Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 50. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 50  —  50. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um félagslega aðstoð, nr. 99/2007.

Flm.: Kristinn H. Gunnarsson, Guðjón A. Kristjánsson,


Grétar Mar Jónsson, Jón Magnússon.


1. gr.

    5. gr. laganna orðast svo:
    Heimilt er að greiða umönnunargreiðslur skv. 4. gr. til maka elli- eða örorkulífeyrisþega, sem dvelst í heimahúsi, eða öðrum nákomnum lífeyrisþeganum sem annast lífeyrisþegann. Ráðherra setur nánari reglur um framkvæmd þessa ákvæðis.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Núverandi lagaákvæði í 5. gr. er rýmkað nokkuð með frumvarpi þessu. Í fyrsta lagi verða heimilar umönnunargreiðslur til annarra en þeirra sem eiga sameiginlegt lögheimili með elli- eða örorkulífeyrisþeganum og er þá miðað við að sá sem umönnunargreiðslur fær sé nákominn lífeyrisþeganum, ættingi eða náinn vinur. Í öðru lagi eru lagðar niður núverandi makabætur og umönnunarbætur og þess í stað lagt til að teknar verði upp umönnunargreiðslur skv. 4. gr. laganna. Við það hækka greiðslurnar úr því að vera allt að 80% af grunnlífeyri og tekjutryggingu almannatrygginga eða um 82.700 kr. í allt að 96.978 kr. á mánuði. Loks er í þriðja lagi fellt úr gildandi lögum skilyrði um að sérstakar aðstæður þurfi að vera fyrir hendi og þannig verður heimild laganna rýmri en áður.
    Breytingarnar í frumvarpinu munu sérstaklega gagnast aðstandendum alzheimer-sjúklinga og öðrum þeim sem þurfa stöðuga umönnun og athygli annarra og eru auk þess í takt við sjálfsagðar kröfur sem nú eru uppi um að öldruðum verði gert kleift að búa sem lengst á eigin heimili og auka með þeim hætti lífsgæði þeirra.
    Þrátt fyrir nokkra hækkun á greiðslum verður kostnaður við umönnun á hverjum mánuði einungis sem svarar einnar viku kostnaði við hjúkrunarrými og því má leiða að því sterkar líkur að umrædd breyting leiði til sparnaðar fyrir ríkissjóð. Á síðasta ári voru greiddar samtals 92 millj. kr. til 125 einstaklinga í makabætur og umönnunarbætur. Þær greiðslur hefðu orðið um það bil 107 millj. kr. ef gilt hefði fjárhæðin í frumvarpinu. Rýmkun á heimild laganna mun vafalaust fjölga þeim sem fá umönnunargreiðslur, enda til þess ætlast. Ekki er unnt að leggja mat á þann kostnað að svo stöddu né þann sparnað fyrir ríkissjóð sem hlýst af því að viðkomandi mun líklega dvelja lengur í heimahúsi en ella. Þykir því rétt að hafa lagaákvæðið í formi heimildar um sinn.