Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 268. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 396  —  268. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 125/2007, um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) við EES-samninginn.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Nínu Björk Jónsdóttur frá utanríkisráðuneyti og Sigríði Auði Arnardóttur, Kristínu Lindu Árnadóttur og Gunnar Stein Jónsson frá umhverfisráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES- nefndarinnar nr. 125/2007 frá 28. september 2007, um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og til að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2000/60/EB frá 23. október 2000 um aðgerðaramma Bandalagsins um stefnu í vatnsmálum.
    Innleiðing tilskipunarinnar kallar á lagabreytingar sem gert er ráð fyrir að lokið verði í desember 2009. Ljóst er að verulegur kostnaður mun fylgja innleiðingunni. Fram kom á fundi nefndarinnar að umhverfisráðuneytið hefur óskað fjárheimilda vegna þessa. Nefndin telur mikilvægt að fjárheimildirnar verði í samræmi við umfang þess verkefnis sem fram undan er við innleiðinguna.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
    Bjarni Benediktsson, Lúðvík Bergvinsson og Kristinn H. Gunnarsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    Steingrímur J. Sigfússon skrifar undir álit þetta með fyrirvara.

Alþingi, 5. des. 2007.



Árni Páll Árnason,


varaform., frsm.


Steingrímur J. Sigfússon,


með fyrirvara.


Ragnheiður E. Árnadóttir.



Ásta R. Jóhannesdóttir.


Magnús Stefánsson.


Guðfinna S. Bjarnadóttir.