Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 140. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 222  —  140. mál.




Svar



umhverfisráðherra við fyrirspurn Álfheiðar Ingadóttur og Kolbrúnar Halldórsdóttur um Teigsskóg.

     1.      Telur ráðherra það samrýmast tilnefningu Breiðafjarðar sem Ramsarsvæðis og skráningu fjarðarins á tilnefningarlista íslensku heimsminjanefndarinnar að leggja veg við norðurströnd fjarðarins um ósnortinn birkiskóg, við arnarsetur og á vaxtarsvæði friðaðrar jurtar?
    Að mati ráðuneytisins er fátt sem fram hefur komið um fyrirhugaða vegarlagningu um Þorskafjörð sem stangast á við hugsanlega tilnefningu Breiðafjarðarsvæðisins á lista Ramsarsamningsins yfir alþjóðlega mikilvæg votlendissvæði og skráningu á tilnefningarlista Íslands fyrir heimsminjaskrá UNESCO og jafnvel við tilnefningu svæðisins á heimsminjaskrána. Ramsarsamningurinn er samningur um verndun alþjóðlegra mikilvægra votlendissvæða, einkum fyrir fuglalíf og er þá sérstaklega átt við andfugla og gæsir. Á síðari árum hefur túlkun samningsins verið útvíkkuð þannig að nú er áhersla lögð á fleiri tegundir vatnafugla, svo sem vaðfugla og sjófugla. Framkvæmdin ætti tæpast að hafa áhrif á tilnefningu Breiðafjarðar á skrá Ramsarsamningsins, þótt hún geti hugsanlega haft áhrif á önnur náttúruverðmæti en þau er samningurinn tekur til.
    Tilnefningarlisti til skrifstofu heimsminjasamnings UNESCO er yfirlýsing um að Ísland kunni í framtíðinni að tilnefna viðkomandi svæði á heimsminjalistann, undirbúningur að tilnefningu er ekki hafinn en svæðið er talið eiga erindi inn á heimsminjalistann sem menningar- og náttúruminjasvæði. Friðlýsing Breiðafjarðar nær til eyja, hólma og skerja ásamt fjörum í innri hluta Breiðafjarðar og vegarlagning um skóginn hefur því vart áhrif á tilnefningu Breiðafjarðar á heimsminjalistann. Með þverun Djúpafjarðar er vissulega farið inn á verndarsvæði Breiðafjarðar, en verði tryggt að full vatnsskipti verði um Djúpafjörð er ekki talið að verndargildi svæðisins rýrni.

     2.      Hvernig hefur ráðherra brugðist við tillögu nefndar um vernd og endurheimt íslenskra birkiskóga, að Teigsskógur við Þorskafjörð verði tekinn inn á næstu náttúruverndaráætlun?
    Tillögur nefndarinnar hafa verið til skoðunar í ráðuneytinu og hvernig brugðist verður við þeim. Næsta náttúruverndaráætlun fyrir tímabilið 2009–2013 er í undirbúningi á vegum ráðuneytisins og hefur samráðshópur ráðuneytisins, Umhverfisstofnunar og Náttúrufræðistofnunar Íslands sem skipaður var í sumar það verkefni að gera tillögur til ráðuneytisins um næstu áætlun. Fram kom á V. umhverfisþingi sem haldið var dagana 12.–13. október sl. að hópurinn mun við vinnu sína taka mið af skuldbindingum, stefnumótun, áætlunum og tillögum ráðuneytisins, þar á meðal eru tillögur nefndar um verndun birkiskóga.

     3.      Hefur ráðherra kynnt sér útreikninga Gunnlaugs Péturssonar verkfræðings sem benda til þess að komast megi hjá eyðileggingu verðmætra náttúrusvæða án mikils aukakostnaðar með því að gera göng undir Hjallaháls í stað þess að leggja Vestfjarðaveg 60 út fyrir Hallsteinsnes og yfir mynni Djúpafjarðar og Gufufjarðar (leið B)?
    Ráðuneytið hefur kynnt sér þau gögn sem Gunnlaugur Pétursson hefur lagt fram í þessu máli og hugmyndir hans um breytt vegarstæði og útreikninga á væntanlegum kostnaði framkvæmdarinnar í tengslum við úrskurð ráðuneytisins í kæru varðandi lagningu vegar um Þorskafjörð. Það er hins vegar ekki hlutverk ráðuneytisins að leggja mat á þá kosti sem ekki voru tilgreindir í mati á umhverfisáhrifum Vestfjarðavegar 60 á þessum kafla í úrskurði ráðuneytisins vegna kæru um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar.