Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 119. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 362  —  119. mál.




Svar



félagsmálaráðherra við fyrirspurn Birkis J. Jónssonar um búsetuúrræði fyrir fatlaða.

     1.      Hversu margir eru á biðlista eftir húsnæði fyrir fatlaða, sundurliðað eftir landsvæðum?
     2.      Hversu mörg ný búsetuúrræði fyrir fatlaða, aðra en geðfatlaða, verða til árið 2008?

    Í umfjöllun um biðlista ber að taka tillit til margra atriða, m.a. þeirra að fjöldi einstaklinga sem eru á biðlista fer eftir því 1) hvort einungis sé átt við þá sem njóta engrar búsetuþjónustu eða þá sem þegar njóta hennar en óska eftir að hún verði með öðrum hætti, 2) hvenær óskað hefur verið eftir búsetu, 3) hve brýn búsetan er og 4) hverjum beri að veita hana, þ.e. ríki eða sveitarfélagi. Síðastnefnda atriðið miðast við þjónustuþörf eins og nánar verður vikið að hér á eftir.
    Hér er höfð hliðsjón af þeim forsendum sem félagsmálaráðuneytið hefur lagt til grundvallar við mat á biðlistum undanfarin ár. Í skýrslu félagsmálaráðuneytisins um búsetu fatlaðra árið 2000 og í skýrslu kostnaðarnefndar vegna tilflutnings þjónustu við fatlaða frá sama ári er miðað við tilteknar forsendur. Þær forsendur eru einnig notaðar við mat á biðtíma eftir búsetuþjónustu í skýrslu um stöðumat í þjónustu við fatlaða sem unnin var fyrir félagsmálaráðuneytið árið 2005 og miðast við 1) þá sem eru 16 ára og eldri [hér 18 ára] og hafa sótt um þjónustu á síðastliðnum fimm árum [hér tveimur árum], þá sem njóta ekki búsetuþjónustu en þarfnast slíkrar þjónustu á næstu fimm árum og eiga lögheimili í umdæmi rekstraraðila og 2) þá sem teljast hafa þjónustuþarfir skv. 4.–7. þjónustuflokki og u.þ.b. helming þeirra sem teljast til 3. þjónustuflokks [hér til einföldunar þeir sem teljast til 3.–7. þjónustuflokks].
    Ljóst er að í þessu svari eru forsendur þess að teljast til biðlista nokkuð rýmri en í þeim skýrslum sem vitnað er til hér að framan.
    Eftirfarandi sundurliðun miðast við svör þeirra sem fara með umsóknir um búsetuþjónustu við fatlaða. Við öflun upplýsinga vegna þessa var óskað eftir að svör væru miðuð við þá sem:
     1.      njóta engrar búsetuþjónustu,
     2.      hafa beðið eftir búsetuþjónustu í tvö ár eða lengur,
     3.      eru 18 ára eða eldri,
     4.      teljast ekki til hóps geðfatlaðs fólks.
    Enn fremur var aflað upplýsinga um hve margir óska búsetuþjónustu innan tveggja ára og jafnframt hve margir teljast til 3.–7. þjónustuflokks.
    Varðandi 4. tölulið ofangreindra forsendna ber að geta þess að nú stendur yfir sérstakt átak í því skyni að koma til móts við þarfir geðfatlaðs fólks fyrir búsetu- og dagþjónustu. Átakið tekur til áranna 2006–2010 og byggir á því að koma á þjónustu við þann hóp á grundvelli sérstakrar könnunar um þjónustuþarfir sem fram fór árið 2005. Það er ástæðan fyrir því að sá hópur fólks er ekki talinn meðal þeirra sem nú eru í bið eftir slíkri þjónustu. Þörfum hans verður sinnt í samræmi við þá framkvæmdaáætlun sem nú er unnið eftir. Könnunin tók til allra aðila sem veita fötluðum þjónustu, þ.á m. geðheilbrigðiskerfisins, og gera má ráð fyrir að hún hafi náð til alls þorra geðfatlaðra sem þarf á sértækri búsetu- og dagþjónustu að halda. Einhverjir kunna að hafa bæst við síðan enda var gert ráð fyrir því í framkvæmdaáætluninni.
    Til skýringar á dálknum „Þar af í 3.–7. þjónfl.“ í töflu 1 skal eftirfarandi tekið fram: Hvað viðkemur búsetuþjónustu við fatlaða hefur á síðasta áratug verið stuðst við tiltekna flokkun eftir þjónustuþörfum fólks í því skyni að geta metið betur þarfir fyrir þjónustu og áætlaðan kostnað. Þessi flokkun er nefnd sjö flokka kerfið þar sem einstaklingar sem teljast til 1. þjónustuflokks hafa minnstar þarfir og þeir sem mestar þarfir hafa teljast til 7. þjónustuflokks. Félagsmálaráðuneytið lítur svo á að félagsþjónustu sveitarfélaga beri að veita þeim notendum þjónustu sem teljast til 1. og 2. þjónustuflokks og um helmingi þeirra sem metnir eru í 3. þjónustuflokk. Er það í samræmi við 25. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, þar sem kveðið er á um að þau skuli „sjá um félagslega heimaþjónustu til handa þeim sem búa í heimahúsum og geta ekki séð hjálparlaust um heimilishald og persónulega umhirðu vegna skertrar getu, fjölskylduaðstæðna, álags, veikinda, barnsburðar eða fötlunar“. Enn fremur segir í 26. gr. laganna að „með félagslegri heimaþjónustu [skuli] stefnt að því að efla viðkomandi til sjálfsbjargar og gera honum kleift að búa sem lengst í heimahúsum við sem eðlilegastar aðstæður“. Í þessu sambandi ber einnig að geta lögbundinna skyldna sveitarfélaga, skv. 24. gr. laga um málefni fatlaðra, nr. 59/1992, til að annast þjónustu við fatlað fólk með liðveislu.
    Gert er ráð fyrir að fólk sem telst til 1. og 2. þjónustuflokks sé sjálfbjarga með lágmarksþjónustu eða nokkurri þjónustu sem nemur 5–10 klst. á viku, það sé fært um að búa í íbúð eða sambýli og fara ferða sinna að öllu eða mestu leyti á eigin spýtur. Í 3. þjónustuflokki er gert ráð fyrir að fólk hafi talsverða færni til sjálfsbjargar, geti sinnt persónulegum þörfum (hreinlæti, að klæðast, matast o.fl.), almennum heimilisstörfum (matargerð, þrifum o.fl.), farið ferða sinna með fremur lítilli aðstoð/eftirliti og þarfnist að jafnaði ekki næturvaktar. Í 4.–7. þjónustuflokki er hins vegar gert ráð fyrir meiri þörfum fyrir þjónustu.
    Til einföldunar er miðað við að þeir sem teljast til 1. og 2. þjónustuflokks skuli njóta búsetuþjónustu af hálfu sveitarfélaga samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga og lögum um málefni fatlaðra en að þjónusta við þá sem teljast til 3.–7. þjónustuflokks sé á forræði félagsmálaráðuneytisins samkvæmt lögum um málefni fatlaðra.

Tafla 1: Heildarfjöldi umsókna um búsetuþjónustu, óskað innan tveggja ára,
fjöldi í 3.–7. þjónustuflokki og áformuð úrræði 2008.

Heildarfjöldi umsókna Þjónustu óskað innan
tveggja ára
Þar af í
3.–7. þjónfl.
Áformað
2008*
Svæðisskrifstofa Reykjavíkur 35 11 11 12
Svæðisskrifstofa Reykjaness 34 18 15 0
Svæðisskrifstofa Vesturlands 12 12 9 3
Svæðisskrifstofa Vestfjarða 0
Samtök sveitarfél. Norðurlandi vestra 6 6 5 5
Eyjafjarðarsvæðið 4 4 3 0
Norðurþing 3 3 3 0
Svæðisskrifstofa Austurlands 1 1 1 0
Sveitarfélagið Hornafjörður 0
Vestmannaeyjabær 0
Svæðisskrifstofa Suðurlands 1 1 1 0
Samtals 96 56 48 20
* Gert er ráð fyrir að ný búsetuúrræði verði tekin í notkun hjá Svæðisskrifstofu Reykjaness á árinu 2009.



    Í svari Norðurþings kemur fram að ekki hafi verið tekin ákvörðun um ný búsetuúrræði fyrir fatlaða árið 2008 en verið sé að skoða fjölgun úrræða í samvinnu við verktaka á staðnum. Því kann svo að fara að einhver úrræði komi til á árinu.
    Í ljósi þess sem fram kemur í töflu 1 um að 48 einstaklingar bíði búsetuþjónustu á næstu tveimur árum og teljist til þeirra þjónustuflokka sem varða félagsmálaráðuneytið, þ.e. 3.–7. þjónustuflokks, verður komið til móts við 42% þess hóps árið 2008 ef miðað er við að 20 búsetuúrræði komi þá til.

     3.      Hversu mörg ný búsetuúrræði fyrir fatlaða urðu til árin 2000–2005 í sérstöku átaki í samstarfi við Hússjóð Öryrkjabandalagsins?
    Hrundið var af stað átaki af hálfu félagsmálaráðuneytisins á tímabilinu 2000–2005 til þess að draga úr biðtíma eftir búsetuþjónustu, einkum á þjónustusvæðum Svæðisskrifstofu Reykjavíkur og Svæðisskrifstofu Reykjaness, enda biðlisti orðinn langur. Þeim sem njóta slíkrar þjónustu fjölgaði umtalsvert á tímabilinu, einkum í sambýlum og íbúðum/íbúðakjörnum, m.a. vegna þess að fólk fluttist af fyrrum Kópavogshæli í sambýli á vegum svæðisskrifstofa.
    Átak ráðuneytisins hófst með því að félagsmálaráðherra skipaði nefnd árið 1999 til að fylgja eftir tillögum í skýrslu nefndar um biðlista eftir þjónustu svæðisskrifstofa málefna fatlaðra. Nefndin setti fram áætlun fyrir árin 2000–2005 sem gerði ráð fyrir 112–117 nýjum búsetuúrræðum á tímabilinu. Þróunin varð sem hér segir:

Tafla 2: Þróun búsetuúrræða fyrir fatlaða 2000–2005, ný úrræði.

2000 2001 2002 2003 2004 2005 Samtals
Reykjavík 4 10 14 6 9 12 55
Reykjanes 14 6 14 9 10 53
Suðurland 4 4
Akureyri 5 5
Samtals 4 24 20 20 22 27 117

    Eins og fram kemur hér að ofan náði áætlunin fram að ganga.
    Þess skal getið að Hússjóður Öryrkjabandalags Íslands og samsvarandi sjóður Landssamtakanna Þroskahjálpar lögðu sitt af mörkum til búsetumála fatlaðs fólks á þessu tímabili. Bæði samtökin lögðu til stofnfé til íbúðarhúsnæðis í þessu skyni og studdu þannig við þróun mála. Framkvæmdasjóður fatlaðra stóð fyrir u.þ.b. 34,2% átaksins, sbr. meðfylgjandi yfirlit yfir framlög til aðila átaksins.

Tafla 3: Framlag framkvæmdaaðila
til nýrra búsetuúrræða 2000–2005.

Framkvæmdaaðilar Fjöldi úrræða Hlutfall
Framkvæmdasjóður fatlaðra 40 34,2%
Brynja – hússjóður 43 36,7%
Hússjóður Þroskahjálpar 7 6,0%
Sjálfseignarstofnanir 2 1,7%
Sveitarfélög 13 11,1%
Einkaaðilar 12 10,3%
Samtals fjöldi búsetuúrræða 117


     4.      Kemur til greina að hefja nýtt átak í samstarfi við hússjóðinn til að fjölga búsetuúrræðum fyrir fatlaða?
    Af ráðuneytisins hálfu kemur vissulega til greina að hafa samvinnu við fyrrnefnd heildarsamtök fatlaðra til þess að fjölga búsetuúrræðum fyrir fatlaða í ljósi góðrar reynslu af slíkri samvinnu. Í þessu sambandi er ástæða til að vekja athygli á því að ákvörðun síðustu ríkisstjórnar um „átak í þjónustu við geðfatlaða“ fól í sér að á árunum 2006–2010 skyldu 100 millj. kr. á ári ganga til þess átaks úr Framkvæmdasjóði fatlaðra. Það þrengir talsvert að þegar kemur að uppbyggingu þjónustu við annað fatlað fólk. Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2008 er gert ráð fyrir að Framkvæmdasjóður fatlaðra fái samtals 598,6 millj. kr. Af þeirri fjárhæð er gert ráð fyrir að 400 millj. kr. fari í verkefnið „átak í málefnum geðfatlaðra“ og eru því 198,6 millj. kr. til úthlutunar af stjórnarnefnd um málefni fatlaðra.
    Ljóst er að Framkvæmdasjóður fatlaðra hefur lækkað að raungildi síðastliðin ár miðað við þróun íbúðaverðs eða byggingarvísitölu.
    Árið 1993 hafði Framkvæmdasjóður fatlaðra til ráðstöfunar samtals 350 millj. kr. á verðlagi þess árs. Ef sú fjárhæð er framreiknuð miðað við vísitölu íbúðaverðs eða byggingarvísitölu ætti Framkvæmdasjóður fatlaðra að hafa til ráðstöfunar 1.172 millj. kr. miðað við þróun vísitölu íbúðaverðs fjölbýlis eða 691,9 millj. kr. miðað við hækkun byggingarvísitölu.
    Ef sjóðurinn hefði fengið tekjur erfðafjárskatts, eins og hann hafði á árinu 1993, hefði sjóðurinn til ráðstöfunar á árinu 2007 tæplega 1 milljarð kr.
    Á töflu 4 má sjá yfirlit um framlög til Framkvæmdasjóðs fatlaðra frá árinu 1993 til og með 2008.


Tafla 4: Yfirlit um framlög til Framkvæmdasjóðs fatlaðra
frá árinu 1993 til og með 2008.

Vísitala íbúðaverðs (fjölbýli) september 2007: 347,5.

1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000
Framkvæmdasjóður fatlaðra
    – fjárlög
350,0 320,0 330,0 257,0 165,0 205,0 235,0 235,0
Fjáraukalög 108,8 80,0
Sala eigna 80,0 6,0
Greitt af sjóðseign
    Tryggingast. ríkisins
88,0
Fjáraukalög v. átaks
    í málefnum geðfatlaðra
Átak í málefnum geðfatlaðra
Símapeningar, vistaðir í
    Framkvæmdasjóði fatlaðra
Fjáraukalög v. átaks í
    málefnum geðfatlaðra
Framkvæmdasjóður fatlaðra 350,0 320,0 518,8 425,0 165,0 211,0 235,0 235,0
Vísitala íbúðaverðs 100,0 101,0 95,9 97,9 97,8 98,8 105,0 125,1
Framreiknað með
    vísitölu íbúðaverðs
1216,3 1101,0 1879,9 1508,6 586,3 742,1 777,7 652,8
2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008
Framkvæmdasjóður fatlaðra
    – fjárlög
235,0 280,0 274,4 297,9 298,0 298,3 487,2 598,6
Fjáraukalög
Sala eigna 32,9 199,5 29,0
Greitt af sjóðseign
    Tryggingast. ríkisins
Fjáraukalög v. átaks
    í málefnum geðfatlaðra
200,0
Átak í málefnum geðfatlaðra (100,0) (100,0)
Símapeningar, vistaðir í
    Framkvæmdasjóði fatlaðra
(200,0) (300,0)
Fjáraukalög v. átaks
    í málefnum geðfatlaðra
(200,0)
Framkvæmdasjóður fatlaðra 235,0 280,0 274,4 330,8 497,5 327,3 187,2 198,6
Vísitala íbúðaverðs 143,7 152,3 158,0 180,0 202,6 282,4 303,6
Framreiknað með
    vísitölu íbúðaverðs
568,3 638,9 603,5 638,6 853,3 402,8 214,3