Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 304. máls.

Þskj. 376 —  304. mál.



Frumvarp til laga

um breyting á lögum nr. 133/2005, um ráðstöfun
á söluandvirði Landssíma Íslands hf.

(Lagt fyrir Alþingi á 135. löggjafarþingi 2007–2008.)




1. gr.

    Í stað orðanna „3.900 millj. kr. árið 2008, 2.000 millj. kr. árið 2009 og 2.000 millj. kr. árið 2010“ í a-lið 2. mgr. 2. gr. laganna kemur: 900 millj. kr. árið 2008, 3.000 millj. kr. árið 2009 og 4.000 millj. kr. árið 2010.

2. gr.

    Í stað orðanna „1.500 millj. kr. árið 2008, 4.000 millj. kr. árið 2009, 4.000 millj. kr. árið 2010, 4.000 millj. kr. árið 2011 og 4.000 millj. kr. árið 2012“ í 2. mgr. 3. gr. laganna kemur: 800 millj. kr. árið 2008, 4.200 millj. kr. árið 2009, 4.200 millj. kr. árið 2010, 4.300 millj. kr. árið 2011 og 4.000 millj. kr. árið 2012.

3. gr.

    2. mgr. 8. gr. laganna orðast svo:
    Fjárframlögin skiptast þannig milli ára að verja skal 300 millj. kr. til þessa verkefnis árið 2008 og 700 millj. kr. árið 2009.

4. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.

    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem varða tímasetningar á tilteknum ráðstöfunum söluandvirðis Landssíma Íslands hf. frá því sem áður var ákveðið með lögum nr. 133/2005, um ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf., sbr. breytingar með lögum nr. 156/2006.
    Í tengslum við fjárlagagerð fyrir árið 2008 hefur komið í ljós að fyrirhugaðar fjárveitingar samkvæmt gildandi lögum eru verulega umfram það sem raunhæft er að unnt verði að ráðstafa til nokkurra þeirra framkvæmda sem nefndar eru í lögunum. Stafar það af því að undirbúningur þessara framkvæmda er skemur á veg kominn en áður var áætlað. Breytingar í frumvarpinu taka mið af þessu.
    Með 1. gr. frumvarpsins eru lagðar til breytingar á framlögum til Sundabrautar þannig að til þeirrar framkvæmdar verði varið 900 millj. kr. árið 2008, 3.000 millj. kr. árið 2009 og 4.000 millj. kr. árið 2010 í stað 3.900 millj. kr. árið 2008, 2.000 millj. kr. árið 2009 og 2.000 millj. kr. árið 2010. Að öðru leyti er ákvæði 2. gr. laganna óbreytt.
    Með 2. gr. frumvarpsins er lagt til að 700 millj. kr. framlag til uppbyggingar Landspítala – háskólasjúkrahúss verði fært frá árinu 2008 til áranna 2009–2011. Að öðru leyti verði ákvæði 3. gr. laganna óbreytt.
    Með 3. gr. frumvarpsins er lagt til að áður ákveðið 600 millj. kr. framlag til nýbyggingar fyrir Stofnun íslenskra fræða fyrir árið 2008 verði lækkað í 300 millj. kr. og í staðinn hækki framlagið fyrir árið 2009 í 700 millj. kr.


Fylgiskjal.


Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:


Umsögn um breytingu á lögum nr. 133/2005, um ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf.

    Með frumvarpinu er í samræmi við áform ríkisstjórnarinnar í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2008 lagt til að frestað verði nokkrum framkvæmdum þar sem undirbúningur er það skammt á veg kominn að fyrirsjáanlegt er að umfang framkvæmdanna verður ekki eins mikið á næsta ári og að var stefnt. Samtals er lagt til að frestað verði 4.000 m.kr. framkvæmdum. Þar af eru 3.000 m.kr. vegna framkvæmda við Sundabraut, 700 m.kr. er frestun framkvæmda við nýtt háskólasjúkrahús Landsspítalans og loks er lagt til að frestað verið 300 m.kr. framkvæmdum við nýbyggingu Stofnunar íslenskra fræða – Árnastofnunar.