Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 282. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 493  —  282. mál.




Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Ármanns Kr. Ólafssonar um heildarfjölda ársverka í opinberum stofnunum.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hver hefur verið þróun heildarfjölda ársverka í dagvinnu í opinberum stofnunum sl. 10 ár? Svar óskast sundurliðað eftir árum og ráðuneytum sem stofnanirnar heyra undir.

    Á tímabilinu 1997–2006 hafa verkefni verið færð á milli ríkis og sveitarfélaga, ríkisstofnanir hafa verið færðar á milli ráðuneyta, á milli A- og B-hluta, og ríkisstofnanir hafa verið gerðar að hlutafélögum auk þess sem kerfisbreytingar hafa átt sér stað í launakerfi ríkisins á tímabilinu.
    Að frátöldum þeim ársverkum sem voru utan launaafgreiðslu ríkisins þar til árið 2006 voru ársverk í dagvinnu hjá ríkinu 12.468 árið 1997 og árið 2006 voru þau 16.324. Á tímabilinu 1997 til 2006 hefur ársverkum í dagvinnu hjá ríkinu fjölgað um 3.856 eða um 30,9%.
    Á árinu 2006 færði stærstur hluti heilbrigðisstofnana launaafgreiðslu sína yfir til ríkisins eða sem samsvarar 1.511 ársverkum í dagvinnu. Heilbrigðisstofnanirnar voru í sérstöku launaafgreiðslukerfi og er því ekki um fjölgun ársverka að ræða heldur færslu á milli kerfa. Þar sem um kerfisbreytingu er að ræða og þar sem meta á þróun heildarfjölda ársverka í dagvinnu, er talið réttast að horfa fram hjá þessum ársverkum við mat á þróun ársverka í dagvinnu hjá ríkinu fyrir tímabilið 1997 til 2006.
    Fjölgun ársverka hefur verið mest hjá þeim stofnunum er heyra undir heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið en þar hefur ársverkum í dagvinnu fjölgað um 1.749 á tímabilinu eða um 54,4%. Þessi fjölgun skýrist að mestu af tilfærslu á verkefnum frá Reykjavíkurborg til ríkisins við sameiningu Sjúkrahúss Reykjavíkur (Borgarspítala) og Landspítala árið 2001. Við sameininguna fjölgaði ársverkum í dagvinnu hjá ríkinu um 1.300.
    Að frátalinni sameiningu Sjúkrahúss Reykjavíkur og Landspítalans hefur ársverkum í dagvinnu hjá stofnunum er heyra undir heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið fjölgað um 449.
    Heildarfjölgun ársverka hjá ríkinu á tímabilinu, að frátöldum þeim ársverkum er fluttust á milli ríkisins og Reykjavíkurborgar við sameiningu Sjúkrahúss Reykjavíkur og Landspítalans, er 2.556 ársverk í dagvinnu eða 20,5% aukning.
    Nánari upplýsingar eru í eftirfarandi töflu.


Fjöldi ársverka í dagvinnu.
Tímabilið 1997–2006, flokkað eftir ráðuneytum.
Heiti 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006
Æðsta stjórn ríkisins 239 242 248 250 251 253 265 266 273 274
Forsætisráðuneytið 31 35 43 57 57 55 57 62 69 66
Menntamálaráðuneytið 2.693 2.777 2.823 2.818 2.875 3.027 3.099 3.154 3.732 3.743
Utanríkisráðuneytið 183 238 264 297 312 339 368 396 416 487
Landbúnaðarráðuneytið 337 340 346 368 371 373 374 382 296 402
Sjávarútvegsráðuneytið 320 330 342 347 361 357 356 348 359 359
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið 1.511 1.534 1.540 1.575 1.566 1.586 1.628 1.583 1.757 1.790
Félagsmálaráðuneytið 897 957 969 1.023 1.003 1.031 1.076 1.119 1.154 1.159
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið 3.215 3.147 3.232 3.273 4.580 4.519 4.674 4.618 4.887 6.475
Fjármálaráðuneytið 577 687 700 697 720 725 740 737 770 764
Samgönguráðuneytið 683 685 678 678 688 718 706 746 803 791
Iðnaðarráðuneytið 225 233 232 233 234 235 216 188 191 185
Viðskiptaráðuneytið 64 59 67 76 81 89 81 88 79 96
Umhverfisráðuneytið 263 282 291 298 75 319 323 342 357 352
Hagstofa Íslands 59 65 70 75 312 84 92 91 98 90
Aðrar ríkisstofnanir 1.172 1.029 1.051 1.077 986 975 1.016 1.031 960 802
Samtals fjöldi ársverka í dagvinnu 12.468 12.641 12.898 13.142 14.472 14.685 15.071 15.151 16.201 17.835
Stofnanir áður í H-launa-kerfi 0 0 0 0 0 0 0 0 0 1.511
Samtals fjöldi ársverka í dagvinnu
án heilbrigðisstofnana utan launaafgreiðslu ríkisins

12.468

12.641

12.898

13.142

14.472

14.685

15.071

15.151

16.201

16.324