Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 342. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Prentað upp.

Þskj. 578  —  342. mál.
Leiðréttur texti.




Frumvarp til stjórnarskipunarlaga



um breyting á stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, með síðari breytingum.

Flm.: Mörður Árnason, Ágúst Ólafur Ágústsson,
Jón Magnússon, Kolbrún Halldórsdóttir.

1. gr.

    2. mgr. 31. gr. stjórnarskrárinnar orðast svo:
    Kjördæmi skulu vera fæst fimm en flest sex. Mörk þeirra skulu ákveðin í lögum. Kjördæmaskipun skal ávallt þannig háttað að allir íbúar sveitarfélags séu í sama kjördæmi.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Með þessu frumvarpi er lagt til afnám kjördæmaskiptingar í Reykjavík.
    Við breytingar á skipan kosninga til alþingis um aldamótin (með stjórnarskrárbreytingu, lögum nr. 77/1999, og kosningalögum, nr. 24/2000), þegar kjördæmum var fækkað í sex, var ákveðið að skipa kjósendum í Reykjavík í tvö kjördæmi og sett á fót kjördæmin Reykjavíkurkjördæmi suður og Reykjavíkurkjördæmi norður. Mörk þessara kjördæma eru ekki ákvörðuð í kosningalögum þar sem kveðið er á um mörk annarra kjördæma heldur er landskjörstjórn falið að ákveða þau hverju sinni.
    Á sínum tíma voru þau rök helst færð fyrir því að skipta Reykjavík í tvö kjördæmi að þannig yrðu þingmannahópar kjördæmanna sex svipaðir að stærð og því hentugar einingar við útreikning í kosningakerfinu sem upp var tekið.
    Reykvíkingar og fulltrúar þeirra mótmæltu því að sveitarfélaginu væri skipt í tvö kjördæmi í fyrsta sinn í lýðræðissögu Íslendinga (sjá m.a. samþykkt borgarráðs 26. janúar 1999 og 25. apríl 2000). Andstaða við kjördæmaskiptinguna varð þó minni en vert væri vegna þess að í breytingunum í heild fólust þær réttarbætur fyrir Reykvíkinga og aðra íbúa á höfuðborgarsvæðinu að nokkuð var dregið úr misvægi atkvæða, samanber ákvæði kosningalaganna um helmingsmun við rásmark nýja kerfisins, og íbúar höfuðborgarsvæðisins, rúmlega þrír fimmtu landsmanna, kusu í fyrsta sinn meiri hluta þingmanna, 33 af 63.
    Skemmst er frá að segja að í Reykjavík skilur ekki nokkur maður af hverju sveitarfélagið þarf að skiptast í tvö kjördæmi við alþingiskosningar. Kjördæmaskiptingin hefur á hinn bóginn aukið vanda við lýðræðisstarfsemi í höfuðborg Íslendinga.
    Reykvíkingar hafa ekki myndað nein sérstök tengsl við „sína“ þingmenn umfram þingmenn í hinu borgarkjördæminu. Stjórnmálasamtök í borginni skipuleggja grunneiningar sínar eins og um eitt kjördæmi væri að ræða. Einu samtökin sem greindu félagsstarf sitt í Reykjavík eftir nýju kjördæmunum, Framsóknarflokkurinn, hafa sameinað kjördæmasambönd sín í höfuðborginni. Á Alþingi kemur kjördæmaskiptingin ekki fram í störfum þingmanna Reykjavíkur. Þingmannahópar kjördæmanna tveggja hafa aldrei fundað hvor í sínu lagi eða haft með sér nokkurn félagsskap, og má raunar færa að því rök að við kjördæmabreytinguna hafi heldur dregið úr samstarfi Reykjavíkurþingmanna.
    Íbúar í einstökum hverfum hafa í hvorumtveggju þeim kosningum sem háðar hafa verið eftir nýja kerfinu þurft að bíða fram á síðustu vikur kosningabaráttunnar eftir úrskurði um það í hvoru kjördæminu þeir skuli kjósa. Við kosningarnar árið 2003 voru mörk kjördæmanna tveggja miðuð við Hringbraut–Miklubraut–Vesturlandsveg. Íbúum Grafarholtshverfis, sem er sunnan þessarar brautar, var þó skipað í norðurkjördæmið. Vorið 2007 brá hins vegar svo við að kjördæmamörk voru dregin þvert um Grafarholtið. Búast má við frekara hringli með kjördæmamörk í hverfum Reykjavíkur haldi núverandi skipan velli. Í kosningunum vorið 2003 olli kjördæmaskiptingin þeim mistökum að úrskurða varð atkvæði gild sem greidd voru í öðru kjördæmi en greiðendurnir tilheyrðu, þegar íbúar á Framnesvegi sunnan Hringbrautar greiddu atkvæði á sama kjörstað og nágrannar þeirra á Framnesvegi norðan Hringbrautar. Kjördæmaskiptingin í Reykjavík hefur einnig valdið þeim vandkvæðum við val manna á framboðslista að erfitt er að láta vilja kjósenda í prófkjöri um gengi einstakra frambjóðenda endurspeglast í kosningaúrslitum. Bæði 2003 og 2007 gerðist það að frambjóðandi sem ekki náði kjöri hafði fengið meiri stuðning í prófkjöri flokks síns en frambjóðandi sem náði kjöri á lista flokksins í hinu borgarkjördæminu.
    Skipting Reykjavíkur í tvö kjördæmi flækir leikreglur lýðræðisins fyrir kjósendum og veldur þeim óþægindum. Kjördæmaskiptingin hefur þyngt róðurinn við stjórnmálastarf í borginni, aukið vanda við framkvæmd kosninga, spillt vali á framboðslista og torveldað samráð með fulltrúum Reykvíkinga á þingi. Nauðsynlegt er því að gera höfuðborgina að nýju að einu kjördæmi við alþingiskosningar.
    Kjördæmi eru nú ákveðin bæði í stjórnarskrá og sérlögum. Fjöldi þeirra er tiltekinn í stjórnarskrá, „fæst sex en flest sjö“, og þar segir einnig að landskjörstjórn geti ákveðið kjördæmamörk í Reykjavík. Í kosningalögum er síðan kveðið á um skiptingu kjördæmanna og þingmannatölu þeirra. Þótt hugsanlegt sé að knýja fram sameiningu kjördæmanna í Reykjavík með breytingum á kosningalögum – þá með því að bæta við kjördæmi utan höfuðborgarinnar! – er náttúrlegra að breyta þessum ákvæðum í stjórnarskrá. Það er í samræmi við eðli og orðalag stjórnarskipunarlaga að gera það með grundvallarreglu sem varðar grundvöll lýðræðisskipunar og mannréttinda á landinu, nefnilega að mörk sveitarfélaga séu virt við skipan kosninga til Alþingis Íslendinga.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Í frumvarpi til stjórnarskipunarlaga er ekki gerð tillaga um breytingar á almennum lögum en eðli málsins samkvæmt yrði að setja ný kosningalög að þessu frumvarpi samþykktu. Minnsta hugsanleg breyting frá núverandi skipan er sú að Reykjavíkurkjördæmi norður og suður yrði sameinuð í eitt, sem þá hefði átján kjördæmissæti og fjögur jöfnunarsæti. Nú kann mönnum að þykja það spilla einhvers konar innra jafnvægi kosningakerfisins að eitt kjördæmanna sé helmingi stærra en hvert hinna, svo sem vegna lágmarksfylgis til að koma að manni í kjördæmi, og virðist þá hægur vandi að bregðast við því með sérákvæði í kosningalögum án þess að ganga á hlut Reykvíkinga.