Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 140. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 147 — 140. mál.
til umhverfisráðherra um Teigsskóg.
1. Telur ráðherra það samrýmast tilnefningu Breiðafjarðar sem Ramsarsvæðis og skráningu fjarðarins á tilnefningarlista íslensku heimsminjanefndarinnar að leggja veg við norðurströnd fjarðarins um ósnortinn birkiskóg, við arnarsetur og á vaxtarsvæði friðaðrar jurtar?
2. Hvernig hefur ráðherra brugðist við tillögu nefndar um vernd og endurheimt íslenskra birkiskóga, að Teigsskógur við Þorskafjörð verði tekinn inn á næstu náttúruverndaráætlun?
3. Hefur ráðherra kynnt sér útreikninga Gunnlaugs Péturssonar verkfræðings sem benda til þess að komast megi hjá eyðileggingu verðmætra náttúrusvæða án mikils aukakostnaðar með því að gera göng undir Hjallaháls í stað þess að leggja Vestfjarðaveg 60 út fyrir Hallsteinsnes og yfir mynni Djúpafjarðar og Gufufjarðar (leið B)?
Skriflegt svar óskast.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 147 — 140. mál.
Fyrirspurn
til umhverfisráðherra um Teigsskóg.
Frá Álfheiði Ingadóttur og Kolbrúnu Halldórsdóttur.