Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 89. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 89  —  89. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um meðferð opinberra mála, nr. 19/1991, með síðari breytingum.

Flm.: Kristinn H. Gunnarsson.



1. gr.

    Við 1. mgr. 87. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þegar úrskurður um aðgerðir á grundvelli a-, c- eða d-liðar 86. gr. er kveðinn upp skal dómari skipa þolendum aðgerðanna réttargæslumann.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Með frumvarpi þessu er lagt til að þeim sem er þolandi að þeim aðgerðum sem beitt er í þágu rannsóknar sakamáls og taldar eru upp í a-, c- og d-lið 86. gr. verði skipaður réttargæslumaður. Samkvæmt framangreindum ákvæðum er um að ræða símhlerun, hlustun og kvikmyndun eða ljósmyndun. Þessar aðgerðir eiga það sameiginlegt að þeim er beint að aðila sem veit ekki af þeim, enda yrðu þær tilgangslausar ef svo væri.