Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 162. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 426  —  162. mál.




Breytingartillaga



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 51/1995, um greiðslur Atvinnuleysistryggingasjóðs vegna fiskvinnslufólks, með síðari breytingum.

Frá félags- og tryggingamálanefnd.



    Á eftir 1. efnismgr. 2. gr. komi ný málsgrein, svohljóðandi:
    Starfsmanni sem fær greidd föst laun fyrir dagvinnu frá vinnuveitanda í tímabundinni vinnslustöðvun í samræmi við ákvæði kjarasamninga um kauptryggingu verkafólks í fiskvinnslu, sbr. einnig 2. gr., er heimilt að sækja um mismun fastra dagvinnulauna og tekjutengdra atvinnuleysisbóta sem hann ætti ella rétt á skv. 32. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, hefði hann skráð sig án atvinnu hjá Vinnumálastofnun þann tíma sem vinnslustöðvunin varir. Skilyrði er að starfsmaður hafi fengið greidd föst laun fyrir dagvinnu frá vinnuveitanda í tímabundinni vinnslustöðvun í tíu virka daga samtals eftir 1. janúar 2008. Fyrsta dag næsta mánaðar skulu greiðslur Vinnumálastofnunar samkvæmt þessari málsgrein inntar af hendi í einu lagi eftir að tímabundinni vinnslustöðvun lýkur, enda hafi vinnslustöðvun lokið og umsókn starfsmannsins borist Vinnumálastofnun fyrir 23. dag mánaðarins á undan. Ljúki vinnslustöðvun síðar eða ef umsókn berst síðar skulu greiðslur inntar af hendi fyrsta dag næsta mánaðar þar á eftir. Sá tími sem starfsmaður fær greiddan mismun fastra dagvinnulauna og tekjutengdra atvinnuleysisbóta samkvæmt þessari málsgrein dregst ekki frá því tímabili sem starfsmaður kann að eiga rétt á atvinnuleysisbótum skv. VI. kafla laga um atvinnuleysistryggingar að öðrum skilyrðum laganna uppfylltum.