Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 202. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 217  —  202. mál.




Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um vopnaburð herflugvéla.

Frá Steingrími J. Sigfússyni.



     1.      Liggur fyrir hvort erlendar orustuflugvélar, sem ríkisstjórnin hyggst fá hingað til svokallaðs loftrýmiseftirlits eða æfinga, munu bera vopn? Ef svo er, um hvers konar vopn, skotvopn, flaugar og sprengiodda verður þá að ræða?
     2.      Verður leyft að æfa vopnanotkun á íslensku yfirráðasvæði? Ef svo er, hvaða reglur munu þá gilda um slíkt, sem og um vopnaburðinn sjálfan?