Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 85. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 85  —  85. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um náttúruvernd við Mývatn og Laxá í Suður-Þingeyjarsýslu.

Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur.


     1.      Hvað veldur því að dregist hefur að setja reglugerð skv. 3. gr. laga um verndun Mývatns og Laxár í Suður-Þingeyjarsýslu, nr. 97/2004?
     2.      Hvað veldur því að dregist hefur að gera verndaráætlun um þau svæði sem falla undir 6. gr. laganna og átti að vera lokið 1. janúar 2006?
     3.      Hvað líður vinnu við undirbúning friðlýsingar þeirra mikilvægu svæða sem ekki falla undir ákvæði 1. mgr. 2. gr. laganna og gerð verndaráætlunar um þau samkvæmt ákvæði til bráðabirgða við lögin?
     4.      Hefur landeigendum við Mývatn og Laxá og sveitarstjórnum verið tilkynnt hvaða landsvæði áformað er að friðlýsa, eins og gera skal samkvæmt ákvæði til bráðabirgða við lögin?


Skriflegt svar óskast.