Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 131. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 545  —  131. mál.




Frumvarp til laga



um breyting á lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, lögum nr. 113/1990, um tryggingagjald, og lögum nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, með síðari breytingum .

(Eftir 2. umr., 14. des.)



I. KAFLI
Breyting á lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda,
með síðari breytingum.

1. gr.

    Við 7. gr. laganna bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
    Vinnuveitandi starfsmanna sem ráðnir eru til starfa á grundvelli samnings um útleigu á vinnuafli telst launagreiðandi þeirra samkvæmt lögum þessum hafi starfsmannaleigan ekki skattalegt heimilisfesti hér á landi.
     Starfsmannaleiga sem hefur staðfestu í öðru ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins, öðru EFTA-ríki eða Færeyjum telst þó launagreiðandi nema um annað hafi verið samið við notendafyrirtæki. Notendafyrirtæki ber ábyrgð sem launagreiðandi hafi starfsmannaleiga ekki staðið réttilega skil á staðgreiðslu, sbr. 20. gr. Fjármálaráðherra er heimilt að binda staðgreiðslu starfsmannaleigu nánari skilyrðum.

II. KAFLI
Breyting á lögum nr. 113/1990, um tryggingagjald,
með síðari breytingum.

2. gr.

    Á eftir orðinu „Launagreiðendur“ í 1. mgr. 1. gr. laganna kemur: samkvæmt lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda.

III. KAFLI
Breyting á lögum nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda
og starfsemi lífeyrissjóða, með síðari breytingum.

3. gr.

    Á eftir orðinu „Launagreiðendur“ í 3. mgr. 6. gr. laganna kemur: samkvæmt lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda.

4. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.