Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 139. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 146  —  139. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um Teigsskóg.

Frá Álfheiði Ingadóttur og Kolbrúnu Halldórsdóttur.



     1.      Hver er staða annars áfanga Vestfjarðavegar 60 um Gufudalssveit, þ.e. uppbyggingar vegarins frá Þórisstöðum í Þorskafirði að Kraká á Skálanesi?
     2.      Hvert er núverandi kostnaðarmat Vegagerðarinnar á leið B annars vegar og leið D hins vegar í framangreindum öðrum áfanga Vestfjarðavegar 60?
     3.      Hefur ráðherra kynnt sér útreikninga Gunnlaugs Péturssonar verkfræðings sem benda til þess að komast megi hjá eyðileggingu verðmætra náttúrusvæða án mikils aukakostnaðar með því gera göng undir Hjallaháls í stað þess að leggja Vestfjarðaveg 60 út fyrir Hallsteinsnes og yfir minni Djúpafjarðar og Gufufjarðar (leið B)?


Skriflegt svar óskast.