Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 328. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 532—  328. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um hús Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á Seyðisfirði.

Frá Arnbjörgu Sveinsdóttur.



     1.      Hvaða áætlanir liggja fyrir varðandi innréttingar sem teknar voru niður í fyrrverandi verslunarhúsnæði ÁTVR á Seyðisfirði í byrjun desember 2007? Hyggst ÁTVR eða fjármálaráðuneytið beita sér fyrir verndun þeirra og þá hvernig?
     2.      Hvaða áætlanir eru um uppbyggingu og verndun hússins?