Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 242. máls.
Þskj. 262 — 242. mál.
a. Í stað „51,00 kr./kg“ kemur: 72,00 kr./kg.
b. Í stað „85,00 kr./kg“ kemur: 120,00 kr./kg.
c. Í stað „170,00 kr./kg“ kemur: 240,00 kr./kg.
d. Í stað „204,00 kr./kg“ kemur: 288,00 kr./kg.
e. Í stað „272,00 kr./kg“ kemur: 384,00 kr./kg.
f. Í stað „408,00 kr./kg“ kemur: 576,00 kr./kg.
Í frumvarpi þessu er lagt til að fresta ákvæði um að leggja úrvinnslugjald á einnota drykkjarvöruumbúðir, í stað núverandi skilagjalds og umsýsluþóknunar á einnota drykkjarvöruumbúðir úr áli, stáli, gleri og plastefnum, til 1. janúar 2010, þannig að starfsemi Endurvinnslunnar hf., sbr. lög nr. 52/1989, um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur, verði óbreytt til ársins 2010. Einnig eru lagðar til breytingar er varða fjárhæð úrvinnslugjalds á heyrúlluplast, málningu og litarefni og vörur í ljósmyndaiðnaði. Lögð er til hækkun úrvinnslugjalds hvað varðar málningu, litarefni og vörur í ljósmyndaiðnaði. Er þessi breyting til komin af því að leiðrétta þarf álagningarstofn úrvinnslugjalds á þessa vöruflokka vegna þess að tekjur viðkomandi sjóða hafa ekki staðið undir rekstri þeirra. Þessar hækkanir eru lagðar til í samráði við aðila á markaði, er málið varðar. Þá þykir rétt að samræma úrvinnslugjald á heyrúlluplast við úrvinnslugjald á plastumbúðum. Í dag er innsöfnun á heyrúlluplasti góð. Eftir að farið var að sækja heyrúlluplast til bænda eða á söfnunarstöðvar er meðhöndlun á innsöfnuðu heyrúlluplasti sams konar og meðhöndlun annars umbúðaplasts. Við það að sameina heyrúlluplast og umbúðaplast í einn flokk, eins og lagt er til í frumvarpinu, nýtist árangur við endurnýtingu á heyrúlluplasti til að ná markmiðum Íslands gagnvart tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins samkvæmt tilskipun 94/62/EB, um umbúðir og umbúðaúrgang, um endurnýtingu og endurvinnslu umbúða er falla til á hverju ári. Loks er lagt til að skipt verði upp tollnúmeri á litlar gröfur í tvö tollnúmer. Frumvarpið, einkum 3. og 4. gr., byggist á tillögum stjórnar Úrvinnslusjóðs í samræmi við 3. mgr. 4. gr. laganna. Frumvarp þetta er unnið í samráði við fjármálaráðuneytið með vísan til 3. mgr. 4. gr. laganna.
Í greininni er lagt til að fresta ákvæði til bráðabirgða I um álagningu úrvinnslugjalds á einnota drykkjarvöruumbúðir úr áli, stáli, plasti og gleri um tvö ár og komi það til framkvæmda 1. janúar 2010, í stað 1. janúar 2008. Þannig er lagt til að starfsemi Endurvinnslunnar hf., sbr. lög nr. 52/1989, um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur, verði óbreytt til þess tíma. Ákvæðið var sett með það að markmiði að Endurvinnslan hf. hætti starfsemi í núverandi mynd og hluti af starfsemi Endurvinnslunnar hf. færðist til Úrvinnslusjóðs. Miklar breytingar hafa orðið á allri tilhögun um úrvinnslu úrgangs frá því að lögin voru sett árið 2002 og er m.a. nú lögð aukin áhersla á ábyrgð framleiðenda vegna meðhöndlunar úrgangs. Vilji er fyrir því að setja einnota drykkjarvöruumbúðir í kerfi sem framleiðendur bera ábyrgð á og gefa þarf rýmri tíma til að vinna að því verkefni og er því lagt til að gildistöku þessa ákvæðis verði frestað um tvö ár.
Bændasamtök Íslands hafa óskað eftir því að heyrúlluplast verði talið með öðrum plastumbúðum sem bera úrvinnslugjald. Fallist hefur verið á þessa skoðun. Rétt þykir að álagning úrvinnslugjalds á heyrúlluplast verði samræmt álagningu á annað umbúðaplast, enda mun árangur af innsöfnun og endurnýtingu á heyrúlluplasti vera talinn með öðru umbúðaplasti. Því er lagt til að lagðar verði 3 kr./kg á heyrúlluplast eins og aðrar umbúðir gerðar úr plasti og við það lækkar úrvinnslugjald á heyrúlluplast. Ekki er lagt til að ákvæði um úrvinnslugjald á heyrúlluplast verði sett inn í 7. gr. a laganna, sem fjallar um úrvinnslugjald á aðrar umbúðir, heldur verði haldið áfram að ákvarða gjaldtöku á tollnúmeri í viðauka I. Þetta er gert þar sem talið er mikilvægt að fylgjast með þróun og sjá hvert stefnir með þetta gjald fyrst í stað til að hægt sé að meta árangur af þessari breytingu og ef þörf krefur að endurskoða hana er fram líða stundir.
Í greininni er gerð tillaga um að úrvinnslugjald á vörur í málningariðnaði, þ.e. málningu og litarefni, í viðauka VIII við lögin hækki um 25% eða úr 20 kr./kg í 25 kr./kg. Þetta er lagt til þar sem tekjur af þessum vöruflokki hafa ekki staðið undir árlegum rekstri sjóðsins en hlutfall skila á málningarafgöngum hafa verið meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Gera má ráð fyrir að með þessari hækkun snúist halli sjóðsins vegna þessa vöruflokks við og innan 3–5 ára verði komið á jafnvægi.
Í greininni er gerð tillaga um að úrvinnslugjald á vörur í ljósmyndaiðnaði í viðauka XII við lögin hækki um 41%. Tillaga þessi er gerð vegna þess að tekjur af þessum vöruflokki hafa minnkað með tilkomu stafrænnar tækni við prentun en tilkostnaður og magn úrgangs hefur ekki minnkað að sama skapi. Í ljósi þess að notkun framköllunarvökva fer minnkandi ár frá ári, verður að bregðast við með þessum hætti svo að jafnvægi náist í sjóðnum á 3–5 árum vegna þessa vöruflokks.
Lagt er til að í stað tollnúmers 8429.5200 í viðauka XVI sem er fyrir litlar gröfur komi í tollskrá tvö tollnúmer. Hér er um að ræða leiðréttingu sem kemur í veg fyrir að úrvinnslugjald á hjólbarða sé lagt á beltagröfur. Með þessari breytingu er gert ráð fyrir því að einungis tollnúmer sem er fyrir gröfur á hjólum beri úrvinnslugjald en ekki gröfur á beltum.
Lagt er til að lögin taki gildi 1. janúar 2008.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Verði frumvarpið óbreytt að lögum má því ætla að tekjur af úrvinnslugjaldi lækki um 18,8 m.kr. á heilu ári. Tekjur af úrvinnslugjaldi renna óskiptar til Úrvinnslusjóðs að undanþegnu 0,5% umsýslugjaldi sem rennur til ríkissjóðs.
Þskj. 262 — 242. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um úrvinnslugjald, nr. 162/2002,
með síðari breytingum.
(Lagt fyrir Alþingi á 135. löggjafarþingi 2007–2008.)
1. gr.
2. gr.
3. gr.
4. gr.
a. Í stað „51,00 kr./kg“ kemur: 72,00 kr./kg.
b. Í stað „85,00 kr./kg“ kemur: 120,00 kr./kg.
c. Í stað „170,00 kr./kg“ kemur: 240,00 kr./kg.
d. Í stað „204,00 kr./kg“ kemur: 288,00 kr./kg.
e. Í stað „272,00 kr./kg“ kemur: 384,00 kr./kg.
f. Í stað „408,00 kr./kg“ kemur: 576,00 kr./kg.
5. gr.
6. gr.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Í frumvarpi þessu er lagt til að fresta ákvæði um að leggja úrvinnslugjald á einnota drykkjarvöruumbúðir, í stað núverandi skilagjalds og umsýsluþóknunar á einnota drykkjarvöruumbúðir úr áli, stáli, gleri og plastefnum, til 1. janúar 2010, þannig að starfsemi Endurvinnslunnar hf., sbr. lög nr. 52/1989, um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur, verði óbreytt til ársins 2010. Einnig eru lagðar til breytingar er varða fjárhæð úrvinnslugjalds á heyrúlluplast, málningu og litarefni og vörur í ljósmyndaiðnaði. Lögð er til hækkun úrvinnslugjalds hvað varðar málningu, litarefni og vörur í ljósmyndaiðnaði. Er þessi breyting til komin af því að leiðrétta þarf álagningarstofn úrvinnslugjalds á þessa vöruflokka vegna þess að tekjur viðkomandi sjóða hafa ekki staðið undir rekstri þeirra. Þessar hækkanir eru lagðar til í samráði við aðila á markaði, er málið varðar. Þá þykir rétt að samræma úrvinnslugjald á heyrúlluplast við úrvinnslugjald á plastumbúðum. Í dag er innsöfnun á heyrúlluplasti góð. Eftir að farið var að sækja heyrúlluplast til bænda eða á söfnunarstöðvar er meðhöndlun á innsöfnuðu heyrúlluplasti sams konar og meðhöndlun annars umbúðaplasts. Við það að sameina heyrúlluplast og umbúðaplast í einn flokk, eins og lagt er til í frumvarpinu, nýtist árangur við endurnýtingu á heyrúlluplasti til að ná markmiðum Íslands gagnvart tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins samkvæmt tilskipun 94/62/EB, um umbúðir og umbúðaúrgang, um endurnýtingu og endurvinnslu umbúða er falla til á hverju ári. Loks er lagt til að skipt verði upp tollnúmeri á litlar gröfur í tvö tollnúmer. Frumvarpið, einkum 3. og 4. gr., byggist á tillögum stjórnar Úrvinnslusjóðs í samræmi við 3. mgr. 4. gr. laganna. Frumvarp þetta er unnið í samráði við fjármálaráðuneytið með vísan til 3. mgr. 4. gr. laganna.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Í greininni er lagt til að fresta ákvæði til bráðabirgða I um álagningu úrvinnslugjalds á einnota drykkjarvöruumbúðir úr áli, stáli, plasti og gleri um tvö ár og komi það til framkvæmda 1. janúar 2010, í stað 1. janúar 2008. Þannig er lagt til að starfsemi Endurvinnslunnar hf., sbr. lög nr. 52/1989, um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur, verði óbreytt til þess tíma. Ákvæðið var sett með það að markmiði að Endurvinnslan hf. hætti starfsemi í núverandi mynd og hluti af starfsemi Endurvinnslunnar hf. færðist til Úrvinnslusjóðs. Miklar breytingar hafa orðið á allri tilhögun um úrvinnslu úrgangs frá því að lögin voru sett árið 2002 og er m.a. nú lögð aukin áhersla á ábyrgð framleiðenda vegna meðhöndlunar úrgangs. Vilji er fyrir því að setja einnota drykkjarvöruumbúðir í kerfi sem framleiðendur bera ábyrgð á og gefa þarf rýmri tíma til að vinna að því verkefni og er því lagt til að gildistöku þessa ákvæðis verði frestað um tvö ár.
Um 2. gr.
Bændasamtök Íslands hafa óskað eftir því að heyrúlluplast verði talið með öðrum plastumbúðum sem bera úrvinnslugjald. Fallist hefur verið á þessa skoðun. Rétt þykir að álagning úrvinnslugjalds á heyrúlluplast verði samræmt álagningu á annað umbúðaplast, enda mun árangur af innsöfnun og endurnýtingu á heyrúlluplasti vera talinn með öðru umbúðaplasti. Því er lagt til að lagðar verði 3 kr./kg á heyrúlluplast eins og aðrar umbúðir gerðar úr plasti og við það lækkar úrvinnslugjald á heyrúlluplast. Ekki er lagt til að ákvæði um úrvinnslugjald á heyrúlluplast verði sett inn í 7. gr. a laganna, sem fjallar um úrvinnslugjald á aðrar umbúðir, heldur verði haldið áfram að ákvarða gjaldtöku á tollnúmeri í viðauka I. Þetta er gert þar sem talið er mikilvægt að fylgjast með þróun og sjá hvert stefnir með þetta gjald fyrst í stað til að hægt sé að meta árangur af þessari breytingu og ef þörf krefur að endurskoða hana er fram líða stundir.
Um 3. gr.
Í greininni er gerð tillaga um að úrvinnslugjald á vörur í málningariðnaði, þ.e. málningu og litarefni, í viðauka VIII við lögin hækki um 25% eða úr 20 kr./kg í 25 kr./kg. Þetta er lagt til þar sem tekjur af þessum vöruflokki hafa ekki staðið undir árlegum rekstri sjóðsins en hlutfall skila á málningarafgöngum hafa verið meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Gera má ráð fyrir að með þessari hækkun snúist halli sjóðsins vegna þessa vöruflokks við og innan 3–5 ára verði komið á jafnvægi.
Um 4. gr.
Í greininni er gerð tillaga um að úrvinnslugjald á vörur í ljósmyndaiðnaði í viðauka XII við lögin hækki um 41%. Tillaga þessi er gerð vegna þess að tekjur af þessum vöruflokki hafa minnkað með tilkomu stafrænnar tækni við prentun en tilkostnaður og magn úrgangs hefur ekki minnkað að sama skapi. Í ljósi þess að notkun framköllunarvökva fer minnkandi ár frá ári, verður að bregðast við með þessum hætti svo að jafnvægi náist í sjóðnum á 3–5 árum vegna þessa vöruflokks.
Um 5. gr.
Lagt er til að í stað tollnúmers 8429.5200 í viðauka XVI sem er fyrir litlar gröfur komi í tollskrá tvö tollnúmer. Hér er um að ræða leiðréttingu sem kemur í veg fyrir að úrvinnslugjald á hjólbarða sé lagt á beltagröfur. Með þessari breytingu er gert ráð fyrir því að einungis tollnúmer sem er fyrir gröfur á hjólum beri úrvinnslugjald en ekki gröfur á beltum.
Um 6. gr.
Lagt er til að lögin taki gildi 1. janúar 2008.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um úrvinnslugjald,
nr. 162/2002, með síðari breytingum.