Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 124. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 125  —  124. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um fjölda óskoðaðra og ótryggðra ökutækja í umferð.

Frá Álfheiði Ingadóttur.



     1.      Hversu mörg óskoðuð og ótryggð ökutæki eru í umferð?
     2.      Hversu mörg óskoðuð ökutæki og ökutæki með bráðabirgðaskoðun hafa tengst banaslysum undanfarin fimm ár, flokkað eftir umdæmum?
     3.      Hverjar telur ráðherra vera skýringar á fjölda óskoðaðra og ótryggðra bifreiða í umferðinni?