Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 322. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 503  —  322. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um tvöföldun Vesturlandsvegar á Kjalarnesi.

Frá Árna Þór Sigurðssyni.



     1.      Mun ráðherra beita sér fyrir því að tvöföldun Vesturlandsvegar á Kjalarnesi verði í næstu samgönguáætlun?
     2.      Hvenær mætti búast við að framkvæmdir gætu hafist við þá mikilvægu samgöngubót?
     3.      Hvaða stefnu hefur ráðherra um fjármögnun verkefnisins? Mun hann tryggja jafnt aðgengi allra vegfarenda um veginn eða hyggst hann leggja til upptöku veggjalda?