Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 289. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Prentað upp.

Þskj. 492  —  289. mál.
Leiðréttur texti.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 6/2001, um skráningu og mat fasteigna, með síðari breytingum.

Frá efnahags- og skattanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Þórhall Arason og Hafstein S. Hafsteinsson frá fjármálaráðuneyti, Guðjón Bragason frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Hauk Ingibergsson og Margréti Hauksdóttur frá Fasteignamati ríkisins.
    Tilgangur frumvarpsins er sá að Fasteignamati ríkisins verði markaðir nýir tekjustofnar en fram til þessa hefur rekstur stofnunarinnar verið fjármagnaður með afnotagjaldi sveitarfélaga, sérstöku tímabundnu umsýslugjaldi húseigenda og framlögum af fjárlögum.
    Hlutverk Fasteignamats ríkisins er að annast skráningu fasteigna og mat þeirra sem birt er í formi fasteignamats og brunabótamats. Framkvæmd stofnunarinnar á brunabótamati var upphaflega fjármögnuð með sérstöku umsýslugjaldi húseigenda sem vátryggingafélög innheimtu samhliða iðgjöldum af skyldubundnum brunatryggingum og öðrum opinberum gjöldum. Um aldamótin síðustu ákvað löggjafinn að fjórfalda umsýslugjaldið tímabundið og verja því til uppbyggingar á Landskrá fasteigna. Að lokinni þeirri uppbyggingu skyldi leitað annarra tekjustofna.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Alþingi hefur frá þeim tíma oft þurft að taka afstöðu til gjaldsins og hafa þá komið fram efasemdir um réttmæti þess að láta húseigendur eina bera kostnað af Landskrá fasteigna. Þingið ákvað að framlengja gjaldið, fyrst fyrir árin 2005 og 2006 og svo fyrir árið 2007 í ljósi þess að um væri að ræða óklárað verkefni og vegna þeirra brýnu þjóðfélagslegu þarfa sem skránni er ætlað að uppfylla. Um þetta má m.a. vísa til álits meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar frá 133. löggjafarþingi á þingskjali 543 í 350. máli.
    Nú þegar Landskrá fasteigna er komin í fullan rekstur gerir frumvarpið ráð fyrir að hið sérstaka umsýslugjald verði lagt niður en þess í stað komi sérstakt brunabótamatsgjald sem húseigendur beri kostnað af. Í athugasemdum kemur fram að gjaldið ákvarðist með hliðsjón af því hvert hlutfall kostnaðar brunabótamats er af heildarútgjöldum Fasteignamats ríkisins. Heildarútgjöld eru áætluð 715 millj. kr. fyrir árið 2007.
    Í úttekt Ríkisendurskoðunar frá 12. desember 2006 kemur fram að starfsemi Fasteignamats ríkisins sé svo samofin rekstri Landskrár fasteigna að þar verði ekki skilið á milli. Húseigendur munu samkvæmt því bera kostnað af rekstri Landskrár fasteigna verði frumvarpið samþykkt.
    Í annan stað gerir frumvarpið ráð fyrir að afnotagjöld sveitarfélaga vegna Landskrár fasteigna verði lögbundin en fram að þessu hafa þau verið ákveðin í gjaldskrá sem fjármálaráðherra setur. Er lagt til að gjöldin taki sem fyrr mið af heildarfasteignamati innan viðkomandi sveitarfélags en að hlutfall álagningar hækki frá því sem verið hefur. Samband íslenskra sveitarfélaga hefur mótmælt breytingunni og bendir m.a. á að hækkun á framlagi sveitarfélaga sé ekki nægilega vel ígrunduð og gangi gegn sjónarmiðum sem vísað er til í áliti félagsmálanefndar í tengslum við afgreiðslu laga nr. 140/2005, um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995. Auk þess komi gjaldið til með að breytast í takt við breytingar á verði fasteigna óháð þeim kostnaði sem hlýst af þjónustunni.
    Með hliðsjón af framangreindu leggur nefndin til að a- og b-liður 1. efnismgr. 1. gr. frumvarpsins komi inn í lög um skráningu og mat fasteigna, nr. 6/2001, sem bráðabirgðaákvæði og að það gildi í eitt ár frá 1. janúar 2008. Eftir það leggist ekkert brunabótamatsgjald á húseigendur og sveitarfélög greiði gjöld í samræmi við þá þjónustu sem þeim er veitt.
    Nefndin telur eðlilegt að leitað verði leiða sem tryggi að Fasteignamat ríkisins geti borið sig sjálft með tekjum af þjónustu við aðila sem helst nota upplýsingar úr skránni til að mynda í þágu atvinnurekstrar, til álagningar opinberra gjalda eða til að skrá hagsmuni sína. Ýmist verði gerðir samningar um stór verkefni, t.d. við Samband íslenskra sveitarfélaga, eða sett verði reglugerð um þjónustugjöld. Þá leggur nefndin til að lögum um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991, verði breytt þannig að tekjur af gjaldi sem nú er innheimt á grundvelli 25. tölul. 14. gr. laganna (Vélrænar fyrirspurnir úr þinglýsingabókum) renni til Fasteignamats ríkisins í formi þjónustugjalds. Er sú breyting hugsuð til að vega upp á móti skerðingu sem leiðir af niðurfellingu sérstaks brunabótamatsgjalds á húseigendur.
    Nefndin telur koma til greina að hugað verði að framangreindum atriðum samfara vinnu innan ráðuneytisins sem vísað er til í almennum athugasemdum frumvarpsins og snýr að bættri framkvæmd við skráningu og mat fasteigna.
    Nefndin leggur einnig til að skoðað verði hvernig nýta megi best þá sérþekkingu sem orðið hefur til við uppbyggingu Landskrár fasteigna.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGUM:


     1.      Við 1. gr. Greinin orðist svo:
             24. gr. laganna orðast svo:
             Fasteignamati ríkisins er heimilt að vinna úr og láta í té upplýsingar úr Landskrá fasteigna gegn gjaldi sem rennur til stofnunarinnar samkvæmt gjaldskrá sem fjármálaráðherra staðfestir.
     2.      Við bætist ný grein er verði 2. gr., svohljóðandi:

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


              Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
             Eftirgreindir aðilar skulu á árinu 2008 greiða Fasteignamati ríkisins gjald fyrir afnot af mati stofnunarinnar:

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


                  a.      Sveitarfélög skulu greiða fasteignamatsgjald fyrir afnot af fasteignamati og kerfi til álagningar fasteignaskatta og fasteignagjalda. Skal gjald þetta nema 0,007% af heildarfasteignamati í sveitarfélaginu 31. desember 2008.
                  b.      Húseigendur skulu greiða brunabótamatsgjald vegna notkunar brunabótamats til vátrygginga og annarra trygginga í þágu húseigenda. Skal gjald þetta nema 0,0037% af brunabótamati hverrar húseignar. Skal vátryggingafélag innheimta gjaldið samhliða innheimtu brunatryggingariðgjalda og skila því til Fasteignamats ríkisins eigi síðar en 45 dögum eftir gjalddaga.

    Gunnar Svavarsson og Magnús Stefánsson skrifa undir álitið með fyrirvara.
    Katrín Jakobsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    Grétar Mar Jónsson sat fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er samþykkur áliti þessu.

Alþingi, 12. des. 2007.



Pétur H. Blöndal,


form., frsm.


Ellert B. Schram.


Ögmundur Jónasson.



Bjarni Benediktsson.


Gunnar Svavarsson,


með fyrirvara.


Magnús Stefánsson,


með fyrirvara.



Ólöf Nordal.


Lúðvík Bergvinsson.