kynverund – kynheilsa – kynverundarréttindi, sem birtist í Ritröð Guðfræðistofnunar 2007.
Í skýrslu nefndar forsætisráðherra um réttarstöðu samkynhneigðra frá 2004 er ítarlega farið yfir sambúðarform samkynhneigðra í nágrannalöndum okkar auk þess sem gerð er grein fyrir ýmsum álitaefnum er varða vernd fjölskyldulífs og rétt samkynhneigðra til að ganga í hjúskap. Þar kemur í ljós að Svíar, og nú við Íslendingar, höfum gengið einna lengst Norðurlandaþjóðanna í að jafna rétt samkynhneigðs fólks og gagnkynhneigðs. Síðan skýrslan kom út hafa Svíar hafið undirbúning að lagabreytingum sem leggja munu hjúskap samkynhneigðs fólks að jöfnu við hjúskap gagnkynhneigðra. Þar í landi er undirbúningur lagabreytinga afar gagnsær og almenningi gert kleift að fylgjast með hugmyndunum, sem ríkisstjórnin vinnur eftir. Lagabreytingavinnunni er skipt í skilgreind þrep og er þetta tiltekna lagafrumvarp nú statt á öðru þrepi af sjö, áður en það verður að lögum. Núna er í undirbúningi skýrsla sem verður grundvöllur væntanlegs frumvarps og hafa höfundar skýrslunnar skilgreint efnistökin á eftirfarandi hátt:
a. Gera skal grein fyrir öllum rökum gegn því að leyfa einstaklingum af sama kyni að ganga í hjónaband.
b. Taka skal afstöðu til þess hvort rýmka eigi heimild til þess að ganga í hjónaband þannig að hún nái einnig til para af sama kyni.
c. Taka skal afstöðu til þess hvaða formlegu skilyrði eigi að gilda um hjónavígsluna, þ.e. hvort hún eigi að felast í veraldlegri og/eða trúarlegri athöfn.
d. Hvort leiðtogar trúarsafnaða eigi að hafa heimild til að gefa fólk saman með sama hætti og borgaralegir aðilar.
e. Að gera tillögur um breytingar á lögum um staðfesta samvist.
Höfundar sænsku skýrslunnar halda því fram að þótt ekki sé hægt að byggja kröfuna um hjónaband tveggja einstaklinga af sama kyni á alþjóðalögum um mannréttindi, þá sé sannarlega ekkert í alþjóðlegum skuldbindingum sem komi í veg fyrir að ríki lögleiði slík hjónabönd. Einnig er lögð áhersla á að staðfest samvist og hjónaband hafi nú þegar sambærilega stöðu fyrir lögum þannig að ekki sé ástæða til að gera upp á milli möguleika gagnkynhneigðra og samkynhneigðra til þess að ganga í hjónaband. Þá er því haldið fram að hefðbundin viðhorf til hjónabandsins geti breyst rétt eins og aldagamlir fordómar í garð samkynhneigðar hafa breyst. Sænska stjórnarskráin leggur þá skyldu á herðar löggjafanum að vinna gegn misrétti (diskriminering) á grundvelli kynhneigðar og þótt skýrsluhöfundar telji ekki hægt að halda því fram að samkynhneigðir séu beittir misrétti með því að vera neitað um að ganga í hjónaband, þá sé þar um mismunun að ræða.
Eftirfarandi atriði hefur verið fjallað um í sænsku skýrslunni:
a. Hugtakið „hjónaband“.
Ýmis trúarfélög, þar á meðal sænska þjóðkirkjan, hafa sagt hjónabandið einungis geta náð yfir sambúð karls og konu og þess vegna skuli annað lagalegt hugtak notað um sambúð tveggja einstaklinga af sama kyni. Höfundum þykja þessi rök mega sín lítils í ljósi þess að það er
i. óþarfi að finna upp nýtt heiti,
ii. hugsanlega erfitt að finna nýtt sambærilegt hugtak við hjónabandið og
iii. hætta á að fyrir erlendum yfirvöldum yrði nýja heitið álitið hafa minna gildi en hjónabandið.
b. Æxlun.
Það er ekki skilyrði fyrir því að einstaklingar teljist hjón að þeir eigi saman börn. Þess vegna er ekki hægt að beita þeim rökum gegn hjónabandi samkynhneigðra að ríkið verði að vernda hjónabandið sem þjóðfélagslega stofnun fyrir barneignir og barnauppeldi.
c. Sjónarhóll barnsins.
Mikilvægara virðist að samband foreldra barns sé gott og tryggt en að foreldrar þess séu karl og kona. Ef eitthvað er til í þeirri fullyrðingu að það veiti barninu sterkari öryggiskennd ef uppalendur þess eru hjón, er erfitt að réttlæta þá stefnu að þeir megi ekki giftast séu þeir af sama kyni.
d. Önnur sambúðarform.
Ekki verður séð að hjónaband samkynhneigðra muni rýra gildi eða tíðni hjónabanda gagnkynhneigðra. Ný sambúðarform væru það mikið frávik frá hjónabandi, t.d. milli aðila af saman kyni, að ekki verður séð að lögleiðing slíks hjónabands fæli það í sér að fjölskylduformið tæki algjörum stakkaskiptum.
e. Þörfin fyrir breytingar á lögum.
Heppilegra er að afnema lögin um staðfesta samvist og láta ein og sömu hjúskaparlög gilda jafnt um hjón af sama kyni sem og af báðum kynjum enda er lagalegur munur á hjónabandi og staðfestri samvist nánast enginn. Fyrir því er einnig útbreiddur vilji.
f. Hugsanlegar flækjur í samskiptum við önnur ríki.
Engin vandamál fylgdu því þegar ýmis ríki lögleiddu staðfesta samvist. Því ætti ekki að koma til neinna lagaflækja tengdra einkarétti og réttarfarslögum ef og þegar hjónaband samkynhneigðra yrði lögleitt.
g. Ályktun höfunda skýrslunnar.
Rökin með breytingu á hjúskaparlögum virðast sterkari en rökin á móti. Sömu lög eiga að gilda og áður með þeirri breytingu að ekki er tekið tillit til kyns eða kynhneigðar hjóna.
Niðurstaða skýrsluhöfunda er sú að bráðabirgðaráðstafanir vegna lagaskila eigi að vera þær að sérhver staðfest samvist sem ekki hefur verið rift verði endurskilgreind sem hjónaband. Í skýrslunni er einnig tekið á álitamálum er tengjast reglugerðum Evrópuráðsins og samspili við erlenda löggjöf.
Röksemdir sænsku skýrsluhöfundanna eru afar sambærilegar rökum þeirra sem fluttu erindi á málþingum FAS og Prestafélags Íslands. Benda má sérstaklega á erindi Láru Júlíusdóttur, hæstaréttarlögmanns og lektors við Háskóla Íslands, Hvað er hjónaband í skilningi laganna? og erindi Sólveigar Önnu Bóasdóttur, guðfræðings og doktors í guðfræðilegri siðfræði, Hjónaband samkynhneigðra: hvers vegna – hvers vegna ekki? Það sem kannski skilur á mill eru vangaveltur um orðsifjafræði. Um hana fjallar sr. Sigfinnur Þorleifsson m.a. í erindi sínu Er ástæða til að endurskoða hjónaritual kirkjunnar?
Við samningu frumvarps þessa hafa verið vangaveltur um það hvort, af orðsifjafræðilegum ástæðum, væri rétt að finna annað orð yfir hið formlega sambúðarform samkynhneigðra. Í því sambandi hafa verið nefnd orð eins og „festarband“ , „tryggðaband“ eða „tvíband“, jafnvel að halda mætti hugtakinu „staðfest samvist“. Eftir nokkra yfirlegu er það niðurstaða flutningsmanna að slík niðurstaða sé óheppileg þar sem hún viðhaldi aðgreiningunni sem frumvarpinu er ætlað að koma í veg fyrir. Það er því lagt til hér að orðin „hjónaband“ og „hjúskapur“ verði notuð yfir hið formlega sambúðarform hvort sem parið er tveir einstaklingar af sama kyni eða tveir einstaklingar af gagnstæðu kyni. Frumvarpið varðar í sjálfu sér mannréttindi og er fyrst og fremst hugsað til að jafna rétt samkynhneigðra para til að ganga í hefðbundið hjónaband. Það er mat flutningsmanna að það væri vel viðeigandi að Alþingi Íslendinga samþykkti lagafrumvarp sem tryggði öllum sömu réttindi varðandi hjúskap og hjónaband á Evrópuári jafnra tækifæra 2007.