Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 116. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 117  —  116. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um sjávarlíffræðisafn og rannsóknarsetur á Akureyri.

Flm.: Björn Valur Gíslason, Þuríður Backman, Birkir J. Jónsson,


Höskuldur Þórhallsson, Þorvaldur Ingvarsson.


    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að hefja nú þegar undirbúning þess að koma á fót á Akureyri sjávarlíffræðisafni og rannsóknarsetri um auðlindir og lífríki hafsins, í samvinnu við Háskólann á Akureyri og sveitarfélög við Eyjafjörð.

Greinargerð.


    Íslenska þjóðin hefur um aldir byggt afkomu sína á fjölbreyttu lífríki sjávar og nýtingu sjávarauðlinda og þarf ekki að fjölyrða um mikilvægi þekkingar á hafinu og lífríki þess fyrir okkur Íslendinga.
    Tilgangur með stofnun rannsóknarseturs um auðlindir og lífríki sjávar yrði m.a. að rannsaka enn frekar en hingað til áhrif hafstrauma við landið, ástand hafsbotnsins á landgrunninu, kóralsvæði, hverastrýtur og annars konar náttúrusvæði á hafsbotni, einnig að kanna margs konar áhrif veiðarfæra á hafsbotninn og lífríki sjávar, áhrif loftslagsbreytinga á hitastig sjávar og lífríki þess. Rannsóknarsetrinu yrði m.a. ætlað að kanna stöðu og þróun frumframleiðslunnar, svifs, átu, botndýra og gróðurs, og þau áhrif sem umgengni manna hefur á þessa þætti. Rannsóknarsetrinu yrði gert að vinna að rannsóknum á fiskstofnum í samstarfi við Hafrannsóknastofnunina með það að meginmarkmiði að nýting þeirra verði sjálfbær og umhverfisvæn. Mikilvægt er að hefja nú þegar viðamiklar rannsóknir á áhrifum ferskvatns, flæðis og framburðar jökuláa á lífríki hafsins en vísbendingar eru um að áhrif þessara þátta á frumframleiðslu sjávar, þ.e. svifþörunga, séu mun meiri en áður hefur verið talið.
    Framantalin atriði eru aðeins örfá dæmi um þau verkefni sem rannsóknarsetrinu yrði falið að vinna að og auðveldlega má tengja við fræðastörf innan Háskólans á Akureyri þar sem fyrir er áhugi, reynsla og þekking á þeim málum.
    Rannsóknarsetur og safn um líffræði hafsins yrði mikilvægt skref í átt að stórauknum og bættum rannsóknum á þessu sviði ásamt því að miðla niðurstöðum úr vísindalegum rannsóknum til almennings.
    Frá sjónarmiði háskólanáms og með eflingu Háskólans á Akureyri í huga mundi svona verkefni án vafa draga að sér fjölda erlendra fræðimanna og ekki síður námsmanna sem sækjast í rannsóknir og þekkingu á lífríki sjávar. Ísland hefur lengi verið talið gullnáma jarðfræðinema og gósenland jarðfræðinga vegna aðstæðna hér á landi. Það sama ætti að sjálfsögðu að eiga við þegar horft er til hafsins, fá lönd geta boðið upp á meiri fjölbreytilega þegar horft er til lífríkis eða náttúru hafsins.
    Safn um líffræði sjávar hlýtur að verða eitt af höfuðsöfnum landsins, hið eina sem væri utan þéttbýlisins á suðvesturhorninu. Safnið mundi ekki aðeins nýtast landsmönnum til almennrar fræðslu og upplifunar um hafið og lífríki þess, heldur mundi það ekki síður laða að erlenda ferðamenn og fræða þá um náttúru og lífríki Íslands. Safn sem þetta, í tengslum við rannsóknarsetur, yrði fræðimönnum hvaðanæva úr heiminum djúpur brunnur til að sækja í fróðleik um einstakt lífríki hafsins við Ísland ásamt einstakri aðstöðu til rannsókna á hafinu og náttúru þess.
    Fjölmörg sjávarlífssöfn má finna á Norðurlöndum en ekkert þeirra tengist rannsóknum með þeim hætti sem hér er sett fram. Svo vitað sé er ekkert slíkt safn til annars staðar þannig að hér er um einstakt tækifæri að ræða til að taka forustu á heimsvísu á þessu sviði.
    Aðstæður til að setja slíkt safn á fót við Pollinn á Akureyri er einstakar. Þar má auðveldlega sjá fyrir sér að safn um sjávarlíffræði verði að hluta til neðansjávar, þar mætti sýna fiska í náttúrlegu umhverfi, kræklingaeldi, fiskeldi, hafsbotninn, botngróður og manngerðar eftirlíkingar af ýmsum náttúruundrum hafsins.
    Þá er ljóst að safn og rannsóknarsetur af þessu tagi yrði gífurleg lyftistöng fyrir aðrar atvinnugreinar nyrðra og ekki síst ferðaþjónustuna.
    Flutningsmenn telja að fyrstu skref í átt að rannsóknarsetri og sjávarlíffræðisafni á Akureyri ættu að vera þau að setja saman hóp fræðimanna, sjómanna, sveitarstjórnarmanna og áhugafólks sem síðan skilaði ríkisstjórninni fullbúnum tillögum. Þessum hópi yrði jafnframt falið að leita leiða til að tryggja þátttöku innlendra sem erlenda háskóla og stofnana á sviði rannsókna á lífríki sjávar í þessu verkefni. Flutningsmenn telja einnig rétt að setja undirbúningshópnum nokkuð þröng tímamörk svo að framkvæmdir geti hafist hið allra fyrsta.