Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 235. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 255  —  235. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um aðgerðir lögreglu gegn þeim sem nota netið í glæpsamlegum tilgangi.

Frá Steingrími J. Sigfússyni.



     1.      Hvernig regluverk og umbúnað telur ráðherra heppilegastan fyrir lögreglustarfsemi tengda netinu?
     2.      Hefur dómsmálaráðuneytið tekið til skoðunar að heimila lögreglunni beitingu forvirkra aðferða í baráttu gegn barnaníðingum og eftir atvikum öðrum sem nota netið í glæpsamlegum tilgangi?