Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 77. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 77  —  77. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um stöðu íslenskrar tungu.

Frá Ólöfu Nordal.


    
    Hyggst ráðherra grípa til sérstakra aðgerða í því skyni að styrkja stöðu íslenskrar tungu? Mun ríkisstjórnin beita sér fyrir því að sett verði ákvæði í stjórnarskrá um að íslenska sé þjóðtunga Íslendinga?