Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 394. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 638  —  394. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um tollamál íslenskra ferðamanna.

Frá Rósu Guðbjartsdóttur.



     1.      Hversu margir Íslendingar voru teknir með of mikinn varning við komu til landsins á árinu 2007, en samkvæmt reglugerð mega ferðamenn sem búsettir eru á Íslandi hafa með sér tollfrjálsan varning fyrir allt að 46.000 kr. og verðmæti hvers hlutar má ekki vera meira en 23.000 kr.?
     2.      Hve háar upphæðir greiddu viðkomandi í virðisaukaskatt annars vegar og sektir hins vegar?


Skriflegt svar óskast.