Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 234. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 423  —  234. mál.




Breytingartillögur



við frv. til. l. um breyt. á l. nr. 88/1991, um aukatekjur ríkissjóðs, með síðari breytingum.

Frá efnahags- og skattanefnd.



     1.      Við 1. gr. bætist nýr stafliður, svohljóðandi: Við greinina bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Leyfi til reksturs leiktækjastaðar 5.500 kr.
     2.      Við 2. gr. bætist þrír nýir stafliðir, svohljóðandi:
                  c.      Í stað orðsins „Vegabréfsáritun“ í 5., 6., 7., 9., 10., 11. og 12. tölul. kemur: Fyrir afgreiðslu umsóknar um vegabréfsáritun.
                  d.      Í stað orðanna „Almenn vegabréfsáritun“ í 8. tölul. kemur: Fyrir afgreiðslu umsóknar um almenna vegabréfsáritun.
                  e.      Í stað orðsins „Vegabréfsáritanir“ í 13. tölul. kemur: Fyrir afgreiðslu umsóknar um vegabréfsáritanir.