Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 306. máls.

Þskj. 384 —  306. mál.



Frumvarp til myndlistarlaga.

(Lagt fyrir Alþingi á 135. löggjafarþingi 2007–2008.)




I. KAFLI
Markmið og yfirstjórn.
1. gr.
Markmið.

    Markmið laga þessara er að kveða á um skipan og fyrirkomulag myndlistarmálefna, að efla íslenska myndlist og búa henni hagfelld skilyrði.
    Menntamálaráðherra fer með yfirstjórn myndlistarmála samkvæmt lögum þessum.

II. KAFLI
Listasafn Íslands.
2. gr.
Hlutverk.

    Listasafn Íslands er eign íslensku þjóðarinnar og er höfuðsafn á sviði myndlistar, sbr. safnalög. Listasafn Íslands veitir öðrum listasöfnum ráðgjöf, stuðlar að samvinnu listasafna og vinnur að samræmdri safnastefnu á sviði myndlistar.

3. gr.
Safnkostur, rannsóknir og fræðsla.

    Listasafn Íslands skal leitast við að koma upp metnaðarfullu safni íslenskrar myndlistar, skrá það, rannsaka, varðveita og sýna, innan lands og utan. Listasafn Íslands skal kosta kapps um að efla íslenska myndlist og stuðla að framþróun hennar.
    Leitast skal við að safnkosturinn endurspegli sem best strauma og stefnur í íslenskri og alþjóðlegri myndlist á hverjum tíma. Listasafn Íslands skal afla heimilda og stuðla að öflun og miðlun þekkingar á íslenskri myndlist til almennings og sérfræðinga til fræði- og rannsóknastarfa. Safnið skal annast fræðslustarfsemi um innlenda og erlenda myndlist fyrir skóla, fjölmiðla og almenning.

4. gr.
Safnstjóri.

    Ráðherra skipar forstöðumann Listasafns Íslands, safnstjóra, til fimm ára í senn. Safnstjóri skal hafa háskólamenntun og staðgóða þekkingu á starfssviði safnsins. Ætíð skal auglýsa embættið laust til umsóknar í lok hvers skipunartímabils. Safnstjóri stjórnar starfsemi og rekstri safnsins og mótar listræna stefnu þess. Hann ræður aðra starfsmenn safnsins og er í fyrirsvari fyrir það.

5. gr.
Innkaupanefnd.

    Á vegum Listasafns Íslands starfar þriggja manna innkaupanefnd skipuð af ráðherra til þriggja ára í senn. Í nefndinni situr safnstjóri, einn fulltrúi tilnefndur af Sambandi íslenskra myndlistarmanna og einn án tilnefningar. Ráðherra skipar formann úr hópi nefndarmanna.
    Innkaupanefndin ákveður kaup listaverka. Hún getur heimilað safnstjóra að ráðstafa allt að 20% af því fé sem árlega er ætlað til listaverkakaupa til kaupa á innlendum verkum.
    Innkaupanefnd fjallar um gjafir sem Listasafni Íslands eru boðnar og metur hvort þær skuli þegnar. Gjöf skal fylgja gjafabréf. Safnið má aldrei selja eða á annan hátt láta af hendi listaverk, er það hefur þegið að gjöf, nema að fengnu samþykki gefanda.
    Heimilt er að fenginni umsögn innkaupanefndar að selja listaverk úr eigu Listasafns Íslands í því skyni að kaupa annað verk eftir sama listamann, er æskilegra þykir að sé í eigu safnsins.

6. gr.
Lán listaverka.

    Heimilt er að lána listaverk tímabundið til annarra safna eða stofnana, á sýningar eða til rannsókna. Höfundur á alltaf rétt á að fá verk sín lánuð á eigin sýningar að uppfylltum skilyrðum Listasafns Íslands um lánstíma, meðferð og tryggingu verkanna.

7. gr.
Meðferð réttinda.

    Listasafn Íslands öðlast þann rétt sem á hverjum tíma fylgir listaverki samkvæmt íslenskum höfundalögum við venjulegt, óskilorðsbundið afsal þess, þó með þeirri takmörkun um sölu eða aðra afhendingu sem leiðir af ákvæðum 5. og 6. gr.
    Safnið hefur rétt til opinberra sýninga á listaverkum á vegum safnsins, en um lán verka á aðrar listsýningar gilda ákvæði 6. gr. Enn fremur hefur safnið rétt til eftirmyndunar eða annarrar eftirgerðar fyrir það sjálft, svo sem til skrásetningar í gagnagrunn safnsins, til kynningar á einstökum sýningum og til birtingar í sýningarskrám. Til annarrar eftirgerðar eða útgáfu þarf samþykki höfundaréttarhafa. Höfundur á kröfu til þess að safnið heimili honum aðgang að verki hans til fjölföldunar og útgáfu, en safnið á jafnan forgangsrétt til útgáfu þess að öðru jöfnu.

8. gr.
Fjárhagur.

    Tekjur Listasafns Íslands eru fjárveitingar í fjárlögum, önnur framlög og styrkir, ásamt eigin tekjum safnsins.
    Listasafni Íslands er heimilt að taka aðgangseyri. Þá er safninu heimilt að taka gjald fyrir þjónustu sína, svo sem lán á listaverkum, ljósmyndun þeirra, afnot af ljósmyndum, hvers konar sérunnar skrár og úttak tölvugagna, sérfræðilega heimildaþjónustu og fjölföldun hvers konar til þess að standa straum af kostnaði. Safnið setur gjaldskrá um framangreinda gjaldtöku.

III. KAFLI
Myndlistarráð.
9. gr.

Skipan.

    Ráðherra skipar fimm manna myndlistarráð til þriggja ára í senn. Samband íslenskra myndlistarmanna tilnefnir tvo fulltrúa, Myndhöfundasjóður Íslands/Myndstef tilnefnir einn og Listasafn Íslands tilnefnir einn. Ráðherra skipar einn fulltrúa án tilnefningar og skal hann vera formaður en varaformaður skal skipaður úr hópi ráðsmanna. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti.
    Óheimilt er að skipa sama mann aðalfulltrúa í myndlistarráði lengur en tvö samfelld starfstímabil.

10. gr.
Hlutverk og starfsemi.

    Hlutverk myndlistarráðs er að vera vettvangur fyrir umfjöllun og stefnumörkun um málefni íslenskrar myndlistar. Ráðið er ráðherra til ráðgjafar og samráðs. Hlutverk sitt rækir ráðið meðal annars með því að:
     a.      beina ábendingum og tillögum til ráðherra um málefni myndlistar og veita umsögn um þau mál sem ráðherra vísar til þess,
     b.      gera tillögu til ráðherra um stefnu og helstu áherslur í starfi myndlistarsjóðs til þriggja ára í senn, sbr. 11. gr.,
     c.      gera tillögu til ráðherra um árlega úthlutun úr myndlistarsjóði,
     d.      stuðla að kynningu á íslenskum myndlistarmönnum og myndsköpun þeirra hér á landi og erlendis,
     e.      efla alþjóðlegt samstarf íslenskra myndlistarmanna og stofnana,
     f.      sinna öðrum verkefnum sem falla undir hlutverk þess eða ráðherra kann að fela því.
    Ráðherra er heimilt að fela myndlistarráði að reka sérstaka skrifstofu eða semja við til þess bæra aðila um framkvæmd verkefna sem unnin eru í þess þágu og til að annast almenna umsýslu vegna starfsemi ráðsins og myndlistarsjóðs, sbr. 11. gr.

11. gr.
Myndlistarsjóður.

    Alþingi veitir árlega fé í fjárlögum í myndlistarsjóð í því markmiði að efla íslenska myndlist með fjárhagslegum stuðningi og kosta önnur verkefni er falla undir hlutverk og starfsemi myndlistarráðs, sbr. 10. gr.
    Ráðherra úthlutar úr myndlistarsjóði að fengnum tillögum myndlistarráðs. Ráðherra setur myndlistarsjóði reglur um auglýsingar, meðferð umsókna og afgreiðslu þeirra. Í reglum má mæla fyrir um heimild til þess að leita umsagnar manna með sérkunnáttu um einstakar umsóknir.
    Kostnaður af starfsemi myndlistarráðs greiðist úr myndlistarsjóði. Ráðið ber ábyrgð á umsýslu og fjárreiðum myndlistarsjóðs.

V. KAFLI
Önnur ákvæði.
12. gr.
Reglugerð.

    Ráðherra er heimilt að setja í reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd þessara laga í heild eða einstakra kafla þeirra.

13. gr.
Gildistaka.

    Lög þessi taka gildi 1. september 2008. Frá sama tíma falla úr gildi lög nr. 58/1988, um Listasafn Íslands.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Lagafrumvarp þetta er samið á vegum menntamálaráðherra.
    Við setningu safnalaga, nr. 106/2001, breyttist hlutverk Listasafns Íslands á þann veg að það var gert að höfuðsafni á sviði myndlistar. Í ákvæði til bráðabirgða í safnalögum, nr. 106/2001, er kveðið á um að endurskoða skuli lög er þá giltu um söfn, sem störfuðu samkvæmt sérstökum lögum.
    Um Listasafn Íslands gilda lög nr. 58/1988, með síðari breytingum. Nauðsynlegt er að aðlaga þau annars vegar að safnalögum og hins vegar að þau taki frekar mið af rammalöggjöf um myndlistarmál en sérlögum um safnið. Var sú leið farin í leiklistarlögum, nr. 138/1998, en þau voru höfð til hliðsjónar við gerð lagafrumvarps þessa. Gert er ráð fyrir að frumvarpið taki til allrar myndlistarstarfsemi sem ríkið stendur fyrir eða styrkir nema Listskreytingasjóðs ríkisins og Listasafns Einars Jónssonar. Í frumvarpinu eru ákvæðin um Listasafn Íslands gerð einfaldari en áður en þau taka m.a. mið af ákvæðum þjóðminjalaga, nr. 107/2001, um Þjóðminjasafn Íslands. Helstu breytingar eru þær að lagt er til að safnráð í núverandi mynd verði lagt niður. Það er í samræmi við skipan mála hjá Þjóðminjasafninu. Heiti forstöðumanns verður breytt í safnstjóri. Þá er ekki ákvæði um hve mörg starfstímabil safnstjóri megi sitja. Í þess stað er lagt til að ætíð skuli auglýsa embætti safnstjóra laust til umsóknar í lok hvers skipunartímabils. Er þar byggt á sömu reglu og gildir um þjóðleikhússtjóra, sbr. 2. mgr. 6. gr. leiklistarlaga. Önnur helstu nýmæli eru skipan myndlistarráðs og stofnun myndlistarsjóðs.
    Menntamálaráðuneytið hefur um langt árabil veitt margvíslega styrki á sviði myndlistar af safnliðum í fjárlögum. Er þar um að ræða ferðastyrki til einstaklinga og hópa, styrki vegna einstakra verkefna innan lands og erlendis. Ráðuneytið hefur haft sér til ráðgjafar myndlistarnefnd, sem skipuð hefur verið fulltrúum Sambands íslenskra myndlistarmanna, Listasafns Íslands og ráðuneytisins. Með tilkomu Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar fól ráðuneytið miðstöðinni að annast styrki vegna verkefna erlendis og myndlistarnefndin var lögð af.
    Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að stofnað verði myndlistarráð, hliðstætt leiklistarráði og tónlistarráði, er verði samráðsvettvangur um málefni íslenskrar myndlistar, menntamálaráðherra til ráðgjafar og geri tillögur til ráðherra um úthlutun úr myndlistarsjóði. Enn fremur er ráðinu ætlað að stuðla að kynningu á íslenskum myndlistarmönnum og listsköpun þeirra og vinna að því að efla alþjóðlegt samstarf íslenskra myndlistarmanna og stofnana. Hlutverk myndlistarsjóðs verði að veita fjárhagslegan stuðning til verkefna á sviði myndlistar til að efla hana og koma henni á framfæri hér á landi og erlendis.
    Myndlistarráð mun þannig veita ráðuneytinu faglega aðstoð og stuðning, auk þess sem með tilkomu sjóðsins og ráðsins er kominn rammi fyrir styrkveitingar ríkisins til þessa málaflokks.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.


    Ákvæði frumvarpsins mynda heildarramma fyrir myndlistarmál og tekur frumvarpið til allrar myndlistarstarfsemi sem ríkið stendur fyrir eða styrkir nema Listskreytingasjóðs ríkisins og Listasafns Einars Jónssonar.

Um 2. gr.


    Í ákvæðinu er undirstrikað það meginhlutverk Listasafns Íslands að vera höfuðsafn á sviði myndlistar. Um höfuðsöfn og hlutverk þeirra er nánar fjallað í 5. gr. safnalaga. Gert er ráð fyrir að safnið veiti öðrum listasöfnum ráðgjöf, stuðli að samvinnu listasafna og vinni að samræmdri safnastefnu á sviði myndlistar.

Um 3. gr.


    Í greininni er annars vegar tekið mið af 5. gr. safnalaga, nr. 106/2001, um hlutverk Listasafns Íslands og hins vegar 2. gr. laga nr. 58/1988, um Listasafn Íslands. Skilgreiningar á verksviði safnsins eru í frumvarpinu færðar til nútímahorfs og einfaldaðar og felld niður ákvæði gildandi laga um að safnið skuli reka bókasafn enda eiga Landsbókasafn/Háskólabókasafn og bókasafn Listaháskóla Íslands mjög góðan bókakost um myndlist og eru í betri aðstöðu til að sinna þessum málum. Hins vegar er lögð aukin áhersla á skyldur Listasafnsins á sviði heimildasöfnunar um íslenska myndlist og bættan aðgang almennings og fræðimanna að þeim.

Um 4. gr.


    Í frumvarpinu er ekki gert ráð fyrir að safnráð verði skipað og því ekki leitað umsagnar þess um skipun safnstjóra. Hið sama gildir t.d. við skipun þjóðminjavarðar og forstöðumanns Fornleifaverndar ríkisins. Talið er eðlilegt að samræmi sé milli menningarstofnana ríkisins hvað þetta varðar. Í gildandi lögum nr. 58/1988, um Listasafn Íslands, eru ákvæði um að forstöðumaður megi aðeins sitja tvö skipunartímabil, en í frumvarpi þessu eru ekki sett slík tímamörk. Er það til samræmis við ákvæði leiklistarlaga um skipun þjóðleikhússtjóra og aðra forstöðumenn stofnana ríkisins. Hins vegar hefur það verið framkvæmd ráðuneytisins að forstöðumenn listastofnana gegni að öðru jöfnu ekki starfi lengur en að hámarki tvö starfstímabil þar sem æskilegt sé að stuðla að þróun og endurnýjun listgreinanna. Stöður forstöðumanna eru því auglýstar lausar til umsóknar á fimm ára fresti. Þessi framkvæmd mun því einnig gilda um safnstjóra Listasafns Íslands. Þá eru starfsgengisskilyrði rýmkuð. Um starf safnstjóra fer að öðru leyti að lögum nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, og lögum nr. 88/1997, um fjárreiður ríkisins.

Um 5. gr.


    Efnislega er greinin sambærileg við 8. gr. laga nr. 58/1988, um Listasafn Íslands. Helstu breytingar eru að fellt er niður ákvæði um að skjóta megi ágreiningsmálum til safnráðs og gert er ráð fyrir að menntamálaráðherra skipi innkaupanefnd safnsins. Nefndin verði skipuð þremur fulltrúum: Safnstjóra, einum fulltrúa tilnefndum af Sambandi íslenskra myndlistarmanna og einum án tilnefningar. Ráðherra skipar formann úr hópi nefndarmanna. Hlutverk innkaupanefndar er að ákveða listaverkakaup safnsins. Innkaupanefnd getur heimilað safnstjóra að ráðstafa allt að 20% af því fé sem árlega er ætlað til listaverkakaupa til kaupa á innlendum verkum. Eðlilegt þykir að innkaupanefnd geti veitt safnstjóra slíka heimild þar sem aðstæður geta verið með þeim hætti að bregðast verði skjótt við, t.d. þegar safnið hefur tækifæri til þess að eignast eftirsóknarverð listaverk í samræmi við hlutverk þess. Gera verður ráð fyrir því að innkaupanefnd mæli nánar fyrir um heimild safnstjóra samkvæmt greininni.
    Í 3. mgr. ákvæðisins er fjallað um gjafir til og safnsins er ákvæðið efnislega samhljóða 11. gr. laga nr. 58/1988, um Listasafn Íslands, nema hér fjallar innkaupanefnd um gjafir. Í fyrrgreindum lögum er það safnráð.
    Þá er í 4. mgr. fjallað um sölu listaverka sem safnið hefur yfir að ráða, en ákvæðið er að mestu samhljóða 10. gr. laga nr. 58/1988, um Listasafn Íslands. Ekki er gert ráð fyrir að afla þurfi sérstaklega samþykkis höfundar fyrir því að verk hans í safneigninni verði selt til að skapa möguleika á að kaupa annað verk eftir hann. Af 3. mgr. leiðir aftur á móti að ávallt verður að leita samþykkis höfundar ef um gjöf er að ræða.

Um 6. gr.


    Greinin tekur mið af 7. gr. safnalaga, nr. 106/2001, og 12. gr. laga nr. 58/1988. Fellt er niður heimildarákvæði um stofnun sérstakrar útlánadeildar. Hins vegar hafa verið hert skilyrði fyrir útlánum á verkum í eigu safnsins til höfunda þeirra, þ.e. hvað varðar lánstíma, meðferð og tryggingar verkanna. Í greininni er tiltekið að safninu sé heimilt að lána listaverk tímabundið til annarra safna eða stofnana, á sýningar eða til rannsókna. Hér er um rýmri heimild að ræða en í núgildandi lögum þar sem einungis listsýningar eru nefndar. Listasafnið hefur um langt skeið lánað verk tímabundið t.d. til ráðuneyta og sendiráða.

Um 7. gr.


    Greinin er samhljóða 13. gr. laga nr. 58/1988, um Listasafn Íslands, nema 3. mgr. hefur verið skýrð nánar, þ.e. að réttur safnsins til endurmyndunar eða annarrar eftirgerðar fyrir það sjálft hefur verið nánar skilgreindur með orðunum „svo sem til skrásetningar í gagnagrunn safnsins, til kynningar á einstökum sýningum og til birtingar í sýningarskrám“. Ágreiningur hefur komið upp milli safnsins og rétthafa höfundaréttar um túlkun greinarinnar og er hér leitast við að taka af allan vafa um rétt safnsins.

Um 8. gr.


    Rekstur Listasafns Íslands greiðist að stærstum hluta af fjárveitingu í fjárlögum. Safnið getur aflað eigin tekna með sölu á margs konar þjónustu. Það getur einnig aflað annarra framlaga, svo sem stuðnings frá fyrirtækjum, komið sér upp styrktarfélagi til að afla fjár sem væri einkum varið til kaupa á íslenskum listaverkum til safnsins eða á annan hátt aukið ráðstöfunarfé sitt. Framlög sem aflað er á þennan máta ætti ekki að draga frá almennri fjárveitingu til safnsins
    Í greininni er safninu enn fremur veitt heimild til gjaldtöku vegna starfsemi sinnar, þar á meðal að heimilt sé að innheimta aðgangseyri af gestum. Sú heimild hefur ekki verið fyrir hendi áður.

Um 9. gr.


    Skipun myndlistarráðs er nýjung en er ætlað að vera til samræmis við önnur listgreinaráð sem skipuð hafa verið, t.d. leiklistarráð og tónlistarráð, nema hér er gert ráð fyrir að ráðið verði skipað fimm fulltrúum enda verður verksvið þess víðtækt og stefnumarkandi. Skipan myndlistarráðs er í samræmi við skipun ráðgjafarnefndar ráðuneytisins til meira en tveggja áratuga nema bætt er við tveimur fulltrúum. Hún byggist einnig á sömu grundvallarsjónarmiðum um aðkomu fagaðila og viðhöfð voru við ákvörðun um skipun leiklistarráðs og allflestra sjóðsstjórna á vegum ráðuneytisins. Samband íslenskra myndlistarmanna eru heildarsamtök þeirra sem starfa á sviði myndlistar og því eðlilegt að þau tilnefni tvo fulltrúa. Myndhöfundasjóður Íslands/Myndstef sem stendur vörð um höfundarétt vegna opinberrar endurbirtingar og sýningar á verkum myndlistarmanna tilnefnir einn fulltrúa. Listasafn Íslands, sem er höfuðsafn á sviði myndlistar, tilnefnir einn fulltrúa og einn fulltrúi er án tilnefningar og skal hann vera formaður. Varamenn verði skipaðir með sama hætti.
    Gerð er tillaga um að skipunartími myndlistarráðs verði þrjú ár og að ekki verði heimilt að skipa sama mann aðalfulltrúa meira en tvö starfstímabil í röð, eða í sex ár.

Um 10. gr.


    Í greininni er hlutverk myndlistarráðs skilgreint. Ráðinu er ætlað að vera samráðsvettvangur um málefni íslenskrar myndlistar og vera menntamálaráðherra til ráðgjafar. Ráðinu er ætlað að gera tillögur um hvernig æskilegast er að haga stuðningi ríkisins við myndlist til að hún eflist og dafni sem best. Íslenskir myndlistarmenn hafa ekki nema að litlu leyti notið sambærilegs fjárhagsstuðnings til myndsköpunar sinnar og sýningarhalds eins og leikhópar og tónlistarfólk hafa notið til sinnar starfsemi ef frá eru talin listamannalaun. Myndlistarmenn hafa getað sótt um verkefnis- og ferðastyrki, einkum vegna verkefna erlendis, en að öðru leyti hefur stuðningur við þá verið takmarkaður. Með starfi myndlistarráðs og stofnun myndlistarsjóðs er stefnt að því að bæta hag þessarar listgreinar til jafns við aðrar.
    Myndlistarráð gerir tillögu til menntamálaráðherra um stefnu og helstu áherslur í starfi myndlistarsjóðs til þriggja ára í senn og gerir jafnframt tillögu um úthlutun á fé úr myndlistarsjóði, en ákvörðun um ráðstöfun fjárins er í höndum ráðherra.
    Veigamikill þáttur í starfi myndlistarráðs er kynning á íslenskum myndlistarmönnum og myndsköpun þeirra hér á landi og erlendis. Vegna þessara verkefna og þeirra umsvifa sem fyrirsjáanleg eru af hálfu myndlistarráðs er hér talið nauðsynlegt að ráðið hafi heimild til að semja við utanaðkomandi aðila um umsýslu sjóðsins og framkvæmd verkefna og er hér einkum litið til áframhaldandi samstarfs og samstarfssamnings við sjálfseignarstofnunina Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar. Miðstöðin hefur á síðustu árum annast kynningu á íslenskri myndlist erlendis á grundvelli samstarfssamnings við ráðuneytið auk úthlutunar á styrkjum. Eðlilegt er að fé það sem nú rennur til Kynningarmiðstöðvarinnar verði í myndlistarsjóði og að myndlistarráð geti gert samninga um einstök verkefni, svo sem vegna þátttöku Íslands í Feneyjatvíæringnum um myndlist.

Um 11. gr.


    Hér er gert ráð fyrir stofnun myndlistarsjóðs sem sjái um allar styrkveitingar á vegum ráðuneytisins til myndlistarmálefna nema hvað varðar listskreytingar í húsakynnum opinberra stofnana. Hlutverk sjóðsins er skilgreint með víðum hætti en gert ráð fyrir að myndlistarráð geri tillögur til menntamálaráðherra um áherslur og stefnu í starfi sjóðsins, þar á meðal hvernig fjármunum hans verði varið til úthlutunar styrkja á grundvelli umsókna, verkefna eða áhersluatriða myndlistarráðs, kynningarmála og umsýslukostnaðar. Gert er ráð fyrir að fé sem nú er veitt til samstarfssamnings menntamálaráðuneytis og Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar verði veitt í myndlistarsjóð og myndlistarráð geri samninga við Kynningarmiðstöðina fyrir hönd ráðuneytisins.
    Í reglum um starfsemi sjóðsins gefst færi á að setja frekari skilyrði fyrir starfsháttum hvað varðar ráðstöfun fjármuna og um úthlutanir styrkja. Hér er talið rétt að hafa heimildarákvæði um að myndlistarráð fái fagaðila til að leggja mat á umsóknir.

Um 12. og 13. gr.


    Greinarnar þarfnast ekki skýringa.



Fylgiskjal.

Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:

Umsögn um frumvarp til myndlistarlaga.


    Markmiðið með frumvarpinu er að skýra þætti er varða íslenska myndlist. Í frumvarpinu er lögð fram aðlögun að safnalögum og sett fram rammalöggjöf um myndlistarmál í stað sérlaga um Listasafn Íslands. Helstu breytingar eru að safnaráð í núverandi mynd verði lagt niður og sett er inn ákvæði um hve mörg starfstímabil safnstjóri megi sitja. Önnu helstu nýmæli eru skipan myndlistarráðs og stofnun myndlistarsjóðs. Þá falla á brott lög nr. 58/1988, um Listasafn Íslands. Fjármagn myndlistarsjóðs fer eftir framlagi samkvæmt fjárlögum hvers árs. Áætlað er að 18 m.kr. framlag í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2008 sem heyrir undir Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar renni í myndlistarsjóð.
    Verði frumvarpið óbreytt að lögum verður ekki séð að það muni hafa í för með sér aukin útgjöld fyrir ríkissjóð.