Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 313. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 685  —  313. mál.




Svar



heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Dýrleifar Skjóldal um leiðsöguhunda.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hvað er það sem kemur í veg fyrir að leiðsöguhundar fyrir blinda og daufblinda séu flokkaðir sem hjálpartæki en ekki sem gæludýr?
     2.      Stendur til að breyta þessari flokkun?

    Árið 2007 gerðu heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra og Blindrafélagið með sér samkomulag til sex ára um að ráðuneytið styrkti félagið til að kaupa og þjálfa fimm leiðsöguhunda til aðstoðar blindum. Í kjölfar skýrslu sem gefin var út árið 1997 um hvernig þörfum blindra og sjónskertra væri sinnt hér á landi veitti þáverandi ráðherra styrk til að kaupa leiðsöguhund fyrir blindan mann. Verkefnið var tilraunaverkefni og er niðurstaða þess jákvæð. Leiðsöguhundar auka verulega sjálfstæði og ferðafrelsi blindra og um leið lífsgæði þeirra. Er þetta samhljóða reynslu frá öðrum löndum.
    Í Noregi er löng hefð fyrir þjálfun og notkun leiðsöguhunda fyrir blinda. Þar í landi, eins og reyndar víðar, eru hundar skilgreindir sem hjálpartæki fyrir blinda sem uppfylla tiltekin skilyrði. Blindrafélagið er í samstarfi við Norðmenn um framangreint sex ára verkefni. Hundarnir eru keyptir þaðan og frumþjálfun þeirra fer þar fram.
    Gott samstarf hefur verið milli ráðuneytisins og samtaka blindra og sjónskertra um verkefnið og mun ráðuneytið fylgjast með framvindu þess.
    Sú ósk hefur komið fram af hálfu samtaka blindra og sjónskertra að leiðsöguhundar verði skilgreindir sem hjálpartæki fyrir blinda hér á landi. Heilbrigðisráðherra hyggst skoða það mál af fullri alvöru í samstarfi við samtökin.