Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 408. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 659 — 408. mál.
til samgönguráðherra um sölu á Breiðafjarðarferjunni Baldri.
1. Hvert var andvirði ferjunnar Baldurs við sölu Sæferða ehf. á skipinu úr landi, hver var söludagur, hverjum var þá selt og hverjir voru greiðsluskilmálar?
2. Hvernig eru ákvæðin í samningi ríkisins frá 31. janúar 2006 við Sæferðir ehf. um kaup fyrirtækisins á ferjunni Baldri af ríkinu, sem varða sölu Sæferða ehf. á ferjunni, einkum þau sem lúta að söluverði og hlut ríkisins í því?
3. Hvers vegna tók það Sæferðir ehf. 15 mánuði að greiða ríkissjóði sinn hluta af söluverði skipsins og hvernig var sú greiðsla innt af hendi? Hvaða vextir voru greiddir á umræddu 15 mánaða tímabili?
4. Hvernig skiptist andvirði ferjunnar Baldurs við sölu úr landi milli ríkisins og Sæferða ehf. og hvert var eigið fé fyrirtækisins samkvæmt síðasta ársreikningi fyrir sölu skipsins til Sæferða ehf.?
5. Kom ríkið að einhverju leyti að kaupum Sæferða ehf. á annarri ferju í stað Baldurs og ef svo er, þá hvernig?
Skriflegt svar óskast.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 659 — 408. mál.
Fyrirspurn
til samgönguráðherra um sölu á Breiðafjarðarferjunni Baldri.
Frá Kristni H. Gunnarssyni.