Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 399. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 644 — 399. mál.
til umhverfisráðherra um landupplýsingar.
1. Er til yfirlit yfir stafræn kort og aðrar landupplýsingar, svo sem loftmyndir og gervitunglamyndir, í eigu ríkisins og sveitarfélaga?
2. Hverjir sjá um kaup á slíkum gögnum fyrir ríkið og sveitarfélögin?
3. Hverjar eru þarfir opinberra aðila á þessu sviði og er til skýr stefnumörkun um þau mál?
4. Hversu miklir fjármunir fara til innkaupanna?
5. Væri hugsanlegt að líta til nágrannaríkja eins og Noregs með það að leiðarljósi að breyta núverandi fyrirkomulagi og samræma innkaup og notkun opinberra aðila á landupplýsingum?
Skriflegt svar óskast.
Í stefnumörkun ríkisstjórnar Íslands um upplýsingasamfélagið fyrir árin 2004–2007 kemur m.a. fram mikilvægi þess að örugg og öflug upplýsingatækni sé nýtt til þess að einstaklingar hér á landi geti búið við fjölbreytt tækifæri í nýtingu upplýsinga og þekkingar. Sérstök áhersla hefur verið lögð á verkefni innan rafrænnar stjórnsýslu á undanförnum árum. Landupplýsingar gegna auknu hlutverki á sviði rafrænnar stjórnsýslu, svo sem vegna skipulagsmála. Þær eru einnig stór hluti daglegs lífs fólks vegna aukinnar notkunar margs konar leiðsögutækja, farsíma og annars konar fjarskipta.
Tækni á sviði landupplýsinga hefur tekið miklum breytingum á undanförnum árum og kallar sú þróun á betri skilgreiningu á verkefnum hins opinbera og að innkaup og notkun gagna sé samræmd til að nýta sem best opinbert fé. Einnig er mikilvægt að skýr lína sé dregin á milli starfsemi ríkisins og einkaaðila. Einnig er ljóst að aukin krafa mun koma frá samstarfsþjóðum Íslands í Evrópu um samræmi varðandi lagasetningu á þessu sviði.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 644 — 399. mál.
Fyrirspurn
til umhverfisráðherra um landupplýsingar.
Frá Guðbjarti Hannessyni.
1. Er til yfirlit yfir stafræn kort og aðrar landupplýsingar, svo sem loftmyndir og gervitunglamyndir, í eigu ríkisins og sveitarfélaga?
2. Hverjir sjá um kaup á slíkum gögnum fyrir ríkið og sveitarfélögin?
3. Hverjar eru þarfir opinberra aðila á þessu sviði og er til skýr stefnumörkun um þau mál?
4. Hversu miklir fjármunir fara til innkaupanna?
5. Væri hugsanlegt að líta til nágrannaríkja eins og Noregs með það að leiðarljósi að breyta núverandi fyrirkomulagi og samræma innkaup og notkun opinberra aðila á landupplýsingum?
Skriflegt svar óskast.
Greinargerð.