Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 182. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 324 — 182. mál.
um frv. til l. um brottfall laga nr. 39/1964, um meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Guðrúnu W. Jensdóttur, Áslaugu Einarsdóttur og Vilborgu Hauksdóttur frá heilbrigðisráðuneyti. Þá hefur nefndinni borist umsögn frá landlæknisembættinu.
Í frumvarpinu er lagt til að lög um meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra, nr. 39/1964, verði felld úr gildi þar sem þau séu tákn síns tíma. Ýmis lagaákvæði taka nú til þeirra einstaklinga sem framangreind lög gilda jafnframt um.
Má hér nefna lög um Lýðheilsustöð, nr. 18/2003, en samkvæmt lögunum er starfandi áfengis- og vímuvarnaráð sem hefur það hlutverk að efla og styrkja áfengis- og vímuvarnir og sinna eftirliti með því að ákvæðum laga og reglugerða um áfengis- og vímuvarnir sé framfylgt. Samkvæmt lögunum er einnig starfandi svokallaður Forvarnasjóður en það kemur í hlut Lýðheilsustöðvar að ráðstafa fé úr sjóðnum til verkefna á sviði áfengis- og vímuvarna í samráði við ráðherra að fengnum tillögum áfengis- og vímuvarnaráðs. Einnig má nefna lög um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, en samkvæmt lögunum kemur það í hlut þeirra að veita aðstoð við áfengissjúka og annast vímuefnavarnir. Þá má nefna lög um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, lög um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997, og lögræðislög, nr. 71/1997. Samkvæmt síðastnefndu lögunum er heimilt að svipta mann lögræði með úrskurði dómara ef þörf krefur ef hann sökum ofdrykkju eða ofnotkunar ávana- og fíkniefna er ekki fær um að ráða persónulegum högum sínum eða fé. Í slíkum tilvikum er sjúklingur vistaður tímabundið á geðdeildum sjúkrahúsa.
Nefndin telur að ákvæði laga um meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra, nr. 39/1964, séu úrelt og leggur til að frumvarp þetta verði samþykkt óbreytt.
Árni Páll Árnason var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 324 — 182. mál.
Nefndarálit
um frv. til l. um brottfall laga nr. 39/1964, um meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra.
Frá heilbrigðisnefnd.

Alþingi, 27. nóv. 2007.
Ásta Möller,
form., frsm.
Ágúst Ólafur Ágústsson.
Þuríður Backman.
Pétur H. Blöndal.
Valgerður Sverrisdóttir.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir.
Ellert B. Schram.
Auður Lilja Erlingsdóttir.